Málsnúmer 2502025

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Rangárþings ytra - 34. fundur - 26.02.2025

Samráðsbeiðnir Innviðarráðuneytisins/Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins um áform um breytingar á sveitarstjórnarlögum og lögum um ríkisendurskoðanda um mat á fjárhagslegum áhrifum lagafrumvarpa á sveitarfélög og frumvarps til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 38. fundur - 28.05.2025

Innviðaráðuneytið vekur athygli á því að áform um lagabreytingar í samráðsgátt um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) og frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna og skila inn umsögn um áformin.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 47. fundur - 08.10.2025

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011.
Lagt fram til kynningar.

JGV tók til máls.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 54. fundur - 11.03.2026

Umsagnarbeiðni Innviðarráðuneytis í samráðsgátt um drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignaskatti.
Lögð fram til kyninngar umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um drögin og umsögn Rangárþings ytra en henni var skilað í samráðsgátt þann 6. mars s.l.

IPG og JGV tóku til máls.

Sveitarstjórn óskar eftir fundi með innviðaráðherra þar sem farið yrði yfir hagsmuni sveitarfélagsins í málinu.