1.Rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2026
Málsnúmer 2602048Vakta málsnúmer
2.Fjárhagsáætlun 2026 - viðaukar
Málsnúmer 2609017Vakta málsnúmer
Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026. Greinargerð fylgir viðaukanum og fór Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri yfir breytingarnar.
Viðauki 1 gerir ráð fyrir auknum tekjum að fjárhæð 24,8 milljónum kr, auknum launakostnaði að fjárhæð 16,6 milljónum kr og auknum rekstrarkostnaði að fjárhæð 14,3 milljónum kr. Samtals áhrif á rekstur er lækkun rekstrarafgangs um tæplega 6,2 milljónir kr. sem mætt er með lækkun á handbæru fé. Auk þess er gert ráð fyrir viðbótar fjárfestingu í skólamannvirkjum á Laugalandi (Húsakynni bs.) að fjárhæð kr. 67,25 milljónum kr. Þeim hluta viðaukans er mætt með lántöku.
Byggðarráð leggur til að viðaukinn verði samþykktur.
Samþykkt samhljóða.

3.Fjárhagsáætlun 2027-2030
Málsnúmer 2609016Vakta málsnúmer
Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri fór yfir undirbúning fjárhagsáætlunar 2027-2030 og forsendur fjárhagsáætlunarinnar. Lagt fram fundarplan fyrir áætlaða vinnufundi byggðarráðs.
4.Rallý 2026
Málsnúmer 2609019Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við að keppnin fari fram á vegum sem tilgreindir eru í umsókn innan sveitarfélagsins þann 3. október.
Vakin er athygli á því að á sama tíma fer fram eftirleit á Landmannaafrétti og tryggja þarf að fjallmenn geti farið óhindrað um svæðið, samráð skal hafa við fjallskilastjóra Landmannaafréttar.
Leita þarf umsagnar fleiri aðila þar sem ekki allir vegir tilheyra sveitarfélaginu Rangárþingi ytra. Aðrir aðilar eru m.a. Vegagerðin.
Nefndin setur eftirfarandi skilyrði:
1. Forsvarsmenn keppninnar gæti þess að fylgt verði merktum leiðum og ekki sé ekið utan vega.
2. Keppnishaldari upplýsi þá aðila sem hafa með skipulagðar ferðir á svæðinu að gera vegna keppninnar. Þá sérstaklega rekstraraðila í Hrauneyjum, Landmannahelli og Áfangagili sem og aðra ferðaþjónustuaðila á svæðinu.
3. Mönnuð vöktun verði á öllum lokunarpóstum.
4. Þess sé gætt að allur frágangur verði til fyrirmyndar. Þeir vegir sem farið verði um verði heflaðir á kostnað keppnishaldara strax að keppni lokinni. Allar merkingar og allt rusl verði fjarlægt af hálfu keppnishaldara.
5. Keppnishaldari tryggi að almenningur á svæðinu verði ekki fyrir óþarfa óþægindum á meðan kynningarakstur fer fram fyrir keppni.

