33. fundur 09. október 2024 kl. 08:15 - 10:00 að Suðurlandsvegi 1-3
Nefndarmenn
  • Margrét Harpa Guðsteinsdóttir varaoddviti
  • Eggert Valur Guðmundsson oddviti
  • Þórunn Dís Þórunnardóttir aðalmaður
  • Eydís Þ. Indriðadóttir aðalmaður
  • Þröstur Sigurðsson varamaður
  • Björk Grétarsdóttir aðalmaður
  • Viðar M. Þorsteinsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri
Oddviti lagði til að við dagskránna myndu bætast við eitt mál, liður 16, fundargerð 12. fundar Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefndar.

Það var samþykkt samhljóða og að aðrir fundarliðir færast til í samræmi við það.

1.Samantekt sveitarstjóra og/eða oddvita

2401007

Oddviti fór yfir minnisblað um ýmis mál sem hafa verið unnin milli sveitarstjórnarfunda.

2.Aukafundir sveitarstjórnar

2403024

Lagt er til að aukafundur verði haldinn í sveitarstjórn þann 16. október n.k. kl. 9:00 þar sem fjallað verður um umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun. Þó að um aukafund sé að ræða í sveitarstjórn verður hann sendur út í beinni útsendingu.

Samþykkt samhljóða.

3.Kjör nefnda, ráða og stjórna

2206014

Breytingar á skipan Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefndar.
Lögð fram beiðni frá Á-lista um breytingu á skipan aðalmanns Á-lista í Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefndar.

Lagt til að Daníel Freyr Steinarsson verði aðalmaður í Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd í stað Jóns Ragnars Björnssonar og varamaður verði Þórunn Dís Þórunnardóttir.

Samþykkt samhljóða.

4.Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings ytra. Endurskoðun

2409018

Lagt fram minnisblað frá sveitarstjóra um tillögu að breytingum á samþykktum sveitarfélagins

Lagt til að vinna málið áfram til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

BG, EÞI og MHG tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.

5.Aðalfundur Bergrisans bs.

2410001

Skipun fulltrúa á aðalfund.
Lagt er fram fundarboð vegna aðalfundar Bergrisans bs. þann 14. október nk. sem haldinn verður í fjarfundi.

Lagt til að fulltrúar á aðalfund Bergrisans bs. verði:

Eggert Valur Guðmundsson
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir
Ingvar Pétur Guðbjörnsson
Jón G. Valgeirsson

Til vara: Þórunn Dís Þórunnardóttir, Viðar M. Þorsteinsson, Eydís Þ. Indriðadóttir og Björk Grétarsdóttir.

Samþykkt samhljóða.

6.Vaðölduver. Vegagerð. Kæra 103-2024 vegna ákvörðun sveitarstjórnar.

2409067

Lögð fram kæra Náttúrugriða vegna framkvæmdaleyfis vegna vegagerðar o.fl. við Vindorkuverið í Vaðöldu til Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og svar sveitarfélagsins við kærunni.

Lagt fram til kynningar.

7.Íbúaráð

2403036

Skipun í íbúaráð
Lögð fram framboð til íbúaráðs Rangárþings ytra. Framboð bárust nema í dreifbýli á Rangárvöllum. Þar sem þrjú framboð bárust vegna fulltrúa Hellu og þrjú vegna fyrrum Holta- og Landsveitar er lagt til að draga um aðal- og varamenn.

Lagt til að skipa sem fulltrúa fyrrum Djúpaárhrepps Vilhjálm A. Einarsson en þar barst aðeins eitt framboð. Fulltrúi Hellu verði, Bjarki Eiríksson og til vara Guðríður Ásta Tómasdóttir og fulltrúi fyrrum Holta- og Landsveitar Hulda Gústafsdóttir og til vara Rebekka Stefánsdóttir.

BG tók til máls.

Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum. EÞI, BG og ÞS sitja hjá.

8.Tillaga D-lista um stofnun þróunarfélags vegna Grænna iðngarða

2410017

Fulltrúar D-lista leggja til að stofnað verði þróunarfélag um uppbyggingu grænna iðngarða á Strönd. Félagið hafi það markmið að vinna að uppbyggingu svæðisins, ganga til samninga um raforkukaup inn á svæðið, markaðssetningu o.fl. Sveitarstjóra verði falið að undirbúa stofnun félagsins og leggja fyrir byggðarráð til nánari útfærslu.

Lagt til að vísa málinu til frekari umfjöllunar í Byggðarráði.

ÞS og JGV tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.


9.Tillaga D-lista um kynningu á stöðu hönnunar á nýjum leikskóla

2410018

Fulltrúar D-lista óska eftir því að hönnuðir á nýjum leikskóla á Hellu verði fengnir á næsta reglulega fund sveitarstjórnar til að kynna stöðu mála.

Breytingartillaga Á-lista: Lagt til að þegar hönnunarvinna er komin á það stig að hægt sé að kynna vinnuna fyrir kjörnum fullrúum verði það gert og í kjölfarið verði boðið opins íbúafundar.

BG og EÞI tóku til máls.

Samþykkt samhljóða.



10.Tillaga D-lista um nýja göngubrú á Hellu

2410019

Fulltrúar D-lista í sveitarstjórn Rangárþings ytra leggja til að gert verði ráð fyrir fjármagni á árinu 2025 vegna hönnunar á nýrri göngu- og hjólabrú yfir Ytri-Rangá sem tenging við fyrirhugað íbúahverfi á Bjargstúni.

Lagt til að vísa málinu til frekari umfjöllunar í vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.

EÞI tók til máls.

Samþykkt samhljóða.


11.Fyrirspurnir fulltrúa D-lista

2408013

Fulltrúar D-lista í sveitarstjórn Rangárþings ytra óska eftir því að lagt verði fram í sveitarstjórn annars vegar yfirlit yfir heildarkostnað við göngustíg milli Eyjasands og Heiðvangs sem lagður var sumarið 2024. Kostnaðurinn verði sundurliðaður og tiltekið sérstaklega kostnaður við hönnun, undirlag og yfirborð göngustígarins.
Hins vegar verði lagt fram yfirlit yfir heildarkostnað við gangstétt við Langasand sem lögð var sumarið 2024. Kostnaðurinn verði sundurliðaður og tiltekið sérstaklega kostnaður við hönnun (ef einhver er), kostnaður við undirlag og malbikun.

Lagt til að fela sveitarstjóra að svara spurningunum á næsta fundi sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

12.2024 málasafn - Til umsagnar frá nefndasviði Alþingis

2401005

Umsagnarbeiðni Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um námsgögn.
Lagt fram til kynningar.

13.Byggðarráð Rangárþings ytra - 30

2408005F

Fundargerð byggðarráðs lögð fram og staðfest.

Bókun D-lista vegna 7. liðar í fundargerð byggðarráðs frá 25. september 2024.
Fulltrúar D-lista leggja áherslu á að við ákvörðun álagningarprósenta fasteignaskatts og annarra fasteignagjalda sem taka mið af fasteignamati verði horft til þess líkt og síðustu ár að lækka prósentuna þannig að áætlaðar heildartekjur af viðkomandi skattstofni hækki að hámarki sem nemur vísitöluhækkunum á milli ára (BG, EÞI, ÞS).

EÞI tók til máls.

Bókun D-lista vegna 23. liðar í fundargerð byggðarráðs frá 25. september 2024.
Fulltrúar D-lista fagna því að nú sé unnið að því að koma upp dagvistun fyrir fólk með heilabilun og tengda sjúkdóma á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi. Líkt og tillaga D-lista bar með sér og síðari umræður í sveitarstjórn er þjónustan afar brýn. Þau skref sem nú er verið að stíga eru afar mikilvæg í þá átt að koma þjónustunni á og þróa hana áfram þannig að við getum boðið sem besta þjónustu og bætt lífsgæði þess hóps sem hér um ræðir og aðstandendur þeirra (BG, EÞI, ÞS).

BG, EÞI og MHG tóku til máls.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 30 Á fundinn mætir Magnús Ragnarsson formaður Skotíþróttafélagsins Skyttur og gerir grein fyrir starfssemi félagins og þeim samstarfssamningi sem sveitarfélagið hefur lagt upp með félaginu.

