Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF-skjali gildir PDF-skjalið.

PDF-skjalið má nálgast með því að smella hér.

Samþykkt um byggingargjöld í Rangárþingi ytra.

Inngangur.

Samþykkt þessi gildir fyrir gatnagerðargjald, sölu byggingarréttar á lóðum, stofngjald vatnsveitu, stofngjald fráveitu, framkvæmda- og byggingarleyfis/heimildargjöld, þjónustugjöld embættis byggingarfulltrúa og gjöld fyrir skipulagsvinnu.

I. KAFLI - Almennt.

1. gr. - Lagaheimildir.

Af öllum nýbyggingum og viðbyggingum við eldri byggingar, hvort sem eru á eignar- eða leigulóðum, í þéttbýli innan Rangárþings ytra skal greiða gatnagerðargjald til sveitarfélagsins skv. lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006. Einnig skal greiða stofngjald vatnsveitu skv. lögum um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, stofngjald fráveitu skv. lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009, framkvæmdaleyfisgjald skv. skipulagslögum nr. 123/2010 og byggingarleyfisgjald og þjónustugjöld byggingarfulltrúa skv. lögum um mannvirki nr. 160/2010.

2. gr. -Ráðstöfun gjalda.

Tekjum sveitarfélagsins vegna gatnagerðargjalda skal varið til gatnagerðar í sveitarfélaginu og til viðhalds gatna og annarra gatnamannvirkja s.s. til greiðslu kostnaðar við undirbyggingu götu með tilheyrandi lögnum þ.m.t. vegna götulýsingar, við lagningu bundins slitlags og gangstétta, gerð umferðareyja, gangstíga og opinna svæða og gerð annarra gatnamannvirkja.

Tekjum sveitarfélagsins vegna byggingarleyfis-, framkvæmdaleyfis- og þjónustugjalda skal varið til að standa straum af kostnaði sveitarfélagsins við þjónustu skipulags- og byggingarfulltrúa við lóðarhafa og byggingaraðila.

II. KAFLI - Gatnagerðargjald.

3. gr. - Gjaldstofn.

Stofn til álagningar gatnagerðargjalds er fermetrafjöldi byggingar á tiltekinni lóð sem ákveðinn er með eftirfarandi hætti:

  1. Þegar sveitarfélagið úthlutar eða selur lóð eða byggingarrétt á lóð skal leggja á gatnagerðargjald í samræmi við hámarks fermetrafjölda þeirra bygginga sem heimilt er að reisa á viðkomandi lóð samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
  2. Verði ekki lagt á gatnagerðargjald skv. a-lið eða veitt er byggingarleyfi fyrir stærri byggingu en álagning skv. a-lið var upphaflega miðuð við, skal við útgáfu byggingarleyfis leggja á gatnagerðargjald í samræmi við fermetrafjölda þeirrar byggingar sem byggingarleyfi tekur til.

Gatnagerðargjald skal innheimt vegna stækkunar byggingar sem nemur fermetrafjölda stækkunar, sbr. þó 3. og 4. mgr. 3. gr. samþykktarinnar.

Gatnagerðargjald skal innheimt ef reist er ný og stærri bygging í stað annarrar á sömu lóð sem stækkuninni nemur. Gildir þessi regla um byggingar sem samþykkt er byggingarleyfi fyrir allt að fimm árum eftir að leyfi er gefið fyrir niðurrifi byggingar. Að öðrum kosti skal greiða fullt gatnagerðargjald.

Þegar veitt er byggingarleyfi fyrir endurbyggingu, breytingu eða breyttri notkun byggingar þannig að hún færist í hærri gjaldflokk skal greiða gatnagerðargjald af fermetrafjölda viðkomandi húsnæðis sem svarar til mismunar hærri og lægri gjaldflokksins. Lóðarhafi, eða byggingarleyfishafi þar sem það á við, á ekki rétt á endurgreiðslu ef bygging færist í lægri gjaldflokk við slíka breytingu.