5.Aðalfundur Veiðifélags Eystri-Rangár 2026
Málsnúmer 2609026Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
6.Endurhæfum Reykjalund - Ákall um stuðning
Málsnúmer 2609029Vakta málsnúmer
Byggðarráð hafnar erindinu.
7.Gamla hesthúsahverfið á Hellu
Málsnúmer 2608051Vakta málsnúmer
Tillaga Byggðarráðs til stuðnings farsælli lokun eldra hesthúsahverfisins og til að tryggja jafnræði meðal eigenda húsa á svæðinu, er lagt til að sveitarfélagið auglýsi og kynni formlega eftirfarandi úrræði og skilmála:
Almennir skilmálar og forsendur:
Fermetrafjöldi: Útreikningur á fermetrafjölda húsa miðast við skráð birt flatarmál samkvæmt fasteignaskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS).
Vísitölutenging: Allar tilgreindar fjárhæðir miðast við vísitölu byggingarkostnaðar í júní 2022 (grunnvísitala 842,4 stig) og skulu uppreiknast samkvæmt henni til greiðsludags. Fyrir þá sem þegar hafa móttekið fyrri greiðslu kaupverðs uppreiknast einungis síðari greiðslan.
Gatnagerðargjöld og lóðir: Niðurfelling eða styrkur vegna gatnagerðargjalds á einungis við um sjálfstæða úthlutun nýrra lóða, en fylgir ekki kaupum á eignarhlutum. Við kaup á eignarhlut fellur fyrri réttur til úthlutaðrar lóðar niður og skal henni skilað óheftri til sveitarfélagsins.
Rekstrarkostnaður og ábyrgð: Eigandi ber allan rekstrarkostnað af húsi í eldra hverfinu (þ.m.t. fasteignagjöld, lóðaleigu, tryggingar, rafmagn og hita) fram að formlegri afhendingu eignar eða útgáfu afsals.
Formkröfur og frestur: Eigendur skulu tilkynna um val á úrræði með því að undirrita og skila þar til gerðu eyðublaði sveitarfélagsins eigi síðar en 15. desember 2026. Eftir þann tíma standa framangreind úrræði og samningar ekki lengur til boða.
________________________________________
1. Úrræði fyrir eigendur sem þegar hafa gert kaupsamning við sveitarfélagið:
A. Frestun á afhendingu eldra húss: Umsókn um frestun á afhendingu húss í eldra hverfinu á meðan unnið er að því að ljúka þegar höfnum framkvæmdum við nýtt hús í nýja hverfinu og taka það í notkun. Hámarksfrestur er veittur til 30. júlí 2028. Frestur er veittur með undirritun viðauka við kaupsamning ef skilyrði eru uppfyllt.
B. Framlenging á fresti til byggingar grunns: Umsókn um framlengingu á fresti til byggingar grunns að nýju húsi í nýja hverfinu til allt að 30. júlí 2028. Skilyrði er að lögð sé fram staðfesting á að sótt hafi verið um byggingarheimild eða byggingarleyfi. Frestur er veittur með undirritun viðauka við kaupsamning ef skilyrði eru uppfyllt.
C. Heimild til kaupa á eignarhlut í húsi á Rangárbökkum í stað nýbyggingar á Rangárbökkum: Umsókn um heimild til að kaupa eignarhlut í húsi í nýja hverfinu gegn heildargreiðslu 50.000 kr./m² samkvæmt kaupsamningi, án þess að byggja nýtt hús á áður úthlutaðri lóð. Réttur til úthlutaðrar lóðar fellur niður. Skilyrði er að undirritaður og þinglýstur kaupsamningur um eignarhlut í nýju húsi liggi fyrir. Hús í eldra hverfi afhendist eigi síðar en 30. júlí 2028. Viðauki við kaupsamning er undirritaður og greiðsla seinni helmings kaupverðs (25.000 kr./m² uppreiknað) fer fram samhliða formlegri afhendingu húss og útgáfu afsals.
D. Afsal gefið út án frekari uppbyggingar: Afsal gefið út án viðbótargreiðslu í samræmi við kaupsamning. Heildarverð nemur þá 25.000 kr./m² (upphafleg greiðsla), líkt og í kaupsamningum án uppbyggingar í nýju hverfi.

2. Úrræði fyrir eigendur sem ekki hafa gert kaupsamning við sveitarfélagið:
A. Sala án uppbyggingar í nýju hverfi: Sveitarfélagið kaupir hús í eldra hesthúsahverfinu á 25.000 kr./m² (uppreiknað). Afhending húss og útgáfa afsals fari fram eigi síðar en 30. júlí 2028.
B. Sala með nýbyggingu á úthlutaðri lóð: Sveitarfélagið kaupir hús í eldra hesthúsahverfinu á 50.000 kr./m² (uppreiknað) á eftirfarandi forsendum:
50% kaupverðs greiðast við undirritun kaupsamnings.
50% kaupverðs greiðast samhliða útgáfu afsals og afhendingu húss eigi síðar en 30. júlí 2028, gegn því að grunnur nýs hesthúss í nýja hverfinu sé tilbúinn. Hætti seljandi við byggingu nýs húss fellur síðari greiðslan niður og vilyrði fyrir lóð.
Sveitarfélagið veitir styrk sem nemur álögðu gatnagerðargjaldi vegna hinnar nýju lóðar.
C. Sala með kaupum á eignarhlut í nýju húsi á Rangárbökkum: Sveitarfélagið kaupir hús í eldra hesthúsahverfinu á 50.000 kr./m² (uppreiknað) á eftirfarandi forsendum:

50% kaupverðs greiðast samhliða útgáfu afsals og afhendingu húss eigi síðar en 30. júlí 2028, þegar fyrir liggur undirritaður og þinglýstur kaupsamningur um kaup seljanda á eignarhlut í nýju hesthúsi í nýja hverfinu.
D. Synjun eða vanræksla á samkomulagi: Náist ekki samkomulag á grundvelli framangreindra kosta fyrir 15. desember 2026, skulu eigendur fjarlægja hús sín og skila lóðum sem í flestum tilfellum miðast við 30. júní 2029 eða 31. desember 2029 í samræmi við lóðaleigusamninga.

