Málsnúmer 2110004F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 40. fundur - 11.11.2021
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti staðfest.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 44 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né áformað heiti á nýrri lóð. Nefndin telur að umrædd áform um nýtingu lóðarinnar sé í samræmi við stefnu aðalskipulagsins um landnotkun. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 44 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 44 Sveitarfélagið leggur áherslu á gott framboð lóða til uppbyggingar, í þéttbýli sem dreifbýli, svo framarlega sem það spilli ekki verndarsvæðum og sé í samræmi við stefnu í aðalskipulagi. Að öðru leyti og sem svar við öðrum athugasemdum eða ábendingum er vísað í texta meðfylgjandi aðalskipulagsbreytingar.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu þar sem tekið hefur verið tillit til fram kominna ábendinga og leggur til að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 44 Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 44 Skipulagsnefnd hefur fjallað um fram komnar ábendingar. Nefndin telur að gera verði nánari grein fyrir breyttri legu á Gunnarsholtsvegi í fyrirhuguðu deiliskipulagi. Nefndin ítrekar fyrri bókun sína.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 44 Nefndin telur að fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi norðan við Hróarslæk þar sem breytingar eiga sér stað á skilgreiningu íbúðar- og frístundabyggðar varði ekki líklega legu fjarsvæðis né heldur stækkun grannsvæðis í samræmi við skýrslu frá Jónasi Ketilssyni jarðeðlisfræðingi. Af þeim sökum er ástæðulaust að fresta afgreiðslu á breytingu á aðalskipulagi við Gaddstaði á þeim forsendum að fjarsvæði vatnsbóla við Selalæk skorti þar sem ljóst má þykja að svæðið við Gaddstaði liggur utan við líklega legu fjarsvæðisins. Niðurstaða frá fundi Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps styður við ofangreint álit.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Umsagnaraðilum verði jafnframt send niðurstaða fundarins. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 44 Skipulagsnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða.