Málsnúmer 1510051
Vakta málsnúmerByggðarráð Rangárþings ytra - 15. fundur - 28.10.2015
Þjónusta sveitarfélagsins
Fjallað um drög að gjaldskrám fyrir þjónustu sveitarfélagsins. Vísað til áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 16. fundur - 09.11.2015
Farið yfir tillögur að gjaldskrám og samþykkt samhljóða að vísa þeim til umræðu í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 18. fundur - 11.11.2015
Fyrri umræða
Tillögum að gjaldskrám og álagningarprósentum vísað til áframhaldandi vinnu í samræmi við umræður á fundinum. Gjaldskrár og álagningarprósentur verða teknar til formlegrar afgreiðslu á fundi sveitarstjórnar þann 9. desember n.k.
Samþykkt samhljóða
Tillaga Á-lista við drög að gjaldskrám:
Fulltrúar Á-lista leggja til að veitt verði 4 tíma gjaldfrjáls vistun fyrir næstyngsta árgang í leikskólum sveitarfélagsins. Þetta er eitt af stefnumálum Á-listans og óskum við eftir að verði tekið tillit til þess við gerð fjárhagsáætlunar 2016.
Yngvi Karl Jónsson
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Sigdís Oddsdóttir
Tillögunni vísað til seinni umræðu

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 19. fundur - 09.12.2015
Seinni umræða
Gildir frá og með 1. janúar 2016
1. Útsvar; 14,48%.
Miðað er við að útsvarshlutfall fyrir árið 2016 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,48% af útsvarsstofni, að viðbættri hækkun sem kveðið verður á um í lögum um tekjustofna sveitarfélaga á grundvelli fyrirhugaðs samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um endurmat á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga. Gengið er út frá að lagabreyting þessa efnis verði afgreidd fyrir lok haustþings.
Samþykkt samhljóða
2. Fasteignaskattur;
A - 0,39% af fasteignamati: Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
B - 1,32% af fasteignamati: Sjúkrastofnanir samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn.
C - 1,65% af fasteignamati: Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu.
3. Lóðarleiga; 1,00% af fasteignamati lóða í eigu sveitarfélagsins. Þó getur sveitarstjórn ákveðið annað leiguhlutfall eða álagningu í krónutölu á hvern fermetra lóðar við sérstakar aðstæður.
4. Vatnsgjald; skv. sérstakri gjaldskrá.
5. Aukavatnsgjald skv. sérstakri gjaldskrá.
6. Tengigjöld í Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps eru samkvæmt sérstakri gjaldskrá.
7. Fráveitugjald á Hellu; 0,25% af fasteignamati húss og tilh. lóðar.
8. Gjöld fyrir tæmingu rotþróa eru samkvæmt sérstakri gjaldskrá.
9. Sorphirðu- og sorpeyðingargjöld skv. sérstakri gjaldskrá.
Gjalddagar liða nr. 2, 3, 4, 7 og 9 eru 1/2, 1/3, 1/4, 1/5, 1/6, 1/7, 1/8 og 1/9 2016. Þar sem fasteignagjöld verða samtals kr. 35.000 eða lægri skal þó aðeins vera einn gjalddagi; 1/5 2016. Einnig gefst aðilum kostur á að greiða fasteignagjöldin í einu lagi og skal gjalddagi vera eigi síðar en 1/6 2016. Eindagi er síðasti virki dagur í sama mánuði og gjalddagi. Fasteignaeigendum 67 ára og eldri og öryrkjum 75% og meira, sem búa í eigin íbúðarhúsnæði, skal veittur afsláttur af fasteignaskatti og holræsagjaldi af viðkomandi íbúðarhúsnæði skv. reglum samþykktum af sveitarstjórn.
10. Hundaleyfisgjald er samkvæmt sérstakri gjaldskrá.
11. Byggingarleyfisgjöld, afgreiðslu-, úttekta og mælingagjöld skipulags- og umferðarnefndar og skipulags-og byggingafulltrúa leggjast á skv. sérstakri gjaldskrá. Gjalddagar eru dags. reikninga og eindagar 30 dögum síðar.
Að öðru leyti gilda lög um tekjustofna sveitarfélaga og gjaldskrár um viðkomandi tekjuliði.
Samþykkt þessi um álagningarprósentur, afslætti og gjaldskrár skal birt á heimasíðu sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.