Málsnúmer 1503018
Vakta málsnúmerFjallskilanefnd Rangárvallaafréttar - 2. fundur - 13.03.2015
Girðing, brúin við Krók ofl.
Rætt var um hvar staðsetja ætti nýtt næturhólf. Gera þarf ferð þegar vorar til að staðsetja girðingu áður en hægt er að fastsetja áætlun þar um. Einnig þarf að lagfæra brúarstæðið inn við Krók. Þá þarf að fara viðhaldsferð í Reyðarvatnsréttir á sumri komanda.
Fjallskilanefnd Rangárvallaafréttar - 3. fundur - 14.04.2016
Girðing, brúin við Krók ofl.
Farið yfir forgangsröðun varðandi viðhaldsmál fjallskilamannvirkja.
1. Reyðarvatnsréttir. Kominn er tími á viðhald tréverks og málningu. Óskað er eftir því að það verði kostnaðarmetið (ÁS). Eins þarf að ákveða hvort breyta ætti um lit á réttunum við næstu málun þannig að þær falli betur að umhverfinu.
2. Brúarstöpull við Krók. Til að koma fjárrekstri yfir Markarfljót við Krók er orðið aðkallandi að lagfæra brúarstöpul austan megin. Ákveðið að SM/IÍ geri áætlun um hvað þarf að gera og grófa kostnaðaráætlun.
3. Næturhólf við Reynifell. Ennþá eru sömu áætlanir um að girða nýtt næturhólf í landi sveitarfélagsins neðst í Árbæ. Óskað er eftir því að sveitarfélagið kanni hvort áfram er möguleiki til þess að nýta gamla næturhólfið niður við brú þar til nýtt næturhólf hefur verið girt.
4. Ekkert aðhald er fyrir fé í Hvanngili. Girða þarf litla netgirðingu u.þ.b 50 metrar á kant.

Fjallskilanefnd Rangárvallaafréttar - 4. fundur - 11.08.2016
2.1 Reyðarvatnsréttir
BJM fór yfir úttekt sem hann hefur gert á viðhaldsþörf á Reyðarvatnsréttum. Aðeins er um steypuskemmdir auk þess sem timburverk er orðið fúið að stórum hluta. Jafnframt þyrfti að mála. BJM lagði fram kostnaðaráætlun upp á 2.4 m (með vsk) þar sem gert er ráð fyrir öllu efni og vinnu við steypuviðgerðir og málningu en að upprekstrarhafar myndu leggja til vinnu við að koma upp nýju tréverki. Ákveðið að ráðast í þessar framkvæmdir undir stjórn BJM og ljúka fyrir fjallferð nú í haust. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar. SH mun taka að sér að hafa samband við upprekstrarhafa og hvetja til þátttöku.
2.2 Brúargerð við Krók.
SM lagði fram áætlun sína um kostnað við lagfæringar á brúarstæði inn við Krók. Efniskostnaður er áætlaður 150 þ. Áætlun gerði jafnframt ráð fyrir að BJM myndi leggja til mann með vél en upprekstrarhafar myndu leggja fram aðra vinnu við framkvæmdina. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar. SM tekur að sér verkstjórn. Þessu verði lokið fyrir fjallferðir haustsins.

Fjallskilanefnd Rangárvallaafréttar - 5. fundur - 07.09.2017
Almenn ánægja er með þær endurbætur sem gerðar voru á réttunum sl. haust. Fara þarf yfir girðingar við réttirnar og inn við Reynifellsbrú áður en fjallferðir hefjast. ÁS fylgir því eftir við þjónustumiðstöð.
Lagt verður upp í fyrstu leit laugardaginn 9. september en réttað verður í Reyðarvatnsréttum laugardaginn 16. September og hefjast réttarstörf kl. 11:00. ÁS kemur auglýsingu í Búkollu. Lagt verður upp í aðra leit fimmtudaginn 21. September.