Málsnúmer 2202002F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 45. fundur - 10.03.2022
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðin að öðru leyti staðfest.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd getur ekki fallist á áform umsækjanda fyrir umrædda lóð þar sem framboð er á öðrum lóðum sem myndu henta betur fram lögðum áformum. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Lagt fram til kynningar
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin leggur til að fallið verði frá kröfu um grenndarkynningu þar sem umrædd breyting hefur ekki áhrif á aðra en umsækjendur og sveitarfélagið. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að umrædd breyting verði kynnt í sameiginlegri lýsingu skipulagsáforma sem lögð hefur verið fram í máli nr. 2203006 við breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Rimakotslínu. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd leggur til að veitt verði heimild til deiliskipulagsgerðar. Nefndin telur að tillagan samræmist stefnu aðalskipulagsins hvað varðar landnotkun en bendir á að sökum mikillar fjarlægðar frá stofnvegi geti reynst erfitt að þjónusta viðkomandi lóð. Nefndin telur þó fyrirséð að í framtíðinni muni styttast verulega í frekari uppbyggingu á svæðinu og því sé fjarlægð frá stofnvegi ekki til þess fallin að stöðva framgang tiltekinna áforma. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu erindisins Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd áréttar að eingöngu eru gerðar athugasemdir við að lóðir séu felldar út af núverandi skipulagi. Nefndin gerir engar athugasemdir við aðrar fyrirhugaðar breytingar í tillögunni. Nefndin leggur til að sveitarstjórn taki við gerð deiliskipulagsins að ósk Umhverfisstofnunar og leggur til að bætt verði í texta greinargerðar að úthlutun lausra lóða skuli vera í samræmi við nýtingarrétt aðila í þjóðlendu og verði háð ákvörðunum sveitarstjórnar að teknu tilliti til þess að innviðir svæðisins þoli þá aukningu sem fylgir frekari uppbyggingu hverju sinni. Nefndin tekur að öðru leyti undir álit Umhverfisstofnunar. Skipulagsnefnd leggur því til að tillagan verði samþykkt með áður greindum atriðum og send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasmedir við framlögð gögn. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði send skipulagsstofnun til afgreiðslu þegar búið er að taka tillit til ábendingar Vegagerðarinnar og veghelgunarsvæði sett á uppdráttinn. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði afgreidd skv. 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og send Skipulagsstofnun. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 48 Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur að umfang og skipulag svæðisins muni ekki hafa neikvæð umhverfisáhrif í för með sér og sé því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Bókun fundar Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti bókun Skipulags- og umferðarnefndar.
Samþykkt samhljóða.