4. gr. - Útreikningur gatnagerðargjalds.

Verðgrunnur fyrir gatnagerðargjald er verð fyrir fermetra í vísitöluhúsi fjölbýlis samkvæmt mælingu Hagstofu Íslands frá 20. desember 2021 sem byggir á verðgrunni sem Hagstofa Íslands uppfærir með mældri breytingu vísitölu byggingarkostnaðar í næstliðnum mánuði.

Álagning gatnagerðargjalds er mismunandi vegna bygginga eftir húsgerðum. Álagningin er reiknuð sem ákveðinn hundraðshluti af grunninum og nemur eftirfarandi upphæðum miðað við verðgrunn Hagstofu Íslands í desember 2025 þar sem grunngjaldið nemur 315.409 kr.:

a. Einbýlishús 8,5% 26.810 kr. pr. m²
b. Par-, rað-, tvíbýlis- og keðjuhús 7,5% 23.656 kr. pr. m²
c. Fjölbýlishús 6,0% 18.925 kr. pr. m²
d. Verslunar-, skrifstofu- og þjónustuhús 3,0% 12.616 kr. pr. m²
e. Iðnaðar-, geymslu- og annað atvinnuhúsnæði 3,0% 12.616 kr. pr. m²
f. Aðrar byggingar s.s. gripahús, gróðurhús o.fl. 3,0% 9.462 kr. pr. m²

Fjárhæð gatnagerðargjalds uppfærist 1. janúar ár hvert í samræmi við verðgrunn Hagstofu Íslands fyrir gatnagerðargjald.

5. gr. - Almennar niðurfellingar- og lækkunarheimildir.

Gatnagerðargjald greiðist ekki í eftirfarandi tilvikum af byggingarleyfisskyldum húsum:

  1. Vegna kjallararýmis sem er gluggalaust og aðeins gengt í það innan frá.
  2. Vegna stækkunar íbúðarhúss sem er a.m.k. 15 ára enda nemi stækkunin ekki meira en 30 fermetrum á hverja íbúð á hverju 10 ára tímabili. Tilheyri stækkunin sameign fjöleignarhúss skal meta hana eins og ef um stækkun vegna einnar íbúðar væri að ræða. Ef stækkunin er meiri en 30 fermetrar skal greiða fullt gatnagerðargjald af því sem umfram er.
  3. Vegna svalaskýlis íbúðarhúss 20 m² eða minni. Ef um stærri skýli er að ræða skal greiða gatnagerðargjald af því sem er umfram 20 m² pr. íbúð.
  4. Vegna sameiginlegrar bifreiðageymslu fyrir þrjár eða fleiri bifreiðar.
  5. Vegna óeinangraðs smáhúss minna en 6 m².

6. gr. - Sérstakar heimildir til lækkunar eða niðurfellingar.

Sveitarstjórn er heimilt að lækka eða fella niður gatnagerðargjald af einstökum lóðum í sveitarfélaginu við sérstakar aðstæður, svo sem vegna þéttingar byggðar, atvinnuuppbyggingar, lítillar ásóknar í viðkomandi lóð eða eftirspurnar eftir leiguhúsnæði.

Sveitarstjórn er enn fremur heimilt að lækka eða fella niður gjöld vegna sérhæfðs félagslegs húsnæðis, svo sem sambýla fyrir fatlað fólk, þjónustuíbúða fyrir aldraða og félagslegs leiguhúsnæðis enda sé slíkt húsnæði í eigu stofnana, félagasamtaka eða félaga sem ekki eru rekin í ágóðaskyni. Þinglýsa skal kvöð á umrætt húsnæði um að greiða skuli gatnagerðargjald af því ef það fellur af einhverjum ástæðum ekki lengur undir ákvæði þetta. Stafi það af breyttri notkun, sem er háð samþykki byggingaryfirvalda, fellur gjaldið í gjalddaga við veitingu byggingarleyfis en að öðrum kosti er gjalddaginn 30 dögum eftir að forsendur lækkunar eða niðurfellingar gatnagerðargjalds eru ekki lengur fyrir hendi, svo sem vegna sölu húsnæðis, og eindagi einum mánuði síðar.