    Byggðarráð þakkar Magnúsi fyrir góða yfirferð og leggur til að fjárhagsstuðningur við félagið verði í samstarfssamningum kr. 1,3 millj.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt til að afgreiðsla byggðarráðs verði samþykkt.

    BG og MHG tóku til máls.

    Samþykkt samhljóða.
  • Byggðarráð Rangárþings ytra - 30 Lagður fram viðauki 3 við fjárhagsáætlun 2024. Greinargerð fylgir viðaukanum og fór Klara Viðarsdóttir fjármálastjóri yfir breytingarnar.

    Viðauki 3 gerir ráð fyrir lækkun á rekstrarniðurstöðu um 11 millj. Viðaukanum er mætt er með lækkun á handbæru fé.

    Byggðarráð leggur til að viðaukinn verði samþykktur.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Lagt til að framlagður viðauki við fjárhagsáætlun 2024 verði samþykktur.

    JGV tók til máls.

    Samþykkt samhljóða.
  • 13.11 2409060 Lækjarbakki
    Byggðarráð Rangárþings ytra - 30 Málefni meðferðarheimilisins Lækjarbakka rædd. Í nýju fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir að fasteignin Lækjarbakki við Geldingalæk verði seld. Byggðarráð leggur áherslu á að starfseminni verði fundinn áfram staður í Rangárþingi ytra og viðhalda þannig áralöngu góðu starfi.

    Byggðarráð hvetur ríkið til að tryggja að svo verði.
    Bókun fundar Oddviti fór yfir stöðu Lækjarbakka en erfiðleikar hafa verið að finna nýja aðstöðu eftir að hætt var með starfssemina á Geldingarlæk.

    Lagt fram til kynningar.

14.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 30

2409007F

  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 30 Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við umsóknina og veitir henni almennt jákvæða umsögn, en telur mikilvægt að gott samráð sé haft við lóðarhafa í íbúðabyggðinni áður en lengra er haldið. Nefndin mælir með því við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að kynna málið fyrir öllum lóðarhöfum í íbúðabyggðinni, samhliða og í samráði með umsækjanda þar sem ekki liggur ljóst fyrir að rekstur meðferðarheimilis falli ágreiningslaust undir skilmála um starfsemi innan íbúðabyggðar í dreifbýli. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 30 Skipulags- og umferðarnefnd hefur yfirfarið umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi vegna vindorkuvers við Vaðöldu. Framkvæmdin er í almennu samræmi við það skipulag sem samþykkt hefur verið innan sveitarfélagsins hvað þessi mál varðar en ennþá skortir svör frá Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu svo að hægt sé að meta hagræn áhrif vindorkuversins fyrir sveitarfélagið Rangárþing ytra í samræmi við vindorkustefnu sveitarfélagsins. Nefndin leggur til að sveitarstjórn leiti fastlega eftir svörum frá ráðuneytinu. Nefndin vill árétta að á síðari stigum þarf að sækja um frekari leyfi vegna uppbyggingar vindorkuversins, þ.á.m. efnistöku, gerð áningarstaðar og byggingar vindmylla, vinnubúða og tengivirkis.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 30 Skipulags- og umferðarnefnd telur réttast og leggur til að gangstétt í norður frá Þingskálum verði breikkuð og bílastæði við Þrúðvang 8 og 10 verði þar með lögð af ef ekki er hægt að samræma gangstéttina við leikskólalóðina. Gangstétt verði breikkuð eins og unnt er alveg að Þrúðvangi 32. Snúningsstæði fyrir framan Þrúðvang 32 verði afnumið og svæðið fellt innan lóðar Þrúðvangs 32. Verði skoðað í ferli hverfisskipulagsins fyrir svæðið. Þegar komið er fram yfir lóð 38 við Þrúðvang skal gangstétt vera gerð meðfram Þrúðvangi að Helluvaðsvegi, áfram til norðurs og að Guðrúnartúni. Frá Þrúðvangi og með Helluvaðsvegi að göngustíg við Hólavang.
    Öll lóðamörk tengd gangstéttinni verði aðlöguð þar sem þau verði ekki látin ná inná gangstéttina eins og nú er á nokkrum stöðum.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 30 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimild verði veitt fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli heimilda innan aðalskipulags Rangárþings ytra þar sem gert er ráð fyrir umræddri framkvæmd.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 30 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimild verði veitt fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli heimilda innan aðalskipulags Rangárþings ytra þar sem gert er ráð fyrir umræddri framkvæmd.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.

