Málsnúmer 2606003
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 1. fundur - 04.06.2026
Landeigandi óskar eftir framkvæmdaleyfi til vegagerðar í skipulögðu íbúðasvæði innan jarðar sinnar. Vegurinn tengir allt að 16 íbúðalóðir auk þjónustulóðar og aðkoma verður af Þykkvabæjarvegi um svokallaða Ástarbraut.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að útgáfa framkvæmdaleyfis til vegagerðar í Norður-Nýjabæ sbr. framlagðan uppdrátt og önnur gögn málsins verði samþykkt enda er framkvæmdin í samræmi við skipulagsáætlanir. Nefndin leggur til að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út leyfið og hafa eftirlit með framkvæmdunum.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 1. fundur - 04.08.2026
Landeigandi óskar eftir framkvæmdaleyfi til vegagerðar í skipulögðu íbúðasvæði innan jarðar sinnar. Vegurinn tengir allt að 16 íbúðalóðir auk þjónustulóðar og aðkoma verður af Þykkvabæjarvegi um svokallaða Ástarbraut.
Lagt fram til kynningar