Málsnúmer 2203079

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 49. fundur - 11.04.2022

Landeigendur óska eftir breytingu á gildandi deiliskipulagi frá 26.2.2021. Breytingin felur í sér að hluta núverandi lóða er skipt upp og fara því í 13 úr 10. Auk þess breytist afmörkun einnar lóðar. Útmörk svæðisins verða óbreytt. Tillaga frá Eflu dags. 14.3.2022.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022

Landeigendur hafa óskað eftir breytingu á gildandi deiliskipulagi frá 26.2.2021. Breytingin felur í sér að hluta núverandi lóða er skipt upp og fara því í 13 úr 10. Auk þess breytist afmörkun einnar lóðar. Útmörk svæðisins verða óbreytt. Tillaga frá Eflu dags. 14.3.2022. Tillagan var auglýst frá og með 20.4.2022 til og með 1.6.2022. Engar athugasemdir bárust á auglýsingatíma.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.