Byggingagátt

 

Haraldur Birgir Haraldsson er skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra. Starfsstöð hans er á skrifstofu sveitarfélagsins við Suðurlandsveg 1-3 á Hellu.

Tölvupóstfang hans er birgir(hjá)ry.is.

Aðstoðarmaður byggingarfulltrúa er:

Jón Ragnar Örlygsson:

jonragnar(hjá)ry.is

AFGREIÐSLU- OG SÍMATÍMI SKIPULAGSFULLTRÚA

Afgreiðsla embættisins er opin alla virka daga milli kl. 9.00 og 15.00 nema föstudaga milli 9.00 og 12.00 og er í samræmi við opnunartíma á skrifstofu sveitarfélagsins.

Viðtals- og símatímar skipulagsfulltrúa og annarra starfsmanna hans er alla virka daga – nema föstudaga – milli kl. 9.00 og 12.00.

Mælst er til þess að fundir séu bókaðir með fyrirvara með því að hringja í síma 488-7000 á símatíma.

Fundir skipulagsnefndar eru alla jafna 1. og 3. fimmtudag í mánuði, sjá þó fundardagskrá á heimasíðu.
Fullnægjandi gögn þurfa að hafa borist í síðasta lagi kl. 13 á föstudegi í vikunni fyrir fund til að erindi fái afgreiðslu á skipulagsnefndarfundi.

Hægt er að skila útprentuðum gögnum s.s. skipulagsuppdráttum, landskiptauppdráttum og lóðarblöðum á skrifstofu embættisins að Suðurlandsvegi 1-3 á Hellu á opnunartíma.

Að öðrum kosti skulu gögn berast í tölvupósti á netfangið ry@ry.is eða birgir@ry.is en í gegnum rafræna byggingargátt sveitarfélagsins ef um byggingarmál er að ræða.

--

Í Skipulagsnefnd- og umferðarnefnd Rangárþings ytra sitja:

Gunnar Aron Ólason, formaður
Þórunn Dís Þórunnardóttir
Steindór Tómasson
Þröstur Sigurðsson
Svavar Leópold Torfason

Til vara:

Brynhildur Sighvatsdóttir
Berglind Kristinsdóttir
Daníel Freyr Steinarsson
Eydís Þ. Indriðadóttir
Sævar Jónsson

Haraldur Birgir Haraldsson, Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra, situr fundi skipulagsnefndar og hefur þar málfrelsi og tillögurétt.

Meðferð skipulagsmála fer eftir Skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og  Skipulagslögum nr. 123/2010.

Meðferð byggingarmála fer eftir Byggingarreglugerð nr. 112/2012 og  Mannvirkjalögum nr. 160/2010.

Byggingargátt

Hér eru leiðbeiningar varðandi umsóknar- og skráningarferlið:

Leiðbeiningar vegna framkvæmda háðum byggingarleyfi Framkvæmdir í umfangsflokki 2 og 3

Leiðbeiningar vegna framkvæmda háðum byggingarheimild Framkvæmdir í umfangsflokki 1

Leiðbeiningar vegna tilkynningaskyldra framkvæmda undnanþegnum byggingarheimild eða byggingarleyfi. 

Leiðbeiningar vegna eigin framkvæmda undanþegna tilkynningu, byggingarheimildar og byggingarleyfi

Leiðbeiningar vegna umsóknar Eigandi eða aðili á hans vegum sem sækir um

Leiðbeiningar vegna skráningar fagaðila Hönnuðir, byggingarstjórar og iðnmeistarar

Framkvæmdaaðilar gera tillögur að deiliskipulagi þar sem nauðsyn ber til. Framkvæmdaaðilar geta gert tillögur að breytingu á aðalskipulagi ef það er nauðsynlegt vegna framkvæmda eða afgreiðslu á tillögu að deiliskipulagi. Sveitarstjórn annast gerð aðalskipulags. Svæðisskipulög taka yfir fleiri en eitt sveitarfélag og eru gerð í samstarfi sveitarstjórna sem skulu mynda um það samvinnunefnd.

  • Skipulagsnefnd fjallar um og gerir tillögur um afgreiðslur á skipulagstillögum.

  • Skipulags- og byggingarfulltrúi sér um að auglýsa skipulagstillögur samkvæmt heimild sveitarstjórnar.

  • Skipulags- og byggingarfulltrúi sér um útgáfu framkvæmdaleyfa samkvæmt heimild sveitarstjórnar.

Reglugerðasafn

Hvernig getur þú haft áhrif á skipulag og mótun umhverfis?