15.Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31

2409006F

  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Nefndin vill árétta að fyrirhugaðar aðkomur að spildum verða þó ekki staðfestar nema með gerð deiliskipulags. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhuguð heiti á lóðum og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Nefndin vill árétta að fyrirhugaðar aðkomur að spildum verða þó ekki staðfestar nema með gerð deiliskipulags. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformuð landskipti né fyrirhugað heiti á lóð og leggur til að landskiptin verði samþykkt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Formaður nefndarinnar og aðstoðarmaður skipulagsfulltrúa, ásamt Sveini Rúnari yfirlögregluþjóni, fóru í skoðunarferð til að meta umferðaröryggismál í sveitarfélaginu þann 27. september 2024. Á grundvelli þeirrar skoðunar, leggur nefndin til að sveitarstjórn taki eftirfarandi atriði fyrir á næsta fundi sveitarstjórnar með það fyrir augum að uppfæra framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins:

    Gatnamót Heiðvangs og Þingskála
    Setja upp hraðahindrun/gangbraut ásamt skilti við Þingskála neðan við Heiðvang.
    Göngutenging við nýtt skipulag skólasvæðisins.
    Setja biðskylduskilti á Freyvangi.

    Langisandur við Dynskála
    Setja hraðahindrun/gangbraut vegna hjólandi og gangandi umferðar á Langasand áður en komið er að gatnamótum Dynskála.

    Baugöldu
    Setja upp spegla við Baugöldu 7 og á milli Baugöldu 25 og 27.

    Ártún á Hellu
    Meta þörf á spegli við útkeyrslu frá Ártún.

    Hámarkshraði við Útskála
    Ræða hvort hægt sé að lækka hámarkshraða við Útskála úr 30 km/klst niður í 15 km/klst án þess að breyta götunni í vistgötu.

    Umferðamerkingar á Laugalandi
    Beina til Vegagerðarinnar að sett verði upp 50 km hámarkshraðaskilti þegar keyrt er niður Laugalandsveg.
    Setja upp hraðahindrun við Laugalandsveg frá Nefsholti.
    Setja biðskylduskilti við gatnamót Giljatanga og skólalóðar á Laugalandsvegi.

    Spegill við Sporðöldu/Eyjasand
    Ekki talin þörf á spegli að sinni.

