Málsnúmer 2608062
Vakta málsnúmerOddi bs - 5. fundur - 05.10.2026
Stjórn Odda bs. samþykkir að breyta ákvörðun sinni frá 10. september 2026 um skráningardaga í leikskólum.
Allir starfsdagar á tímabilinu 21.-31. desember verði skráningardagar og þurfi foreldrar að sækja um vistun til leikskólastjóra. Sérstakt gjald samkvæmt gjaldskrá verði eingöngu innheimt fyrir vistun á skráningardögum milli jóla og nýárs. Aðrir skráningardagar verði án sérstaks viðbótargjalds.
Leikskólinn á Laugalandi verði opinn fyrir skráða vistun á öllum skráningardögum fyrir jól. Á öðrum skráningardögum verði leikskólinn lokaður en foreldrum standi til boða að skrá börn sín í vistun á Heklukoti.
Ítrekað er mikilvægi þess að skrá einungis börn sem sannarlega munu mæta.
Samþykkt samhljóða.

Áður hafði verið ákveðið að Leikskólinn á Laugalandi væri lokaður alla skráningardaga en öllum boðið að skrá börn sín á Heklukot þessa daga. Stjórn samþykkir að í ár verði Leikskólinn á Laugalandi opinn fyrir skráningar þrjá daga fyrir jól.
Samþykkt samhljóða.