Málsnúmer 2202001F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 45. fundur - 10.03.2022
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti staðfest.
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 44 2.1 Útboð vegna 1. áfanga
Tvö tilboð bárust í verkið Jarðvinnu, rif og styrkingar ásamt lögnum í 1. áfanga framkvæmda við grunnskólann á Hellu:
Þjótandi ehf 32.923.694 kr með vsk
Vörubílstjórafélagið Mjölnir 33.605.414 kr með vsk
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 39.434.800 kr með vsk
Tillaga um að ganga til samninga við Þjótanda ehf og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
2.2. Fullnaðarhönnun 2. áfanga
Fyrir liggur kostnaðaráætlun varðandi fullnaðarhönnun 2. áfanga. Lagt er til að fullnaðarhönnun 2. áfanga verði boðin út í samræmi við frumdrög hönnunar og er sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun byggðarráðs varðandi liði 2.1 og 2.2 og felur sveitarstjóra að vinna málin áfram.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 44 Lagt til að auglýsa lóðir við Ómsvelli 1-6 lausar til umsóknar. Jafnframt er lagt til að umsækjendur sem hyggjast reka hestaleigu njóti forgangs við úthlutun lóða við Ómsvelli 1 og 3.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun byggðarráðs og að auglýstar verði lóðir við Ómsvelli 1-3,2,4,5 og 6. Í ljósi mikillar eftirspurnar eftir lóðum þá verði lóðir við Vigdísarvelli 1,2-4,3,5 og 6 einnig auglýstar lausar til umsóknar. Byggðarráði verði falið að meta hvenær lóðir við Vigdísarvelli gætu verið tilbúnar til uppbyggingar og meta hvort endurskoða þurfi fjárhagsáætlun og eftir atvikum gera tillögu til sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 44 Lagt er til að gengið verði að tilboðunum og sveitarstjóra verði falið að ganga frá sölunni.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti fyrirliggjandi kauptilboð í eignirnar Nestún 4a, Nestún4b, Nestún 6a og Nestún 6b. Söluverð er 27 mkr fyrir hverja íbúð. Jafnframt verði Ágústi Sigurðssyni kt. 311064-4879 sveitarstjóra veitt umboð til að undirrita öll skjöl vegna sölu og veðsetningar fasteignanna.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 44 Byggðarráð telur rétt að þessi vinna fari fram samhliða undirbúningi fyrir fjárhagsáætlun og hefjist þegar ný sveitarstjórn hefur tekið til starfa. Þá leggur byggðarráð til að haldnir verði íbúafundir í haust þar sem þessi mál eru kynnt og rædd. Sveitarstjóra er jafnframt falið að taka saman upplýsingar um þá þjónustu sem nú þegar er veitt hjá sveitarfélaginu og afla upplýsinga frá Sambandi Íslenskra Sveitarfélaga um hvort vinna er hafin í þessum efnum á landsvísu og leggja fyrir sveitarstjórn í apríl.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 44 Lagt er til að byggðarráð geri ekki athugasemd við veitingu leyfis til nýtingar jarðhita við Kaldárholtslæk í landi Kaldárholts í Rangárþingi ytra.
Samþykkt samhljóða og jafnframt lýsir byggðarráð yfir mikilli ánægju með að líkur eru til þess að útlit sé fyrir bjartari tíma við öflun á heitu vatni í sveitarfélaginu. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða.
Bókun fulltrúa Á lista:
Mikilvægt er ef vel tekst til að ná meira af heitu vatni að kanna alla möguleika til að fjölga tengingum við hitaveituna. Leggja alla áherslu á að koma heitu vatni sem víðast á heimili, til að tryggja jafnan rétt íbúa í sveitarfélaginu á vistvænni orku.
Vakin er athygli á að þessi umsögn nær ekki til framkvæmda á svæðinu, ef til þeirra kemur þarf að sækja um framkvæmdaleyfi og vinna það í sátt við landeigendur Kaldárholts.
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Yngvi Harðarson
Jóhanna Hlöðversdóttir
-
Byggðarráð Rangárþings ytra - 44 Í kjölfar tilkynningar Íslandspósts um breytingu á póstþjónustu á Hellu og yfirlýsingar sveitarstjórnar Rangárþings ytra sem send var á stjórn Íslandspósts, Byggðastofnun og þingmenn suðurkjördæmis þann 11. febrúar sl. hefur nú borist beiðni frá Byggðastofnun þar sem óskað er umsagnar sveitarfélagsins varðandi þessar fyrirhuguðu breytingar. Byggðastofnun hefur eftirlit með starfsemi Íslandspósts og ber að meta umsókn Íslandspóst varðandi lokun á póstafgreiðslu út frá ákveðnum samfélagslegum þáttum. Sveitarstjóra falið að gera tillögu að umsögn og senda á sveitarstjórn til athugasemda og eftir atvikum staðfestingar þannig að hægt sé að senda umsögn inn án tafar.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun byggðarráðs og vísar að öðru leyti til umfjöllunar undir lið 7.
Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Rangárþings ytra - 44 Lögð fram til kynningar um núverandi fyrirkomulag styrkja við framboð til sveitarstjórnarkosninga. Byggðarráð leggur til að öllum framboðum til komandi sveitarstjórnarkosninga í Rangárþingi ytra standi til boða að nýta fundaaðstöðu sveitarfélagsins í Heklu fundarsal og Námsveri í Miðjunni á Hellu, Íþróttahúsi Þykkvabæ og Laugalandi endurgjaldslaust.
Samþykkt samhljóða. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun byggðarráðs.
Samþykkt samhljóða.