Málsnúmer 2506010F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 44. fundur - 13.08.2025

Fundargerðin er að öðru leyti lögð fram til kynningar.
  • Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 16 Nefndin leggur fram tillögu um að breyta róluvellinum á milli Þrúðvangs og Hólavangs í listigarð fyrir íbúa. Grunnhugmyndin er að bæta aðgengi, gróðursetja, gera stíga og skoða möguleikann á að setja upp aðstöðu fyrir markaðsbása og lítið svið fyrir minni uppákomur.

    Nefndin felur markaðs- og kynningarfulltrúa að fullvinna tillöguna og vísa henni til skipulags- og umferðarnefndar til umsagnar.
    Bókun fundar Lagt til að samþykkja tillögu nefndarinnar og jafnframt verði henni vísað til umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar til umsagnar.

    IPG tók til máls.

    Samþykkt samhljóða.