Málsnúmer 2411049

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 37. fundur - 11.12.2024

Lögð fram beiðni frá Flóahreppi um samning til tveggja ára um leigu á aðstöðu til sundkennslu.

Lagt til að vísa málinu til skoðunar hjá byggðarráði.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 33. fundur - 22.01.2025

Lögð fram beiðni frá Flóahreppi um samning til tveggja ára um leigu á aðstöðu til sundkennslu.

Byggðarráð tekur jákvætt í erindið en frestar því að taka afstöðu til þess og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram með forstöðumanni íþróttamannvirkja og skólastjórum grunnskólanna fyrir næsta reglulega fund byggðarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 35. fundur - 26.03.2025

Lagðir fram minnispunktar sveitarstjóra með skólastjórum og forstöðumanni íþróttamannvirkja vegna beiðni Flóahrepps.

Byggðarráð leggur til að gerður verði formlegur samningur við Flóahrepp um afnot af sundlaugum sveitarfélagsins og sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.