Málsnúmer 2104009

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Rangárþings ytra - 34. fundur - 15.04.2021

Trúnaðarmál
Auðunn Guðjónsson, löggiltur endurskoðandi sveitarfélagsins, fór yfir ársreikning Rangárþings ytra fyrir árið 2020.

Byggðarráð samþykkir að vísa framlögðum ársreikningi Rangárþings ytra fyrir árið 2020, með undirritun sinni, til endurskoðunar og leggur fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 33. fundur - 15.04.2021

Tillaga um að vísa ársreikningnum til síðari umræðu.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 34. fundur - 12.05.2021

Til seinni umræðu
Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2020 var staðfestur af byggðaráði fimmtudaginn 15. apríl 2021 og lagður fyrir sveitarstjórn. Hann var tekinn til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar fimmtudaginn 15. apríl 2021 og var vísað til seinni umræðu. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikning sveitarfélags á tveimur fundum í sveitarstjórn. Ársreikningurinn hefur að geyma samantekin reikningsskil fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A og B hluta starfsemi sveitarfélagsins sbr. 60.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í A hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða að öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf. Rekstrartekjur A og B hluta á árinu námu kr. 2.073 milljónum. Rekstrarniðurstaða var neikvæð um kr. 15 milljónir. Eigið fé í árslok 2020 var 1.948 milljónir. Sveitarstjórn staðfestir ársreikning Rangárþings ytra fyrir árið 2020. Sveitarstjórn færir starfsfólki sveitarfélagsins þakkir fyrir góða vinnu við rekstur sveitarfélagsins sem skilar ásættanlegri niðurstöðu þrátt fyrir erfiðar aðstæður vegna heimsfaraldurs.

Bókun Á-lista:
Fulltrúar Á-lista telja jákvætt að tekjur sveitarfélagsins séu yfir áætlun ársins 2020 og að rekstur sveitarfélagsins sé í sæmilegu jafnvægi, þrátt fyrir áhrif heimsfaraldar. Fulltrúar Á-lista vekja þó enn og aftur athygli á viðvarandi tapi Suðurlandsvegar 1-3 hf. Árið 2020 var félagið rekið með 22 milljóna króna tapi og er þá heildartap félagsins á árunum 2010-2020 alls nærri 190 milljónum króna. Eignarhlutur Rangárþings ytra er sem fyrr tæp 70%. Á 37. fundi sveitarstjórnar, 10. maí 2017, samþykkti sveitarstjórn samhljóða að selja hlut Rangárþings ytra í Suðurlandsvegi 1-3 hf., enda fellur rekstur þess félags ekki undir lögbundna starfsemi sveitarfélaga. Fulltrúum Á-lista þykir miður að þessari ákvörðun hafi ekki verið fylgt eftir af fullri alvöru og hvetja til þess að það verði eitt af forgangsverkefnum sveitarstjórnar að selja þennan eignarhluta, sér í lagi þar sem fyrir liggur að fjármagna þurfi nýjan leik- og grunnskóla. Þrátt fyrir þessa ábendingu hafa fulltrúar Á-lista fulla trú á að hægt verði að snúa rekstri félagsins við til hins betra í höndum einkaaðila.

Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Steindór Tómasson
Yngvi Harðarson

Bókun D-lista:
Fulltrúar D-lista hafa fulla trú á því Suðurlandsvegur 1-3 hf eigi góða framtíð en nú er staðan sú að fasteign félagsins er fullnýtt og öll leigjanleg rými í útleigu. Jafnframt er lokið endurfjármögnun félagsins sem mun verða til verulegra hagsbóta. Ekkert er því til fyrirstöðu að selja hlut sveitarfélagsins en finna þarf rétta tímann til þess. Reyndar má benda á að það kom greinilega í ljós nú nýverið, varðandi farsæla niðurstöðu fyrir framtíð matvöruverslunar á Hellu, að heppilegt var að sveitarfélagið átti enn sinn hlut í umræddu félagi.

Björk Grétarsdóttir
Haraldur Eiríksson
Hjalti Tómasson
Ágúst Sigurðsson