7. gr. - Áfangaskipti framkvæmda.

Í þeim tilvikum að lóðarhafi hyggst byggja hús, annað en íbúðarhús, í áföngum, getur sveitarstjórn heimilað slíka áfangaskiptingu og þá skulu gjöld samkvæmt samþykkt þessari hverju sinni vera skv. gjaldskrá sem í gildi er þegar byggingarleyfi hvers áfanga er útgefið.

Umsækjandi skal taka það sérstaklega fram í lóðarumsókn að hann ætli að reisa fyrirhugað mannvirki í áföngum og hvenær hann hyggst hefja framkvæmdir á sérhverjum byggingaráfanga. Verði heimiluð áfangaskipti falla áætluð gjöld í gjalddaga við upphaf hvers byggingaráfanga í samræmi við áform lóðarhafa við úthlutun lóðarinnar. Þinglýsa skal slíkri áfangaskiptingu sem kvöð á lóðina.

III. KAFLI - Byggingarréttur.

8. gr. - Sala á byggingarrétti.

Sveitarstjórn er heimilt að selja eða leita eftir tilboðum í byggingarrétt á lóðum í Rangárþingi ytra. Söluverð byggingarréttar skal vera ákveðið hlutfall af gatnagerðargjaldi viðkomandi lóðar eins og það er reiknað út skv. 3. gr. samþykktar þessarar. Sveitarstjórn ákveður framangreint hlutfall, sem þó skal að jafnaði ekki vera lægra en 0,3 og ekki hærra en 0,7. Sveitarstjórn getur með sérstakri samþykkt ákveðið að hlutfallið skuli vera hærra en 0,7 sé verðmæti byggingarréttar viðkomandi lóðar óvenju mikið að hennar mati. Leiti sveitarstjórn eftir tilboðum í byggingarrétt lóðar þá skal tilgreina í tilboðsgögnum bæði lágmarks- og hámarksverð fyrir byggingarrétt hverrar lóðar.

IV. KAFLI - Staðfestingargjald.

 

9. gr. - Greiðsla staðfestingargjalds.

Við lóðarúthlutun, sölu lóðar eða byggingarréttar skv. a-lið 1. mgr. 3. gr. skal lóðarhafi greiða óafturkræft staðfestingargjald sem nemur eftirfarandi upphæðum:

1. Einbýlishús 250.000 kr.
2. Par-, rað-, tvíbýlis- og keðjuhús 300.000 kr.
3. Fjölbýlishús 300.000 kr.
4. Hótel, verslunar-, skrifstofu- og þjónustuhúsnæði 300.000 kr.
5. Iðnaðar-, geymslu- og annað atvinnuhúsnæði 300.000 kr.
6. Hesthús og önnur gripahús í þéttbýli 150.000 kr.

Framangreindar fjárhæðir staðfestingargjalds skulu verðbætast árlega miðað við byggingarvísitölu. Grunnviðmiðið er byggingarvísitalan í nóvember 2025, 126,4.

V. KAFLI - Stofngjöld.

10. gr. - Stofngjald vatnsveitu.

Varðandi stofngjald vatnsveitu er vísað til gjaldskrár Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps nr. 1797/2024 sem samþykkt var af sveitarstjórn Rangárþings ytra, 11. desember 2024.

11. gr. - Stofngjald fráveitu.

Varðandi stofngjald fráveitu er vísað til gjaldskrár fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa í Rangárþingi ytra nr. 1796/2024, sem samþykkt var af sveitarstjórn Rangárþings ytra, 11. desember 2024.

VI. KAFLI - Leyfis- og þjónustugjöld.

12. gr. - Byggingarleyfis- og byggingarheimildargjald.