    Nefndin leggur til að sveitarstjórn taki þessi atriði til umfjöllunar og rýningar í tengslum við framkvæmdaáætlun.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá lýsingu þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Nefndin vill árétta að Vegagerðin þarf að samþykkja fyrirhugaða tengingu við Háfsveginn. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til deiliskipulagsgerðar og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að farið verði yfir verkefnið á sérfundum. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulags- og umferðarnefnd telur framkvæmdina í samræmi við skipulagsáætlanir og úrskurð og álit Skipulagsstofnunar. Leggur nefndin til við sveitarstjórn að samþykkja framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi á grundvelli heimilda aðalskipulags, gildandi deiliskipulags, umhverfismats framkvæmdarinnar, matsskýrslu framkvæmdaaðila auk annarra fyrirliggjandi gagna og upplýsinga og með vísan til framlagðrar greinargerðar sem unnin er í sameiningu fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp og Rangárþing ytra, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Lagt er til að sveitarstjórn samþykki greinargerðina sem umsögn sína við framlagða umsókn. Auk greinargerðar sveitarfélagsins er lögð fram greinargerð Landsvirkjunar vegna framkvæmdarinnar ásamt heimild Umhverfisstofnunar er varðar breytingu á vatnshloti Þjórsár. Nefndin leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfið verði veitt með þeim skilyrðum sem fram koma í skipulagi, úrskurði og áliti Skipulagsstofnunar og annarra stofnana og leyfisveitenda og gerð er nánar grein fyrir í framlagðri greinargerð, varðandi mótvægisaðgerðir, vöktun og frágang vegna framkvæmdarinnar. Jafnframt er gert ráð fyrir að skipuð verði eftirlitsnefnd í samráði við framkvæmdaaðila og aðra leyfisveitendur. Eftirlitsnefndin mun hafa eftirlit með því að öllum skilyrðum sem framkvæmdinni hafa verið sett sé framfylgt. Eftirlitsnefndin mun, ásamt skipulagsfulltrúa, hafa eftirlit með því að framkvæmdin sé í samræmi við leyfi og úrskurð um mat á umhverfisáhrifum skv. 17. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum. Nefndin mun skila af sér skýrslu um framkvæmd eftirlitsins við lok hvers áfanga framkvæmdarinnar. Sé settum skilyrðum ekki framfylgt, ásigkomulagi, frágangi, notkun eða umhverfi framkvæmdar eða eigin eftirliti framkvæmdaaðila ábótavant eða stafi hætta af framkvæmdinni skal eftirlitsnefndin gera sveitarstjórnum beggja sveitarfélaga grein fyrir frávikum og tilkynna framkvæmaaðila skriflega um frávik og kröfur til úrbóta. Bókun fundar Lagt fram til kynningar en aukafundur verður í sveitarstjórn þann 16. okt. n.k. þar sem málið verður afgreitt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að heimild verði veitt fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli heimilda innan aðalskipulags Rangárþings ytra þar sem gert er ráð fyrir umræddri framkvæmd. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um fram komnar athugasemdir og tekið saman lista yfir viðbrögð við þeim. Nefndin telur að tillagan hafi verið uppfærð m.t.t. framkominna athugasemda. Nefndin samþykkir því tillöguna og leggur til að hún verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Viðbrögð við athugasemdum verði send þeim sem gerðu athugasemdir. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu og leggur til að hún verði send til umsagnar og kynnt skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning lýsingar skal standa í a.m.k. tvær vikur talið frá birtingu auglýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins og í staðarblaði, eða nánar tiltekið frá 10. október til og með 24. október 2024. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um fram komnar umsagnir við lýsinguna og telur að taka beri tillit til þeirra við gerð tillögunnar. Varðandi ábendingu um hringtorg á mótum Rangárvallavegar og Suðurlandsvegar vill nefndin benda á að vegna umferðaröryggis telur Vegagerðin ekki ákjósanlegt að staðsetja hringtorg á umræddum stað og hefur sveitarstjórn tekið fullt tillit til þess við vinnslu fyrirliggjandi skipulagsáætlunar. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Lagt fram til kynningar
    Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í hugmyndirnar. Nefndin leggur til að framkvæmdum á svæðinu verði áfangaskipt og forgangsraðað með áherslu á verslun á hluta skipulagsins. Jafnframt leggur nefndin áherslu á að ásýnd og frágangur á svæði undir eldsneytisafgreiðslu verði til fyrirmyndar og að hugað verði að lágstemmdri lýsingu næst Suðurlandsveginum.
    Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulags- og umferðarnefnd harmar þann misskilning sem lóðarhafi virðist hafa upplifað í samskiptum sínum við sveitarfélagið. Við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins voru umrædd undirgöng felld út af skipulagi og í kjölfarið var ráðist í breytingar á þeim deiliskipulagsáætlunum sem tengdust Suðurlandsveginum. Sú vinna hefur dregist verulega og er beðist afsökunar á því en á því eru ýmsar skýringar. Breyting á deiliskipulagi fyrir miðbæjarsvæðið sem samþykkt var af sveitarstjórn 9. september 2021 sýnir ekki umrædd undirgöng enda stendur til að gerð verði gangbraut rétt austan við gatnamót Freyvangs og Suðurlandsvegar í stað undirgangna. Nefndin telur ekki nokkurn vafa liggja á því að umrædd undirgöng hafi alla tíð frá gerð aðalskipulags Rangárþings ytra 2016-2028 verið skilgreind sem aflögð. Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að þetta mál verði skoðað betur og metið í þeirri skipulagsvinnu sem framundan er á svæðinu. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulags- og umferðarnefnd hefur fjallað um áform umsækjanda. Nefndin leggur til að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi þar sem lóðirnar nr. 5 og 7 við Sandöldu verði sameinaðar í eina. Skoðað verði með frekari breytingar í kjölfarið. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að erindinu verði frestað og álits leitað hjá lögmanni sveitarfélagsins um stöðu sveitarfélgsins gagnvart fyrirliggjandi dómssátt. Bókun fundar Lagt til að niðurstaða skipulags- og umferðarnefndar verði samþykkt.

