Málsnúmer 2410061
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 32. fundur - 07.11.2024
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sendir afrit kæru dags. 24.10.2024, móttekin af nefndinni sama dag. Kærð er ákvörðun Orkustofnunar, virkjunarleyfi dagsett 12. september 2024, ákvörðun Rangárþings ytra, framkvæmdaleyfi dagsett 16. október 2024 og framkvæmdaleyfi Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkt á fundi sveitarstjórnar hinn 24. október 2024, til Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Um eru að ræða kærur nr. 132, 133 og 134/2024.
Lagt fram til kynningar
Skipulags- og umferðarnefnd - 49. fundur - 21.08.2025
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sendir tilkynningu um afturköllun á stjórnsýslukæru nr. 133/2024 vegna framkvæmdaleyfis fyrir Hvammsvirkjun.
Lagt fram til kynningar.