Á hreppsnefndarfundi 11.október 2012 var samþykkt að nýta sér heimildir i lögum með að skipa ekki í byggingarnefnd en fela Skipulags-og byggingarfulltrúa fullnaðarafgreiðslu á byggingarmálum þess í stað sbr. bókun hreppsnefndar:

Skipulags- og byggingarfulltrúa er falin fullnaðarafgreiðsla erinda á sviði byggingarmála sem eru í samræmi við viðeigandi skipulag. Ef vafi leikur á hvort umsókn samræmist skipulagi tiltekins svæðis þá verður erindið lagt fyrir skipulagsnefnd. Mánaðarlega verða afgreiðslur byggingarfulltrúa teknar saman og kynntar fulltrúum skipulagsnefndar.

Stefán Short er byggingarfulltrúi Rangárþings ytra.  Starfsstöð hans er á skrifstofu sveitarfélagsins við Suðurlandsveg 1-3 á Hellu.

Viðtals- og símatímar skipulags- og byggingarfulltrúa og annarra starfsmanna hans er alla virka daga – nema föstudaga – milli kl. 9.00 og 12.00.

Sími á skrifstofu er 488 7000 og tölvupóstfang byggingarfulltrúa er stefanshort@ry.is.