Samkvæmt samþykkt þessari skal greiða byggingarleyfis- og heimildargjald fyrir útgáfu á byggingarleyfi og -heimild sem byggingarfulltrúi hefur veitt.

Innifalið í byggingarleyfis- og heimildargjaldi er afgreiðsla og samþykkt byggingaráforma, útgáfa byggingarleyfis- eða heimildar, ein yfirferð aðaluppdrátta, yfirferð séruppdrátta, útmæling og hæðarsetning fyrir uppslætti og útsetning lóðar, lögbundið byggingareftirlit og úttektir, stöðuskoðanir og útgáfa lokaúttektarvottorðs.

Byggingarleyfis- og heimildargjald er reiknað sem ákveðinn hundraðshluti af verðgrunni Hagstofu Íslands fyrir gatnagerðargjald. Gjaldið nemur eftirfarandi upphæðum miðað við 315.409 kr. grunngjald í desember 2025:

Upphæð byggingarleyfisgjalds skal vera:

a. Af íbúðarhúsnæði:    
  Einbýlishús pr. lóð 100% 315.409 kr.
  Par-, rað-, tvíbýlis- og keðjuhús pr. lóð 100% 315.409 kr.
  Fjölbýlishús pr. íbúð 50% 157.704 kr.
b. Af atvinnu- og þjónustuhúsum og stofnunum:    
  Gólfflötur allt að 500 m² 100% 315.409 kr.
  Gólfflötur á bilinu 500-1.000 m² 200% 630.818 kr.
  Gólfflötur á bilinu 1.000-2.000 m² 300% 946.227 kr.
  Gólfflötur á bilinu 2.000-3.000 m² 400% 1.261.636 kr.
  Gólfflötur á bilinu 3.000-4.000 m² 500% 1.577.045 kr.
  Gólfflötur yfir 4.000 m² 600% 1.892.454 kr.
c. Af öðrum húsum og hvers konar viðbyggingum, bílgeymslum og gripahúsum:    
  Gólfflötur allt að 40 m² 40% 126.164 kr.
  Gólfflötur 40-100 m² 60% 189.245 kr.
  Af byggingum í c-lið stærri en 100 m² greiðist fullt byggingarleyfisgjald, sbr. a- og b-lið    
d. Annað:    
  Tilkynningaskyldar framkvæmdir skv. gr. 2.3.6 í byggingarreglugerð, undanþegnar byggingarleyfi 30% 94.623 kr.
  Hús flutt á tilbúnar undirstöður 40% 126.164 kr.
  Hús fjarlægt til flutnings eða vegna niðurrifs 20% 63.082 kr.
  Breyting á notkun húsnæðis 20% 63.082 kr.
  Af minniháttar breytingum á útliti og innra skipulagi húsa án stækkunar og endurnýjun utanhússklæðningar 10% 31.541 kr.
  Af meiriháttar breytingum á útliti- og innra skipulagi húsa án stækkunar, s.s. meiri háttar breyting á veggjum, lögnum o.fl. 50% 157.704 kr.
  Skilti 20% 63.082 kr.

Að auki skal greiða móttöku- og skráningargjald við framlagningu umsóknar um slíkt leyfi/heimild sem ákvarðast með eftirfarandi hætti:

  Móttöku- og skráningargjald 8% 25.233 kr.

Fjárhæðir gjalda skv. ákvæði þessu uppfærast 1. janúar ár hvert í samræmi við verðgrunn Hagstofu Íslands fyrir gatnagerðargjald.

13. gr. - Framkvæmdaleyfisgjald.

Samkvæmt samþykkt þessari skal greiða framkvæmdaleyfisgjald fyrir útgáfu á framkvæmdaleyfi sem sveitarstjórn hefur veitt. Skipulagsfulltrúi sér um útgáfu þess.

