258. fundur 14. september 2026 kl. 08:15 - 10:00 Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Eggert Valur Guðmundsson formaður
  • Kristín Hreinsdóttir aðalmaður
  • Andri Már Óskarsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Haukur Þórðarson
  • Eiríkur Vilhelm Sigurðarson sveitarstjóri
  • Anton Kári Halldórsson sveitarstjóri
  • Hulda Karlsdóttir embættismaður
Fundargerð ritaði: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson Sveitarstjóri

1.Rekstraryfirlit 2026 - SOR

Málsnúmer 2603052Vakta málsnúmer

Hulda Karlsdóttir fór yfir rekstraryfirlit janúar - júlí 2026 ásamt stöðu fjárfestingaáætlunar.

Lagt fram til kynningar.

2.Ýmsar upplýsingar úr daglegum rekstri 2026

Málsnúmer 2601010Vakta málsnúmer

Framkvæmdarstjóri fór yfir ýmiss rekstrarmál.

Lagt er til að auglýst verði eftir 50%-70% starfsmanni í móttöku og skráningu á Sorpstöðinni Strönd. Framkvæmdarstjóra falið að vinna verkefnið áfram.

Samþykkt samhljóða.

3.Botnþétting - urðun dýrahræja

Málsnúmer 2508019Vakta málsnúmer

Lögð fram kostnaðar- og verkáætlun vegna fullnaðarfrágangs á framkvæmdum við urðunargryfju.

Stjórn samþykkir að fela framkvæmdarstjóra að ljúka verkefninu fyrir áramót. Gert er ráð fyrir framkvæmdinni innan fjárfestingaráætlunar ársins.

Samþykkt samhljóða.

4.Upphitun skemmu á Strönd

Málsnúmer 2609007Vakta málsnúmer

Lögð fram kostnaðaráætlun vegna upphitunar á skemmu á Strönd.

Stjórn samþykkir að fela framkvæmdarstjóra að ljúka verkefninu fyrir áramót. Gert er ráð fyrir framkvæmdinni innan fjárfestingaráætlunar ársins.

Samþykkt samhljóða.

5.Aukaaðalfundur Sorpstöðvar Suðurlands

Málsnúmer 2606040Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.