1.Samantekt sveitarstjóra og/eða oddvita
Málsnúmer 2502016Vakta málsnúmer
2.Kosning í byggðarráð
Málsnúmer 2408016Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
3.Málstefna Rangárþings ytra og Ásahrepps
Málsnúmer 2507004Vakta málsnúmer
Lagt til að vísa málinu til seinni umræðu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
4.Þjónustustefna Rangárþings ytra
Málsnúmer 2507005Vakta málsnúmer
Lagt til að vísa málinu til seinni umræðu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
5.Hvammsvirkjun. Framkvæmdaleyfi byggt á virkjanaleyfi 2025
Málsnúmer 2508005Vakta málsnúmer
Eftirtalin gögn eru lögð fram:
Umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi, dags. 11. ágúst 2025.
Greinargerð Landsvirkjunar með umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir undirbúningsframkvæmdum, dags. 11.8.2025.
Teikningar og yfirlitsmynd af framkvæmd
Deiliskipulag Hvammsvirkjunar
Skipulagsgreinargerð og umhverfisskýrsla
Skipulagsuppdráttur 1:12.500
Skipulagsuppdráttur 1:2.500
Umhverfismatsskýrsla, dags. apríl 2003
Úrskurður Skipulagsstofnunar, dags. 19. ágúst 2003
Úrskurður umhverfisráðherra, dags. 27. apríl 2004
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um endurskoðun matsskýrslu, dags. 16. desember 2015
Endurskoðað umhverfismat, dags. október 2017
Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar, dags. 12. mars 2018
Leyfi Minjastofnunar Íslands, dags. 26. nóvember 2021
Leyfi Fiskistofu, dags. 14. júlí 2022
Virkjunarleyfi til bráðabirgða frá Umhverfis- og orkustofnun, dags. 11. ágúst 2025
Lagt til að fresta afgreiðslu málsins þar til umsagnir hafa borist og greinargerð sveitarfélagsins í samræmi við 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna framkvæmdarinnar liggur fyrir.
Samþykkt samhljóða.
6.Næstu fundir sveitarstjórnar
Málsnúmer 2403024Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
7.RallyReykjavík 2025 - Leyfisumsókn
Málsnúmer 2507050Vakta málsnúmer
Lagt til að heimila fyrir sitt leyti að keppnin fari fram á vegum sem tilgreindir eru í umsókn innan sveitarfélagsins þann 17. ágúst 2025. Vakin er athygli á því að leita þarf umsagnar fleiri aðila þar sem ekki allir vegir tilheyra sveitarfélaginu Rangárþingi ytra. Sveitarfélagið setur eftirfarandi skilyrði: 1. Forsvarsmenn keppninnar gæti þess að fylgt verði merktum leiðum og ekki sé ekið utan vega. 2. Keppnishaldari upplýsi þá aðila sem hafa með skipulagðar ferðir á svæðinu að gera vegna keppninnar sem og aðra ferðaþjónustuaðila á svæðinu. 3. Mönnuð vöktun verði á öllum lokunarpóstum. 4. Þess sé gætt að allur frágangur verði til fyrirmyndar. Þeir vegir sem farið verði um verði heflaðir á kostnað keppnishaldara strax að keppni lokinni. Allar merkingar og allt rusl verði fjarlægt af hálfu keppnishaldara. 5. Keppnishaldari tryggi að almenningur á svæðinu verði ekki fyrir óþarfa óþægindum ef eða á meðan kynningarakstur fer fram fyrir keppni.
Samþykkt samhljóða
8.Fyrirspurnir fulltrúa D-lista
Málsnúmer 2408013Vakta málsnúmer
9.Rangárbakki 6. L198623. Árhús. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis með veitingaleyfi
Málsnúmer 2507028Vakta málsnúmer
Lagt er til að ekki séu gerðar athugasemdir við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
10.Uxahryggur lóð 1, L219337. Uxahryggur ehf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 2505048Vakta málsnúmer
Lagt er til að ekki séu gerðar athugasemdir við beiðnina.
Samþykkt samhljóða.
11.Byggðarráð Rangárþings ytra - 39
Málsnúmer 2505014FVakta málsnúmer
12.Byggðarráð Rangárþings ytra - 40
Málsnúmer 2506011FVakta málsnúmer
13.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 16
Málsnúmer 2506010FVakta málsnúmer
-
Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 16 Nefndin leggur fram tillögu um að breyta róluvellinum á milli Þrúðvangs og Hólavangs í listigarð fyrir íbúa. Grunnhugmyndin er að bæta aðgengi, gróðursetja, gera stíga og skoða möguleikann á að setja upp aðstöðu fyrir markaðsbása og lítið svið fyrir minni uppákomur.
Nefndin felur markaðs- og kynningarfulltrúa að fullvinna tillöguna og vísa henni til skipulags- og umferðarnefndar til umsagnar. Bókun fundar Lagt til að samþykkja tillögu nefndarinnar og jafnframt verði henni vísað til umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar til umsagnar.
IPG tók til máls.
Samþykkt samhljóða.
14.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47
Málsnúmer 2507005FVakta málsnúmer
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á sameinaðri lóð og leggur til að sameining lóðanna verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á sameinaðri lóð og leggur til að sameining lóðanna verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. - 14.5 2508006 Hvammur 1, L164983, Hvammur 3, L164984, Hvammur 3 lóð, L190286, Hvammur 3-Brekka. Landskipti og afmarkanirSkipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd þakkar fyrir erindið en tekur ekki afstöðu til þess að sinni. Nefndin leggur til að hafin verði vinna við að skilgreina göngu-, reið- og hjólaleiðir á Hellu og í nærliggjandi svæðum með það að markmiði að koma þeim inn á deiliskipulag og skapa þannig sameiginlega framtíðarsýn um framkvæmd þeirra.