Sveitarstjórn ákveður upphæð framkvæmdaleyfisgjalds fyrir sérhverja leyfisskylda framkvæmd og skal upphæðin nema áætluðum kostnaði sveitarfélagsins vegna útgáfu og undirbúnings leyfisins og eftirlits.

Framkvæmdaleyfisgjald er reiknað sem ákveðinn hundraðshluti af verðgrunni Hagstofu Íslands fyrir gatnagerðargjald. Gjaldið nemur eftirfarandi upphæðum miðað við 315.409 kr. grunngjald í desember 2025:

a. Af minniháttar framkvæmdum 10% 31.541 kr.
b. Af framkvæmdum skv. 1. og 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 viðmiðunargjald 50% 157.704 kr.
c. Af öðrum og stærri framkvæmdum allt að 0,75% af áætluðum framkvæmdakostnaði

Að auki skal greiða móttöku- og skráningargjald við framlagningu umsóknar um slíkt leyfi sem ákvarðast með eftirfarandi hætti:

  Móttöku- og skráningargjald 8% 25.233 kr.

Fjárhæðir gjalda samkvæmt ákvæði þessu uppfærast 1. janúar ár hvert í samræmi við verðgrunn Hagstofu Íslands fyrir gatnagerðargjald.

14. gr. - Þjónustu- og leyfisgjöld byggingarfulltrúa.

Greiða skal eftirtalin þjónustu- og leyfisgjöld fyrir þjónustu sem embætti byggingarfulltrúa veitir. Þjónustu- og leyfisgjöld byggingarfulltrúa eru reiknuð sem ákveðinn hundraðshluti af verðgrunni Hagstofu Íslands fyrir gatnagerðargjald. Gjaldið nemur eftirfarandi upphæðum miðað við 315.409 kr. grunngjald í desember 2025:

Yfirferð séruppdrátta pr. stk. 1% 3.154 kr.
Hver endurskoðun aðaluppdrátta 5% 15.770 kr.
Afgreiðslugjald og endurnýjun leyfis án breytinga 8% 25.233 kr.
Aukavottorð um byggingarstig og stöðuúttekt 10% 31.541 kr.
Eignaskiptayfirlýsingar, hver umfjöllun 15% 47.311 kr.
Fyrir breytingu á lóðarsamningi 30% 94.623 kr.
Útkall byggingarfulltrúa að óþörfu 10% 31.541 kr.
Stöðuleyfi 15% 47.311 kr.
Fyrir hverja aukaútsetningu lóðar/húss; pr. mælingu 25% 78.852 kr.
Staðbundin viðurkenning iðnmeistara 5% 15.770 kr.
Ljósritun A4, pr. eintak 0,05% 158 kr.
Ljósritun A3, pr. eintak 0,1% 315 kr.
Ljósritun A2, pr. eintak 0,5% 1.577 kr.
Ljósritun A1, pr. eintak 1% 3.154 kr.

Gjöldin uppfærast 1. janúar ár hvert í samræmi við verðgrunn Hagstofu Íslands fyrir gatnagerðargjald.

15. gr. - Þjónustugjöld vegna skipulagsvinnu.

Samkvæmt samþykkt þessari skal greiða þjónustugjald fyrir skipulagsvinnu skv. lögum nr. 123/2010 eins og hér greinir. Innifalið er umsýsla og kostnaður við auglýsingar. Fyrir breytingar á samþykktu deiliskipulagi ber viðkomandi hagsmunaaðili allan kostnað af breytingunum, þó að undanskildum auglýsingakostnaði. Gjöld vegna þjónustugjalda vegna skipulagsvinnu eru reiknuð sem ákveðinn hundraðshluti af verðgrunni Hagstofu Íslands fyrir gatnagerðargjald og nema eftirfarandi upphæðum miðað við grunngjaldið 315.409 kr. í desember 2025:

