1.Framkvæmdir á Laugalandi
2601068
2.Viðhalds og framkvæmdaáætlun 2024-2026
2408032
Tómas Haukur fór yfir stöðu viðhalds- og framkvæmdamála vegna ársins 2026.
Helstu verkefni sem unnið er að núna eru framkvæmdir við nýja vegtengingu vegna stækkunar Reykjagarðs og ljúka við lýsingu á göngustíg milli Heiðvangs og Eyjasands.

3.Stækkun skólasvæðis Hellu 2.áfangi
2209059
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á 2. áfanga við stækkun Grunnskólans á Hellu.
Verið er að vinna að uppsetningu innréttinga, vinna við raflagnir og uppsetningu kerfislofts. Von er á nýjum gólfdúk á næstunni í stað þess sem skemmdist í flutningum. Verið er að leita eftir tilboðum í hljóðkerfi, annan búnað og svið og er lagt til að fela forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs að ganga að hagstæðasta tilboði. Þá er verið að vinna að grófjöfnun lóðarinnar og undirbúningi leikskólalóðar.

4.Nýbygging Leikskóla 3. áfangi
2402047
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda vegna byggingu á leikskóla á Hellu.
Fyrsti áfangi við jarðavinnu er á lokametrunum en hefur tafist lítillega utanaðkomandi aðstæðna. Útboðsgögn fyrir burðarvirki eru tilbúin og stefnt að útboði á næstu dögum.

5.Íþróttavöllur Hellu færsla.
2404137
Tómas Haukur fór yfir stöðu framkvæmda við gervigrasvöllinn á Hellu.
Verið er að vinna að betrumbótum á vellinum og laga yfirborð hans.
Þá er byrjuð vinna við undirbúning við að klæða utan á lausar kennslustofur sem eru við völlinn og nýttar verða fyrir búnings- og sturtuaðstöðu.

6.Bjargshverfi. Staða framkvæmda
2311062
Farið var yfir stöðu framkvæmda við Bjargshverfið í ljósi þess að búið er að samþykkja deiliskipulag fyrir hverfið.
Lagt til að fela forstöðumanni framkvæmda- og eignasviðs að leita eftir tilboðum í veg- og veituhönnun í Bjargshverfinu.
Samþykkt samhljóða.

7.Rangárljós. Arðgreiðsla 2026
2601015
Nefndin leggur til að greiddur verði út kr. 25 millj. arður úr Rangárljósum vegna ársins 2025 í samræmi við fjárhagsáætlun ársins.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.Merkihvoll vegur
2510165
Lagt fram erindi eiganda sumarhúsalóðarinnar Merkihvols 15 varðandi akveg að sumarhúsahverfinu í Merkihvoli en byggðarráð vísaði málinutil nefndarinnar.
Lagt til að fela sveitarstjóra og forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs að ræða við fulltrúa eigenda sumarhúsalóðana.
Samþykkt samhljóða.
Lagt til að fela sveitarstjóra og forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs að ræða við fulltrúa eigenda sumarhúsalóðana.
Samþykkt samhljóða.
9.Tæming rotþróa í RY
2506044
Forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs fór yfir stöðu málsins.
Verið er að klára útboðsgögnum um tæmingu rotþróa í Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra og þau send út fljótlega. Stefnt er að því að niðurstaða útboðs liggi fyrir seinni partinn í apríl.

Fundi slitið - kl. 10:45.
Lagt er til að ráðinn verði verkefnastjóri til að halda utan um framkvæmdir á Laugalandi. Forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.