    Samþykkt samhljóða.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Skipulags- og umferðarnefnd Rangárþings ytra - 31 Lagt fram til kynningar Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

16.Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 12

2410001F

Fundargerðin er staðfest.
  • Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 12 Umhverfis,- hálendis- og samgöngunefnd hefur farið yfir framlagða umhverfisstefnu og leggur til við sveitarstjórn að hún verði samþykkt. Nefndin vill benda á nauðsyn þess að stefnunni verði fylgt eftir með aðgerðaráætlun í samræmi við innihald stefnunnar. Bókun fundar Lögð fram drög að umhverfisstefnu fyrir Rangárþing ytra.

    Lagt til að samþykkja stefnuna og sveitarstjóra verði falið að gera aðgerðaáætlun skv. stefnunni.

    Samþykkt samhljóða.
  • Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 12 Umhverfis,- hálendis- og samgöngunefnd Rangárþings ytra leggst ekki gegn veitingu framkvæmdaleyfis enda telur nefndin að vel sé tekið á mótvægisaðgerðum í meðfylgjandi greinargerðum.

    Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd vill þó benda á nokkur atriði úr greinargerðunum til umhugsunar.
    Hvammsvirkjun hefur þá sérstöðu miðað við margar aðrar virkjanir, að ekki er eingöngu verið að raska náttúru og landslagi, heldur einnig samfélögum fólks sem býr í nágrenni virkjunarinnar. Jarðir fara að hluta undir vatn, en lónið verður 4km2 að stærð, og ásýnd náttúrunnar í nærumhverfi fólks er breytt svo um munar. Þessi atriði ættu að skipta okkur öll máli, hvort sem við búum í nágrenni virkjunar eða fjær.
    Laxastofninn í Þjórsá mun líða fyrir Hvammsvirkjun. Með byggingu virkjunarinnar, er náttúrulegt far laxanna truflað en á móti á að byggja s.k. seiðafleytu sem leysa á málið. Það er hinsvegar ekki ljóst hvort seiðafleyta muni virka því hún hefur aldrei verið reynd áður hér á landi.
    Það er einnig ófyrirséð hvernig lífríki Þjórsár muni breytast almennt. Rennsli um ákveðna hluta árinnar minnkar svo mjög að hún líkist meira stöðuvatni en straumvatni. Þetta mun hafa ófyrirséð neikvæð áhrif á vistkerfi árinnar.
    Það er með þessa virkjun eins og svo margar aðrar, að hún er í eðli sínu ósjálfbær. Verið er að nýta náttúrugæði, náttúruauðlindir, sem ekki er hægt að endurheimta á ný. Með þessari vatnsorkuvirkjun fækkar möguleikunum til að virkja vatnsföll á landsvísu, um einn. Það gerist aftur þegar næsta vatnsfall er virkjað.
    Hún kallast “græn orka?, orkan sem kemur úr endurnýjanlegum orkugjöfum, andstæðan við orku úr bruna á jarðefnaeldsneyti. Raforka úr vatnsorkuveri er skv. þessari skilgreiningu græn, eins orka úr t.d. vindorkuverum og sólarorkuverum. Það má því þó aldrei gleyma að þrátt fyrir endurnýjanleika og grænan lit orkunnar, þá eru framkvæmdirnar vegna orkuveranna það aldrei. Stíflur verða seint fjarlægðar og aldrei verður hægt að færa náttúruleg vatnavistkerfi til fyrra horfs.

    Bókun fundar Lagt fram til kynningar en aukafundur verður í sveitarstjórn þann 16. okt. n.k. þar sem málið verður afgreitt.

    ÞS tók til máls.

