Málsnúmer 2111007

Vakta málsnúmer

Tónlistarskóli Rangæinga bs - 24. fundur - 09.11.2021

Tillaga til afgreiðslu
Lögð fram rekstraráætlun ársins 2022
Gert er ráð fyrir:
Rekstrartekjum að upphæð 137.700.000.-
Rekstrargjöld að upphæð 135.357.000.- án fjármagnsliða.

Rekstrarniðurstaða með fjármagnsliðum verði í árslok 2.193.000.-
Rekstrarframlög sveitarfélaganna verði 122.000.000.-

Samþykkt samhljóða.

Jafnframt er formanni falið að kanna hvernig skýra megi orðalag í samþykktum byggðasamlagsins varðandi kostnaðarskiptingu í tengslum við nemendafjölda.

Tónlistarskóli Rangæinga bs - 25. fundur - 16.11.2021

Útfærsla kostnaðarskiptingar sveitarfélaganna
Samþykkt að fara yfir fyrirliggjandi nemendafjölda með tilliti til reiknireglu sem fram kemur í samþykktum og kostnaðarskipta skv. því. Samþykkt að gjald vegna forskóla verði endurskoðað svo hann standi undir sér. Fyrir hann verði svo greitt sérstaklega skv. raunkostnaði. Gert verði upp vegna ársins 2021 skv. núverandi fyrirkomulagi fyrir fyrstu 8 mánuði ársins en síðustu 4 mánuði skv. yfirförnum nemendafjölda án forskólanema og fyrir forskóla skv. raunkostnaði.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 42. fundur - 09.12.2021

Til afgreiðslu.
Lagt er til að sveitarstjórn staðfesti fyrir sitt leyti rekstraráætlun og skiptingu framlaga fyrir Tónlistarskóla Rangæinga bs fyrir árið 2022.

Samþykkt samhljóða.