Afgreiðslugjald 8% 25.233 kr.
Umfangslítil grenndarkynning vegna byggingarleyfis 10% 31.541 kr.
Almenn grenndarkynning vegna byggingarleyfis 30% 94.623 kr.
Aðalskipulagsbreyting skv. reikningi frá ráðgjafa *    
Aðalskipulagsbreyting skv. 1. mgr. 36. gr. 60% 189.245 kr.
Óveruleg aðalskipulagsbreyting skv. 2. mgr. 36. gr. 10% 31.541 kr.
Grenndarkynning vegna breytingar á deiliskipulagi 15% 47.311 kr.
Óveruleg breyting deiliskipulags 20% 63.081 kr.
Deiliskipulag skv. 40. og 41. gr. 50% 157.704 kr.
Stofnun lóða í Landskrá fasteigna skv. 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, án grenndarkynningar, grunngjald, hver lóð 10% 31.541 kr.
Landnúmer umfram eitt (pr. lóð) 5% 15.770 kr.
Breyting á skráningu í Landskrá fasteigna 5% 15.770 kr.
Ljósritun A4, pr. eintak 0,05% 158 kr.
Ljósritun A3, pr. eintak 0,1% 315 kr.
Ljósritun A2, pr. eintak 0,5% 1.577 kr.
Ljósritun A1, pr. eintak 1,0% 3.154 kr.

* Reikningur ráðgjafa er sendur beint frá sveitarfélaginu nema aðili breytingarinnar óski þess að greiða án aðkomu sveitarfélagsins og skal það þá koma fram strax í upphafi samtals.

Gjöldin uppfærast 1. janúar ár hvert í samræmi við verðgrunn Hagstofu Íslands fyrir gatnagerðargjald.

 

VII. KAFLI - Greiðsluskilmálar.

 

16. gr. - Greiðsla gjalda.

Gatnagerðargjald skv. II. kafla, gjald fyrir byggingarrétt skv. III. kafla og staðfestingargjald, skv. IV. kafla samþykktarinnar, falla í gjalddaga við úthlutun lóðar eða sölu byggingarréttar sem er í eigu Rangárþings ytra eða Rangárþing ytra hefur ráðstöfunarrétt á. Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.

Heimilt er að veita vaxtareiknaðan greiðslufrest á greiðslu hluta gatnagerðargjalds og hluta gjalds vegna sölu byggingarréttar til allt að tveggja ára með mánaðarlegum afborgunum eða samkvæmt sérstakri samþykkt sem sveitarstjórn setur. Vextir skulu miðast við almenna óverðtryggða skuldabréfavexti viðskiptabanka á hverjum tíma.

Staðfestingargjald skv. 9. gr. samþykktarinnar skal ávallt greitt innan 30 daga eftir gjalddaga og er það óafturkræft.

Gjöld vegna byggingar- og framkvæmdaleyfis/heimildar skv. 12. og 13. gr. samþykktarinnar skal staðgreiða fyrir veitingu leyfis eða heimildar. Þjónustu- og leyfisgjöld embættis byggingarfulltrúa skv. 14. gr. samþykktarinnar falla í gjalddaga við útgáfu reiknings fyrir veitta þjónustu. Gjöld vegna skipulagsvinnu skv. 15. gr. samþykktarinnar skal greiða áður en gildistaka skipulags er auglýst.

17. gr. - Vanskil og innheimta gjalda.

Gjöld samkvæmt samþykkt þessari bera dráttarvexti samkvæmt ákvæðum laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga.

Gatnagerðargjald skv. II. kafla samþykktarinnar, ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði, er tryggt lögveðsrétti í viðkomandi fasteign með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði í tvö ár frá gjalddaga. Gatnagerðargjald er aðfararhæft án undangengins dóms, réttarsáttar eða stjórnvaldsúrskurðar.

Leyfis- og þjónustugjöld byggingarfulltrúa skv. 12. og 14. gr. samþykktarinnar, ásamt áföllnum vöxtum og kostnaði, eru tryggð lögveðsrétti í viðkomandi fasteign eða lóð með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Gjöldin má innheimta með fjárnámi án undangengins dóms, réttarsáttar eða stjórnvaldsúrskurðar.

