Stefán Short er byggingafulltrúi Rangárþings ytra. Starfsstöð hans er á skrifstofu sveitarfélagsins við Suðurlandsveg 1-3 á Hellu.
Tölvupóstfang hans er stefanshort(hjá)ry.is.
Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa er:
Ingibjörg Gunnarsdóttir sem aðstoðar við vinnslu landskiptamála.
Ingibjorg(hjá)ry.is
AFGREIÐSLU- OG SÍMATÍMI BYGGINGAFULLTRÚA
Afgreiðsla embættisins er opin alla virka daga milli kl. 9.00 og 15.00 nema föstudaga milli 9.00 og 12.00 og er í samræmi við opnunartíma á skrifstofu sveitarfélagsins.
Viðtals- og símatímar byggingarfulltrúa og annarra starfsmanna hans eru alla virka daga – nema föstudaga – milli kl. 9.00 og 12.00.
Mælst er til þess að fundir séu bókaðir með fyrirvara með því að hringja í síma 488-7000 á símatíma.
Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa eru að jafnaði alla föstudaga í mánuði
Fullnægjandi gögn þurfa að hafa borist í síðasta lagi í lok fimmtudags í vikunni fyrir fund til að mál verði tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa.
Hægt er að skila útprentuðum gögnum s.s. skipulagsuppdráttum, landskiptauppdráttum og lóðarblöðum á skrifstofu embættisins að Suðurlandsvegi 1-3 á Hellu á opnunartíma.
Að öðrum kosti skulu gögn berast í tölvupósti á netfangið ry@ry.is eða stefanshort@ry.is en í gegnum rafræna byggingargátt sveitarfélagsins ef um byggingarmál er að ræða.
--
Meðferð byggingarmála fer eftir Byggingarreglugerð nr. 112/2012 og Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
Umsóknir um byggingarheimild / byggingarleyfi og framkvæmdaleyfi eða tilkynningar um framkvæmdir undanþegnar byggingarheimild / byggingarleyfi skulu lagðar inn hjá skipulags- og byggingarfulltrúa sem fer yfir umsóknir og athugar hvort með fylgi nauðsynleg gögn. Skipulags- og byggingarfulltrúi afgreiðir umsóknir sem uppfylla skilyrði skipulagslaga og reglugerða. Ef byggingaráform samræmast ekki skipulagsáætlunum leggur skipulags- og byggingarfulltrúi erindið fyrir Skipulags- og umferðarnefnd. Sveitarstjórn staðfestir afgreiðslur skipulagsnefndar.
Hér eru leiðbeiningar varðandi umsóknar- og skráningarferlið:
Leiðbeiningar vegna framkvæmda háðum byggingarleyfi Framkvæmdir í umfangsflokki 2 og 3
Leiðbeiningar vegna framkvæmda háðum byggingarheimild Framkvæmdir í umfangsflokki 1
Leiðbeiningar vegna tilkynningaskyldra framkvæmda undnanþegnum byggingarheimild eða byggingarleyfi.
Leiðbeiningar vegna eigin framkvæmda undanþegna tilkynningu, byggingarheimildar og byggingarleyfi
Leiðbeiningar vegna umsóknar Eigandi eða aðili á hans vegum sem sækir um
Leiðbeiningar vegna skráningar fagaðila Hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar
-
Byggingarleyfisgjöld eru lögð á samkvæmt gjaldskrá Rangárþings ytra. Sjá gjaldskrána hér