Málsnúmer 1501010
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Rangárþings ytra - 8. fundur - 14.01.2015
Tilboð um sjónvarpsþáttagerð úr héraði
Byggðarráð Rangárþings ytra - 9. fundur - 26.03.2015
Vísað er til afgreiðslu einstakra liða en fundargerðin að öðru leyti til kynningar
-
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 5 Fræðslunefnd leggur til að beðninni verði hafnað að þessu sinni. Bókun fundar Byggðarráð samþykkir samhljóða tillögu fræðslunefndar.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 11. fundur - 15.04.2015
Vísað er til umfjöllunar um einstaka liði en fundargerðina að öðru leyti staðfest
-
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 5 Tillaga er frá leikskólastjórum að sumarlokun leikskólanna verði með eftirfarandi hætti:
Sumarlokun Leikskólans á Laugalandi árið 2016 verði frá 27 júní til 29 júlí.
Sumarlokun Leikskólans Heklukots færist til milli ára yfir þriggja ára tímabil. Sumarlokanir séu á bilinu frá miðjum júní fram í miðjan ágúst. Þannig verði lokað 2016 frá miðjum júní fram í miðjan júlí, 2017 lokað júlímánuð og 2018 sumarlokun frá miðjum júlí fram í miðjan ágúst. Sumarlokun sumarið 2016 verður því frá 20 júní til 15 júlí.
Samþykkt samhljóða Bókun fundar Fyrir liggur tillaga frá fræðslunefnd um sumarfrí á leikskólum.
Sumarlokun Leikskólans á Laugalandi árið 2016 verði frá 27 júní til 29 júlí.
Sumarlokun Leikskólans Heklukots færist til milli ára yfir þriggja ára tímabil. Sumarlokanir séu á bilinu frá miðjum júní fram í miðjan ágúst. Þannig verði lokað 2016 frá miðjum júní fram í miðjan júlí, 2017 lokað júlímánuð og 2018 sumarlokun frá miðjum júlí fram í miðjan ágúst. Sumarlokun sumarið 2016 verður því frá 20 júní til 15 júlí.
Samþykkt samhljóða -
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 5 Tillaga er frá leikskólastjórum um að það verði skoðað að aðlögun ungra barna verði að öllu jöfnu á haustin og um áramót til að létta álagi hjá jafnt börnum sem starfsfólki. Jafnframt er ljóst að það er mikil eftirspurn eftir leikskólaplássi og þörf á því að leita leiða til að geta tekið við fleiri börnum. Lagt er til að málið verði skoðað áfram í samhengi við fjárhagsáætlanir innan sveitarstjórna. Bókun fundar Tillaga er um að gerð verði greining á því hvaða kostir eru í boði til að fjölga leikskólaplássum og kostnaður metinn. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram og leggja minnisblað fyrir sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða. -
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 5 Sigrún B. Benediktsdóttir situr í undirbúningsnefnd og kynnti í stuttu máli hvað Sunnlenski skóladagurinn snýst um. Nefndin er sammála um að hér er um góða hugmynd að ræða en þetta krefst þess að settur verði inn auka starfsdagur hjá skólunum. Kostnaður þarf auðvitað að rúmast innan fjárhagsáætlana.
Lagt er til að auka starfsdegi verði bætt inn hjá skólunum til að taka þátt í hinum Sunnlenska skóladegi.
Jafnframt ályktar fræðslunefnd um mikilvægi þess að Skólaþjónustu Rangárvallasýslu- og V-Skaftafellssýslu sé gefinn kostur á að taka þátt í undirbúningi fyrir hönd okkar svæðis.
Samþykkt samhljóða Bókun fundar Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að auka starfsdegi verði bætt inn hjá skólunum til að taka þátt í hinum Sunnlenska skóladegi árið 2016.
Jafnframt er tillaga um að Skólaþjónustu Rangárvallasýslu- og V-Skaftafellssýslu verði fengið það hlutverk að leiða undirbúning Sunnlenska skóladagsins fyrir hönd okkar svæðis.
Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að koma þessu á framfæri við undirbúningsnefnd.
-
Fræðslunefnd Rangárþings ytra og Ásahrepps - 5 Lagt fram til kynningar
Fræðslunefnd vill þó ítreka mikilvægi þess að Skólaþjónusta Rangárvallasýslu og Vestur- Skaftafellssýslu verði leiðandi afl í undirbúningi menntaþings hér á okkar svæði. Jafnframt vill fræðslunefnd undirstrika mikilvægi þess að gera iðnnámi hátt undir höfði í tengslum við slíkt menntaþing. Bókun fundar Sveitarstjórn leggur áherslu á að kraftar Skólaþjónustu Rangárvallasýslu og Vestur- Skaftafellssýslu verði nýttir sem leiðandi afl í undirbúningi menntaþings hér á okkar svæði. Jafnframt vill sveitarstjórn undirstrika mikilvægi þess að gera iðnnámi hátt undir höfði í tengslum við slíkt menntaþing.
Samþykkt samhljóða og sveitarstjóra falið að koma þessu á framfæri við undirbúningsnefnd.
Samþykkt samhljóða