Málsnúmer 2605049
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 1. fundur - 04.06.2026
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi til að setja ræsi undir Námskvísl á vað að Landmannalaugum. Fyrir liggur leyfi frá Fiskistofu, umsagnir frá Hafrannsóknarstofnun, Náttúruverndarstofnun og Náttúrufræðistofnun. Skipulagsstofnun telur framkvæmdina ekki falla undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og sé því ekki tilkynningaskyld.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis til endurbóta á vaðinu í Námskvísl sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt enda hefur framkvæmdin engin áhrif á skipulagsáætlanir fyrir Landmannalaugar. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 1. fundur - 04.08.2026
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi til að setja ræsi undir Námskvísl á vað að Landmannalaugum.
Lagt fram til kynningar