Málsnúmer 2508005F
Vakta málsnúmerByggðarráð Rangárþings ytra - 41. fundur - 27.08.2025
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagðar leiðréttingar og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagðar leiðréttingar og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að erindið verði grenndarkynnt nærliggjandi lóðarhöfum á svæðinu. Þar sem staðsetning mastursins er hugsuð í miðri skipulagðri byggð tekur nefndin réttast að umsækjandi geri nauðsynlegar breytingar á gildandi deiliskipulagi þar sem mastrið verði sett inn. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við að aðkoma breytist frá því sem fyrir liggur. Nefndin leggur til að aðkoman verði tekin inn á núverandi veg u.þ.b. 200 metrum frá lóðamörkum en leggist ofan / austan lóðarinnar, inn að miðju hennar og þar inn. Allur stofnkostnaður og viðhald leggist á umsækjanda. Nefndin setur það sem skilyrði að ef umrædd tenging geti nýst öðrum lóðarhöfum í framtíðinni verði það heimilt. Jafnframt áskilur sveitarfélagið sér rétt til að endurskoða legu vegarins ef sveitarfélagið kýs að nýta landið til annarra nota en er í dag. Nefndin leggur til að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi á kostnað umsækjanda þar sem ný aðkoma verði skilgreind. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd felur skipulagsfulltrúa að útbúa yfirlitskort af öllum leiðum og setja inn á kortasjánna. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Hafin er vinna við að kortleggja allar hraðahindranir og mun sú samantekt verða lögð fram á næsta fundi nefndarinnar með það fyrir augum að hvert tilfelli verði metið í samræmi við leiðbeiningar Vegagerðarinnar þar um.
Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd hvetur framkvæmdasvið sveitarfélagsins til að ganga frá þeim málum sem þegar hafa verið ákveðin á vettvangi stjórnsýslunnar Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt og málið verði tekið til umræðu í framkvæmda- og eignanefnd.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Borið hefur á að skilti hafi verið sett upp í þéttbýlinu á Hellu án þess að sótt hafi verið um slíkt. Byggingarfulltrúa verði gert að bregðast við því. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd tekur fyrir kvörtun sem borist hefur vegna aksturs ökutækja á göngu- og hjólastíg sem liggur yfir hólinn við enda Freyvangs/ofan Heiðvangs í átt að Hesthúsvegi/Eyjasandi. Í kvörtuninni kemur fram að gangandi vegfarandi hafi mætt þar jeppabifreið á akstri með kerru, sem skapaði hættu fyrir gangandi vegfarendur. Ökumaður bifreiðarinnar, virtist vera að stytta sér leið frá Freyvangi með rusl á kerru á leið sinni að grenndargámasvæði.
Umferð ökutækja á göngu- og hjólastígum er bönnuð samkvæmt umferðarlögum nr. 77/2019 og slík háttsemi getur varðað sektum. Nefndin tekur málið alvarlega og leggur áherslu á að stígurinn var upphaflega lagður með það að markmiði að bæta öryggi barna á leið sinni frá íbúðahverfinu í Ölduhverfi til og frá grunnskóla Hellu og íþróttasvæði þorpsins.
Tillögur nefndarinnar
Nefndin telur brýnt að gripið verði til eftirfarandi aðgerða til að tryggja öryggi vegfarenda á svæðinu:
1.
Stígurinn verði kláraður að Heiðvangi með malbikun í samræmi við umsókn og gögn sem fylgdu framkvæmdaleyfi göngustígarins fyrir um ári síðan. Þjónustumiðstöð sveitarfélagsins annist það sérstaklega fyrir haustið og verði það framkvæmt meðfram öðrum malbikunarframkvæmdum sem fyrirhugaðar eru í september.
2.
Bætt verði við lýsingu við stíginn.
3.
Öryggisbætur á stígnum verði gerðar, þar á meðal frágangur á grófri möl meðfram stígnum, og gripið verði til aðgerða gegn hálku og vatnssöfnun á bröttum og hlykkjóttum köflum.
4.
Settar verði viðeigandi umferðarmerkingar sem árétta að stígurinn er eingöngu ætlaður gangandi og hjólandi vegfarendum.
5.
Koma verði fyrir hindrunum sem tryggja að bifreiðar geti ekki farið þessa leið.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur ríka áherslu á að sveitarfélagið bregðist við framangreindum atriðum til að tryggja öryggi allra vegfarenda, sérstaklega barna.
Bókun fundar Lagt til að vísa málinu til framkvæmda- og eignanefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Skipulags- og umferðarnefnd telur sýnd staðsetning henta mun betur en sú fyrri. Nefndin leggur áherslu á að Flugmálafélag Íslands skili til sveitarfélagsins þeim upplýsingum sem þeir voru beðnir um á fundi 24. mars 2025, sem taka eiga á framtíðarsýn flugvallarins á Hellu. Lagt fram til kynningar.
Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Farið var yfir áherslur og möguleika til að gera Grashagann að eftirsóknarverðum kosti fyrir ferðaþjónustu. Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið en telur það ekki samræmast fjárhagsáætlun viðkomandi sviðs og leggur til að ákvörðun bíði næstu fjárhagsáætlunar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 49 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 46. fundur - 10.09.2025
Fundargerð skipulags- og umferðarnefndar lögð fram og staðfest.