Málsnúmer 2509012F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 47. fundur - 08.10.2025
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.
-
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 17 Umhverfis,- hálendis- og samgöngunefnd felur formanni ásamt forstöðumanni þjónustumiðstöðvar að yfirfara og meta það sem eftir stendur árs. Nefndin telur brýnt að skoðað skuli ástand brúarinnar við Reynifell og leggur til við sveitarstjórn að þrýst verði á um aðkomu Vegagerðinnar að endurbótum á brúnni, þar sem hlutverk hennar er afar mikilvægt sem flóttaleið komi til náttúruhamfara. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar verði vísað til framkvæmda- og eignanefndar.
Samþykkt samhljóða. -
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 17 Umhverfis-, hálendis og samgöngunefnd heimilar fyrir sitt leyti að keppnin fari fram á vegum sem tilgreindir eru í umsókn innan sveitarfélagsins í ágúst 2026. Vakin er athygli á því að leita þarf umsagnar fleiri aðila þar sem ekki allir vegir tilheyra sveitarfélaginu Rangárþingi ytra. Aðrir aðilar eru m.a. Landsvirkjun og Vegagerðin.
Nefndin setur eftirfarandi skilyrði:
1. Forsvarsmenn keppninnar gæti þess að fylgt verði merktum leiðum og ekki sé ekið utan vega.
2. Keppnishaldari upplýsi þá aðila sem hafa með skipulagðar ferðir á svæðinu að gera vegna keppninnar. Þá sérstaklega rekstraraðila í Hrauneyjum, Landmannahelli og Áfangagili sem og aðra ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
3. Mönnuð vöktun verði á öllum lokunarpóstum.
4. Þess sé gætt að allur frágangur verði til fyrirmyndar. Þeir vegir sem farið verði um verði heflaðir á kostnað keppnishaldara strax að keppni lokinni. Allar merkingar og allt rusl verði fjarlægt af hálfu keppnishaldara.
5. Keppnishaldari tryggi að almenningur á svæðinu verði ekki fyrir óþarfa óþægindum á meðan kynningarakstur fer fram fyrir keppni.
Nefndin leggur til að svæðið verði tekið út að keppni lokinni og tekið verði gjald fyrir útlögðum kostnaði af hálfu sveitarfélagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.