Málsnúmer 2510006
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 53. fundur - 16.10.2025
Neyðarlínan áformar að skipta út núverandi rafstreng frá fjarskiptastöðinni við Laufafell. Lögð er fram tillaga að breytingu á gildandi deiliskipulagi sem birt var í B-deild stjórnartíðinda 5.6.2014 þar sem ný leið er skilgreind.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 57. fundur - 08.01.2026
Neyðarlínan áformar að skipta út núverandi rafstreng frá fjarskiptastöðinni við Laufafell. Lögð er fram tillaga að breytingu á gildandi deiliskipulagi sem birt var í B-deild stjórnartíðinda 5.6.2014 þar sem ný leið er skilgreind. Tillagan var auglýst frá og með 30.10.2025 til og með 17.12.2025. Umsagnir bárust frá Mílu, Vegagerðinni, Landsneti, Veitum, Rarik, Heilbrigðseftirliti Suðurlands og Brunavörnum Rangárvallasýslu sem gerðu engar athugasemdir; frá Náttúruverndarstofnun sem telur mikilvægt að fjallað verði um svæðin á náttúruminjaskrá í tillögunni og Náttúrufræðistofnun sem bendir á að ganga verði vel frá öll umhverfi við lok framkvæmdar þar sem um sé að ræða afar viðkvæmt svæði á C-hluta Náttúruminjaskrár.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.