Málsnúmer 2005004F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 24. fundur - 11.06.2020

Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti til kynningar.
  • Oddi bs - 27 Skólastjórar kynntu stöðu mannauðsmála gagnvart næsta skólaári. Búið er að ráða í allar stöður í grunnskólunum og leikskólarnir eru fullmannaðir sömuleiðis. Fram kom að afar vel hefur gengið að manna stöður að þessu sinni. Leikskólastjórar fóru yfir reynsluna af þeim aðgerðum í mannauðsmálum sem gripið var til á yfirstandandi skólaári. Fram kom að leikskólastjórar leggja áherslu á að akstursgreiðslur verði áfram og eins að frí verði gefið á milli jóla og nýárs. Lagt fram bréf frá Háskólafélagi Suðurlands varðandi fagháskólanám í leikskólafræðum/fjarnám fyrir leikskólastarfsmenn á Suðurlandi. Námið er tilraunaverkefni í samvinnu Háskóla Íslands, Háskólafélags Suðurlands og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

    Tillaga er um að reglur um akstursgreiðslur og lokun leikskólanna á milli jóla og nýárs gildi áfram fyrir skólaárið 2020-2021.

    Samþykkt samhljóða.


    Bókun fundar Tillaga er um að sveitarstjórn staðfesti fyrir sitt leyti bókun stjórnar Odda bs.

    Samþykkt með 6 atkvæðum, einn situr hjá (ST)
  • Oddi bs - 27 Lagt fram bréf frá foreldrafélagi Laugalandsskóla þar sem hvatt er til skoðunar á því að starfrækja sérstaka tómstundarútu milli Laugalands og Hellu. Einnig hvetur foreldrafélagið til þess að lagfæra bílastæði við Laugalandsskóla og að gólf í íþróttasalnum verði lagfært hið fyrsta.

    Formaður upplýsti að vinna við bílastæði og íþróttagólf eru í ferli á vegum Húsakynna bs og tekur stjórn Odda bs undir hvatningu til Húsakynna bs um að fylgja þeim verkefnum eftir. Þá tekur stjórn Odda bs. undir með foreldrafélagi Laugalandsskóla að rétt sé að kanna grundvöll þess að starfrækja tómstundarútu á svæðinu og hvetur sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna til að taka málið til skoðunar.

    Samþykkt samhljóða.



    Bókun fundar Tillaga er um að sveitarstjórn staðfesti fyrir sitt leyti bókun stjórnar Odda bs og að skoðaður verði grundvöllur fyrir rekstri tómstundarútu á svæðinu. Mögulega mætti skoða þetta sameiginlega fyrir öll sveitarfélögin í sýslunni. Sveitarstjóra falið að ræða við sveitarstjóra nágrannasveitarfélaga og kanna fýsileika þess að vinna málið áfram.

    Samþykkt samhljóða.