Afgreiðsla og kynning:
Tilkynning verður birt á vef og öðrum kynningarmiðlum sveitarfélagsins og jafnframt send öllum skráðum eigendum húsa í eldra hesthúsahverfinu í gegnum pósthólf á Ísland.is.

8.Heiðursáskrift - Flóamannabók III, IV og V
Málsnúmer 2609031Vakta málsnúmer
Byggðarráð samþykkir heiðursáskrift að Flóamannabók.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.Hella. Miðbæjarskipulag
Málsnúmer 2608034Vakta málsnúmer
Lagt fram minnisblað frá sveitarstjóra.
Lagt er til að stýrihópurinn verði skipaður með eftirfarandi hætti.
Formaður skipulags- og umferðarnefndar
Fulltrúi Á-lista
Fulltrúi D-lista
Sveitarstjóri og skipulags- og byggingafulltrúi starfa með hópnum.
Lagt er til að fulltrúi Á-lista verði Berglind Kristinsdóttir og fulltrúi D-lista verði Þröstur Sigurðsson.
Samþykkt samhljóða

10.Íþróttahús og tjaldsvæði í Þykkvabæ - umsjón
Málsnúmer 2503089Vakta málsnúmer
Lagt er til að auglýsa eftir rekstraraðila fyrir sumarið 2027.
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
11.2026 málasafn - Til umsagnar frá nefndarsviði Alþingis
Málsnúmer 2601062Vakta málsnúmer
Umsagnarbeiðnir umhverfis- og samgöngunefndar um frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón), 4. mál og til umsagnar 5. mál, sveitarstjórnarlög.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
12.Tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði
Málsnúmer 2609032Vakta málsnúmer
Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur sett tillögu um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði í samráðsgátt stjórnvalda sbr. lög 48/2011.
Vísað til Skipulags- og umferðarnefndar og Umhverfis- og Hálendisnefndar vegna Tungnaá og Hólmsá.
Samþykkt samhljóða
Vísað til Skipulags- og umferðarnefndar og Umhverfis- og Hálendisnefndar vegna Tungnaá og Hólmsá.
Samþykkt samhljóða
13.Skipulags- og umferðarnefnd - 6
Málsnúmer 2608009FVakta málsnúmer
-
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Sveitarstjórn staðfesti afmörkun Melöldu 6 á síðasta fundi. Lagt fram til kynningar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Vegna stærða lóðanna þarf að skilgreina landnotkun eftir nýtingu lóðanna með vísan til kafla 2.3.1. í greinargerð aðalskipulags Rangárþings ytra 2016-2028. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir beiðni Heilbigðiseftirlits Suðurlands og gerir engar athugasemdir við útgáfu starfsleyfis fyrir vatnsveitu þar sem staðsetning á borholu er í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.
Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við að lóðirnar verði sameinaðar í eina lóð undir heitinu Rangárbakki 8 og leggur til við sveitarstjórn að það verði samþykkt. Samhliða verði afmörkuð og staðfest lóðin undir núverandi hreinsivirki sveitarfélagsins sem staðsett er á svæðinu. Lagt er til að lóðin Rangárbakki 8 verði afmörkuð að nýju að teknu tilliti til að aðgengi almennings meðfram ánni verði tryggt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytinga á deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að málsmeðferð verði eins og um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin metur það svo að óþarfi sé að grenndarkynna breytinguna þar sem hún hefur óveruleg áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar athugasemdir. Nefndin telur að búið sé að taka tillit til fram kominna athugasemda í fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita heimild til breytinga á deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að málsmeðferð verði eins og um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin metur það svo að óþarfi sé að grenndarkynna breytinguna þar sem hún hefur óveruleg áhrif á aðra en umsækjanda og sveitarfélagið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða. -
Skipulags- og umferðarnefnd - 6 Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að málsmeðferð verði eins og um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin metur það svo að óþarfi sé að grenndarkynna breytinguna þar sem hún hefur óveruleg áhrif á aðra en umsækjendur og sveitarfélagið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.
Samþykkt samhljóða.
14.Fundargerðir Samtaka orkusveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2601034Vakta málsnúmer
Fundargerðir 93., 94., 95. og 96. fundar Samtaka orkusveitarfélaga lagðar fram til kynningar.
15.Þjóðarsátt um verðstöðugleika
Málsnúmer 2609030Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
16.Byggingar reistar á hamfarasvæðum.
Málsnúmer 2509036Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
17.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 2602006Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
18.Erindi frá VR, LÍV og Fagfélögnum til sveitarstjórnar
Málsnúmer 2609033Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:30.
Lagt fram til kynningar.