Sérstök áhersla er lögð á að tengja saman helstu útivistarsvæði, sérstaklega Aldamótaskóg og Melaskóg, og stuðla að auknu aðgengi og öryggi. Í þeirri vinnu er mikilvægt að hafa samráð við hagaðila.
Nefndin leggur til að mál þessa efnis verði tekið fyrir á næsta reglulega fundi nefndarinnar.
Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt og jafnframt verði málinu vísað til eigna- og framkvæmdanefndar.
IPG, ÞS og JGV tóku til máls.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra ítrekar fyrri umsögn sína þar sem hún telur rétt að heimiluð verði stýrð umferð vélrænna ökutækja. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Í aðdraganda fundarins bárust svör frá eiganda og seljanda þar sem kom fram að um ranga afgreiðslu á einingum útveggja var að ræða og því verði útveggir málaðir í gráum lit í samræmi við skilmála skipulagsins og byggingarleyfisins.
Ekki er því lengur óskað eftir aðkomu nefndarinnar. Lagt fram til kynningar
Bókun fundar Lagt fram til kynningar. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Engin breyting frá síðasta fundi. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd tekur undir áhyggjur íbúa og telur að endurskoða þurfi núverandi staðsetningar á hraðahindrunum og hraðamerkingar auk þess að þörf er á að meta tegundir hindrana gagnvart umhverfi sínu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd telur réttast í þeirri stöðu sem komin er upp að áform Barna- og fölskyldustofu um að breyta núverandi notkun skrifstofuhúsnæðis í meðferðarheimili fyrir ungmenni verði grenndarkynnt skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur umrædd áform í fullu samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika byggðar í þegar byggðu hverfi utan þéttbýlis. Nefndin telur að kynning skuli send íbúum við skilgreinda íbúðagötu í Gunnarsholti ásamt Landi og Skógi. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til deiliskipulagsgerðar. Nefndin leggur til að lýsingin skuli kynnt skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og verði kynnt á heimasíðu sveitarfelagsins ásamt í skipulagsgátt, undir sínu máli. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin leggur til að lýsingin skuli kynnt skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og verði kynnt á heimasíðu sveitarfélagsins ásamt í skipulagsgátt, undir sínu máli. Nefndin áréttar að eldra deiliskipulag fellur úr gildi við gildistöku þess nýja. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd vísar jafnframt til fyrri bókana vegna sama máls og vill árétta að ef uppi er ágreiningur um eignarrétt að viðkomandi lóðum þá þurfa aðilar að leysa hann sín á milli. Sveitarfélagið getur ekki verið úrskurðaraðili í þeim ágreiningi.
Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði endurauglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Eggert Valur víkur sæti við meðferð og afgreiðslu málsins.
Samþykkt samhljóða.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að veitt verði heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Nefndin telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin er einungis gerð til að samræmast áður samþykktum lóðamörkum.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og telur jafnframt ekki ástæðu til grenndarkynningar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fallið verði frá grenndarkynningu þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en sveitarfélagið sjálft. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða þar sem breytingin víkur að engu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
Nefndin leggur því til að farið verði um málsmeðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fallið verði frá grenndarkynningu þar sem tillagan hefur engin áhrif á aðra en sveitarfélagið sjálft. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu. Nefndin leggur til að tillagan verði auglýst að nýju þar sem of langur tími hefur liðið frá síðustu auglýsingu. Tillagan skuli því endurauglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Áður en af auglýsingu verður þarf að samræma mörk í deiliskipulagi Rangárflata og fyrir Gaddstaði íbúðasvæði. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Dregist hefur að afgreiða tillöguna þar sem ekki náðist samkomulag um tengingar inná spilduna frá Hagabraut. Með samþykkt Vegagerðarinnar er litið svo á að samkomulag liggi fyrir.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Dregist hefur að afgreiða tillöguna þar sem ekki náðist samkomulag um tengingar inná spilduna frá Hagabraut. Með samþykkt Vegagerðarinnar er litið svo á að samkomulag liggi fyrir.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd fjallaði um fram komnar umsagnir við kynningu á lýsingu skipulagsáforma vegna breytinga á landnotkun og fór yfir viðbrögð við þeim. Nefndin gerir engar athugasemdir við að lögð verði fram tillaga að breytingum á landnotkun í aðalskipulagi auk þess að tillaga að deiliskipulagi verði lögð fram og auglýst samhliða. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir tilkynningu matsaðila. Niðurstaða nefndarinnar er að endurnýjun á rafstreng við Laufafell sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif, sbr. viðmið í 2. viðauka laga nr. 106/2000. Því skuli framkvæmdin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Nefndin vill ítreka að ný lega rafstrengsins skuli færð inná deiliskipulag þegar rétt lega hans liggur fyrir. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 47 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
15.Fjölmenningarráð - 3
Málsnúmer 2507006FVakta málsnúmer
16.Stjórn Suðurlandsvegar 1-3 hf - 28
Málsnúmer 2507009FVakta málsnúmer
17.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 248
Málsnúmer 2507002FVakta málsnúmer
18.Stjórnarfundir Lundar 2025
Málsnúmer 2501037Vakta málsnúmer
19.Fundargerðir stjórnar 2025 - Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum
Málsnúmer 2501075Vakta málsnúmer
20.Landsnet. Rafmagnsbilun
21.Hvammsvirkjun. Umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2409043Vakta málsnúmer
22.Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands 2025
Málsnúmer 2506067Vakta málsnúmer
23.Dansleikur á Töðugjöldum - Umsagnarbeiðni vegna tækifærisleyfis
Málsnúmer 2507060Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 09:20.
Það var samþykkt samhljóða og aðrir fundarliðir færast til í samræmi.