Framkvæmda- og byggingarleyfi/heimild öðlast ekki gildi fyrr en eftirfarandi skilyrði hafa verið uppfyllt:

  1. Gatnagerðar- og byggingarréttargjöld skv. II.-III. kafla samþykktarinnar hafa verið greidd eða um þau samið samkvæmt 1. og 2. mgr. 16. gr. samþykktarinnar.
  2. Staðfestingargjald og stofngjöld vatns- og fráveitu skv. IV.-V. kafla ásamt leyfis-, heimildar- og þjónustugjöldum skv. 12.-15. gr. samþykktarinnar hafa verið greidd.

Lóðarúthlutun fellur úr gildi ef ekki eru af hálfu lóðarhafa uppfylltir greiðsluskilmálar 15. gr. um greiðslu gjalda skv. II.-V. kafla samþykktarinnar og vanskil verða þannig á gatnagerðargjaldi, byggingarréttargjaldi, staðfestingargjaldi eða stofngjöldum vatns- og fráveitu með því að greiðsla er ekki innt af hendi innan tilskilins tíma.

18. gr. - Endurgreiðsluskilmálar.

Gatnagerðargjald og stofngjöld vatns- og fráveitu ber að endurgreiða lóðarhafa innan 90 daga ef lóðarhafi skilar úthlutaðri lóð án þess að hefja framkvæmdir á henni (sökklar steyptir) eða ef lóðarúthlutun fellur úr gildi, er afturkölluð eða ógilt. Sama gildir um gatnagerðargjald og stofngjöld vatns- og fráveitu sem lögð hafa verið á í tengslum við samþykkt byggingarleyfis en í þeim tilfellum skal endurgreiða gjöldin innan 90 daga frá því byggingarleyfishafi hefur sannarlega krafist greiðslu. Við greiðsludrátt reiknast dráttarvextir á fjárhæðina samkvæmt ákvæðum laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga.

Í sömu tilfellum og greinir í 1. mgr. ber að endurgreiða byggingarréttargjald án vaxta og verðbóta.

Staðfestingargjald skv. IV. kafla samþykktarinnar er óafturkræft og endurgreiðist ekki við það að lóðarúthlutun falli úr gildi, sé afturkölluð eða ógilt, eða lóð skilað.

Gjöld vegna veitingar leyfis eða heimildar skv. 12.-13. gr. samþykktarinnar eru almennt óafturkræf og endurgreiðast ekki við það t.d. að leyfi falli úr gildi eða ef ekki verður af framkvæmd. Þó er heimilt að endurgreiða 50% gjalds skv. 12.-13. gr. samþykktarinnar vegna útgáfu byggingarleyfis eða -heimildar eða framkvæmdaleyfis ef tilkynning um afturköllun umsóknar berst leyfis- eða heimildarveitanda áður en umsókn er tekin til afgreiðslu. Ekki eru þó í slíkum tilvikum endurgreidd móttöku- og skráningargjöld vegna framlagðrar umsóknar um leyfi eða heimild skv. 12.-13. gr. samþykktarinnar.

VIII. KAFLI - Ýmis ákvæði.

19. gr. - Gildistaka.

Samþykkt þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Rangárþings ytra 14. janúar 2026, skv. lögum um gatnagerðargjald nr. 153/2006, skipulagslögum nr. 123/2010, lögum um mannvirki nr. 160/2010, 11. gr. reglugerðar um gatnagerðargjald nr. 543/1996, lögum um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004 og lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009.

Samþykkt þessi öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Með gildistöku samþykktar þessarar fellur úr gildi samþykkt sama efnis, nr. 1718/2024.

Samþykkt af sveitarstjórn Rangárþings ytra, 14. janúar 2026.

Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri.

B deild — Útgáfudagur: 19. janúar 2026