    Samþykkt samhljóða.
  • Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 12 Umhverfis,- hálendis- og samgöngunefnd Rangárþings ytra leggst ekki gegn veitingu framkvæmdaleyfis enda telur nefndin að vel sé tekið á mótvægisaðgerðum í meðfylgjandi greinargerðum.
    Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd vill þó benda á nokkur atriði úr greinargerðunum til umhugsunar:
    Staðsetning vindorkuversins við Vaðöldu er vissulega e.k. anddyri hálendisins og að því leyti mun vindorkuverið hafa sjónræn áhrif gagnvart þeim sem hálendið nýta. Það verður þó ekki horft framhjá því að þetta svæði er stórlega raskað vegna virkjanaframkvæmda. Þarna liggja víða háspennulínur og uppistöðulón um allt sem er einfaldlega mjög manngerð ásýnd.
    Innviðir hvað varðar tengingar við flutningskerfi raforku eru nálægir og þar með er staðsetning vindorkuversins góð.
    Miðað við áhættuna af nýtingu vatnsaflsvirkjana þegar hægt gengur að fylla uppistöðulón, er skynsamlegt að geta gripið til vind-raforku.
    Það hefur hinsvegar komið skýrt fram í allri umfjöllun um vindorkuver almennt og ýmsum greinaskrifum að orkuöflun úr vindorkuveri er langt frá því að vera fullkomlega „græn“. Hún byggir vissulega ekki á bruna jarðefnaeldsneytis til orkuframleiðslu heldur vindi, en framkvæmdin sjálf er að hluta óafturkræf. Þó að vindmyllur megi fjarlægja, munu undirstöður þeirra verða áfram til. Gert er ráð fyrir að líftími vindmyllu sé 25 ár. Hvað verður um þær að 25 árum loknum? Verða þær endurnýttar með einhverjum hætti?
    Samlegðaráhrif virkjunarinnar við samfélagslega uppbyggingu eru óljós. Það er ekki ljóst hver hagræn áhrif virkjunarinnar eru á nærsamfélagið, en það eru þessi áhrif sem skipta sveitarfélagið miklu máli.
    Ekki má gleyma heildarsamhengi virkjanamála á landsvísu. Þó svo að hér sé um framkvæmd að ræða innan sveitarfélagsins Rangárþings ytra, hefur hún áhrif á nágranna okkar og landsmenn alla.
    Umhverfis- hálendis- og samgöngunefnd hvetur sveitarstjórn til að þrýsta á stjórnvöld um endurskoðun á lagaumhverfi vindorkuvera og að gerð verði landsáætlun um nýtingu vindorku sem hægt verði að nota til framtíðar. Með slíka áætlun í farteskinu væri talsvert auðveldara fyrir einstök sveitarfélög að taka ákvarðanir sem þessar.
    Bókun fundar Lagt fram til kynningar.

17.Sorpstöð Rangárvallasýslu bs - 239

2409009F

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

18.Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd - 9

2408007F

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

19.Oddi bs - 28

2408003F

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

20.Oddi bs - 29

2409003F

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

21.Sveitarstjórn - vinnufundur - 1

2409002F

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

22.Byggðarráð - vinnufundur - 22

2409013F

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

23.Fundargerðir 2024 - stjórn Félags- og skólaþj. Rangárv. og V-Skaft.

2401042

Liður 1 þarfnast staðfestingar.
Lagt til að veita heimild til að leita tilboða í verkefnisstjórn fyrir samþættingu þjónustu í tengslum við samþættingu þjónustu í tengslum við lög um farsæld barna og einnig að veita umboð til að leiða innleiðingu farsældarlaga á okkar svæði.

MHG tók til máls.

Samþykkt samhljóoða.

Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.

24.Fundargerðir stjórnar SíS - 2024

2401033

Fundargerð 952. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

25.Fundargerðir 2024 - Samtök orkusveitarfélaga

2401037

Fundargerð 76. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

26.Fundargerðir 2024 - Heilbrigðisnefnd Suðurlands

27.Stjórnarfundir 2024 - Arnardrangur hses

2405043

Fundargerð 17. fundar stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

28.Aðalfundur Vottunarstofunar Túns ehf 2024

2408023

Aðalfundargerð 2024.
Lagt fram til kynningar.

29.Fundargerðir stjórnar SASS - 2024

2401032

Fundargerðir 612. og 613. fundar- stjórnar.
Lagt fram til kynningar.

30.Ársfundur SSKS 2024 - Samtök sveitarf. á köldum svæðum

2410013

Fundarboð á ársfund SSKS þann 9. okt. nk.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:00.