13. fundur 20. október 2026 kl. 13:00 - 14:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Stefán Short embættismaður
  • Leifur B Björnsson embættismaður
Fundargerð ritaði: Stefán Short byggingarfulltrúi

1.Umsókn um byggingarheimild Svínhagi SH 3 - Flokkur 1

Málsnúmer 2610048Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Íslandsturna um byggingarheimild fyrir 18 m háu fjarskiptamastri úr stáli, í samræmi við umboð landeiganda. Umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá VEB Verkfræðistofu.
Afgreiðslu málsins er frestað, þar sem ekki er í gildi deiliskipulag sem gerir ráð fyrir uppsetningu fjarskiptamasturs. Málinu er vísað til skipulags- og umferðarnefndar til frekari umfjöllunar og afgreiðslu.

2.Bláholt - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2610052Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra hefur móttekið umsókn Bents Larsens Fróðasonar, fh. Rafkvik ehf., um byggingarheimild til byggingar þriggja smáhýsa til útleigu, hvert um sig 20,3 m² að stærð, samtals 60,9 m², samkvæmt aðaluppdráttum dags. 8.10.2026.
Afgreiðslu málsins er frestað. Athugasemdir sem fram komu við yfirferð aðaluppdrátta verða sendar hönnuði til úrbóta.

3.Bjálmholt 165072 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

Málsnúmer 2606062Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Hlyns Axelssonar, fh. Lyngáss 13 ehf., um byggingarleyfi fyrir 1.531,2 m² framleiðslu- og þjónustubyggingu í Bjálmholti, samkvæmt aðaluppdráttum HAX arkitekta, dags. 26.6.2026. Afgreiðslu málsins var áður frestað og því vísað til skipulags- og umferðarnefndar þar sem hæð mannvirkis og heildarstærð voru umfram heimildir gildandi deiliskipulags. Í kjölfarið var samþykkt breyting á deiliskipulagi sem tók gildi 7.10.2026. Uppfærðir aðaluppdrættir bárust byggingarfulltrúa 13.10.2026 og er málið því tekið að nýju til afgreiðslu.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 2. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnunarstjóri hefur tilnefnt aðra hönnuði og þeir staðfest sig
-Hönnuðir hafa undirritað uppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Greinargerðir hönnuða hafi borist.
-Skráningartafla hefur borist.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarstjóri hefur tilnefnt alla iðnmeistara og þeir staðfest sig á verkið.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
-Lífsferilsgreining skal liggja fyrir.
Við yfirferð aðaluppdrátta voru eftirfarandi athugasemdir gerðar:
Gólfniðurföll vantar á salerni á efri hæð.
Merkja þarf neyðarlýsingu á uppdráttum á salerni fyrir hreyfihamlaða.

4.Krikakot - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2508027Vakta málsnúmer

Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra tekur að nýju fyrir umsókn Íslandsturna ehf. um byggingarleyfi fyrir fjarskiptamastri á lóðinni Krikakot (L238283), úr landi Köldukinnar, samkvæmt aðaluppdráttum Bjarka Guðmundssonar, dags. 28.7.2025.

Málið hefur verið til umfjöllunar hjá skipulags- og umferðarnefnd og hafa fyrirhugaðar staðsetningar mastursins verið grenndarkynntar í tvígang, annars vegar 25.8.2025 og hins vegar 5.12.2025. Athugasemdir bárust frá nærliggjandi landeigendum við báðar grenndarkynningar.

Í framhaldinu voru aðrir staðsetningarkostir kannaðir, en ekki reyndist unnt að finna aðra heppilega staðsetningu með samþykki landeigenda. Umsækjandi óskaði því eftir að síðari staðsetning mastursins yrði samþykkt.

Skipulags- og umferðarnefnd hefur tekið málið til umfjöllunar og sveitarstjórn samþykkt niðurstöðu nefndarinnar samhljóða. Málið er nú lagt fram að nýju til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Byggingaráform eru samþykkt. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
-Hönnuður hefur undirritað aðaluppdrætti með rafrænni áritun sinni.
-Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og lagt fram starfsábyrgðartryggingu.
-Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.

5.Brekkur 2b, L226402. Thales slf. Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2604067Vakta málsnúmer

Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna beiðni Davíðs Þórs Björgvinssonar fyrir hönd Thales slf., kt. 620514-0980, um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II, tegund "C" minna gistiheimili á lóðinni Brekkur 2b, rýmisnúmer 010101 fyrir 8 gesti. Umsókn barst 22.04.2026.
Embætti byggingarfulltrúa er ekki kunnugt um að gerðar hafi verið breytingar á umræddu húsnæði frá því sem skráð er í fasteignaskrá.

Byggingarfulltrúi staðfestir að umrædd starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins og gerir því ekki athugasemdir vegna tiltekinnar starfsemi í umræddu húsnæði.

Byggingarfulltrúi vill árétta að umsækjandi ber ábyrgð á að húsnæðið uppfylli skilyrði um brunavarnir og að húsnæðið sé fullnægjandi m.t.t. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Áréttað er að neysluvatn á staðnum þarf að uppfylla kröfur um gæði vatns skv. reglugerð nr. 536/2001 m.s.br.

Fundi slitið - kl. 14:00.