Málsnúmer 2412052
Vakta málsnúmerByggðarráð Rangárþings ytra - 33. fundur - 22.01.2025
Uppsögn lóðaleigusamnings.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 46. fundur - 10.09.2025
Lagt fram erindi frá Olíudreifingu varðandi ósk sveitarfélagsins um innlausn á lóðinni Dynskálum 45 á Hellu. Olíudreifing leggur til að samþykkja innlausina gegn því að lóðinni verði skilað í því ástandi sem hún er í og félagið fái aðstöðu til að geyma lestuð eldsneytisflutningatæki á götunni við Dynskála 53 auk þess sem félagið fái gera snúningssvæði við enda götunnar.
Lagt til að taka jákvætt í erindið og fela sveitarstjóra að gera drög að samkomulagi við Olíudreifingu varðandi lóðaskil og skilmála til að geyma farartæki við Dynskála 53.
ÞS, BJ og EÞI tóku til máls.
Samþykkt samhljóða.
Bókun D-lista:
Fulltrúar D lista velta fyrir sér hverjir hafa eftirlit með eldsneytisbirgðum sem geymdar eru í bifreiðum, hvort það samræmist skipulagi svæðsins að heimila þesskonar stöðuleyfi á fulllestuðum bíl og hvort farið hefur fram grenndarkynning? (EÞI, BG, ÞS).

Byggðarráð Rangárþings ytra - 45. fundur - 28.01.2026
Lögð fram drög að samningi milli Olíudreifingar ehf og Rangárþings ytra um skil á lóðinni Dynskálum 45 á Hellu en á móti fái aðstöðu á hluta af lóðinni Dynskálum 53.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 47. fundur - 25.03.2026
Lagður er fram samningur milli Olíudreifingar ehf og Rangárþings ytra um skil á lóðinni Dynskálum 45 á Hellu en á móti fái aðstöðu á hluta af lóðinni Dynskálum 53.
Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að samþykkja samninginn og fela sveitarstjóra að undirrita hann.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð leggur til að lóðaleigusamningum verði sagt upp skv. efni sínu þannig að hann renni endanlega út 31. desember 2027. Jafnframt verði sveitarstjóra falið að ræða við Olíudreifingu um möguleika þess að flýta fyrir samningslokum.
Samþykkt samhljóða.