Málsnúmer 2605039

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umferðarnefnd - 67. fundur - 21.05.2026

Eigandi lands óskar eftir heimild til að leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir land sitt. Áformað er að byggja hús, geymslu/gestahús og skemmu á landinu. Áfram verður landbúnaður, eða einhvers konar ræktun. Skipulagssvæðið mun ná yfir hluta af landinu og mun aðkoman vera af vegslóða sem liggur meðfram Hólsá. Gerðir verða tveir byggingarreitir, annar fyrir allt að 150 m² hús og allt að 50 m² geymslu/gestahús og hinn byggingarreiturinn fyrir allt að 400 m² skemmu. Skipulagsgögn frá Eflu dags. 18.5.2026.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 06.08.2026

Eigandi lands hefur lagt fram tillögu að deiliskipulagi fyrir land sitt. Áformað er að byggja hús, geymslu/gestahús og skemmu á landinu. Áfram verður landbúnaður, eða einhvers konar ræktun. Skipulagssvæðið mun ná yfir hluta af landinu og mun aðkoman vera af vegslóða sem liggur meðfram Hólsá. Gerðir verða tveir byggingarreitir, annar fyrir allt að 150 m² hús og allt að 50 m² geymslu/gestahús og hinn byggingarreiturinn fyrir allt að 400 m² skemmu. Tillagan var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Skoða má umsagnir undir máli nr. 677/2026 í skipulagsgátt. Umsagnir bárust frá alls 7 umsagnaraðilum en ekki var um beinar athugasemdir að ræða, heldur frekar ábendingar til betri leiðar.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.