Málsnúmer 1303018
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd Rangárþings ytra - 87. fundur - 09.11.2015
Ferðafélagið Útivist hefur fengið heimild til deiliskipulagsgerðar á svæðinu við Strútslaug í Hólmsárbotnum að Fjallabaki. Sóst verður eftir að reisa 30-40 m² skála á svæðinu með salernis- og búningsaðstöðu. Einnig verður umhverfi við laugina bætt og göngustígur lagður á svæðinu.
Skipulagsnefnd telur að þar sem svæðið liggur á mörkum tveggja sveitarfélaga, Skaftárhrepps og Rangárþings ytra, þurfi sveitarstjórn Skaftárhrepps einnig að fjalla um erindið. Skipulagsnefnd telur að umrædd framkvæmd sé minniháttar og ekki þess eðlis að hún kalli á mat á umhverfisáhrifum, en er nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir frekara tjón á náttúruminjum af völdum vatnavaxta. Skipulagsnefnd samþykkir því tillöguna fyrir sitt leyti og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 89. fundur - 11.01.2016
Skúli H. Skúlason, framkvæmdastjóri Útivistar, hefur fengið heimild til deiliskipulagsgerðar á svæðinu við Strútslaug í Hólmsárbotnum að Fjallabaki. Sóst verður eftir að reisa skála á svæðinu ásamt salernis- og búningsaðstöðu.
Lýsing á áformum ásamt tillögu hefur verið kynnt sveitarstjórn Skaftárhrepps og bárust engar athugasemdir.
Lýsing á áformum ásamt tillögu hefur verið kynnt sveitarstjórn Skaftárhrepps og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Leita skal samhliða eftir umsögn Forsætisráðuneytisins vegna uppbyggingar innan þjóðlendu.
Einnig leggur nefndin til að Hálendisnefnd Rangárþings ytra verði send tillagan til umsagnar.
Leita skal samhliða eftir umsögn Forsætisráðuneytisins vegna uppbyggingar innan þjóðlendu.
Einnig leggur nefndin til að Hálendisnefnd Rangárþings ytra verði send tillagan til umsagnar.
Hálendisnefnd - 2. fundur - 03.02.2016
Skúli H. Skúlason, framkvæmdastjóri Útivistar, hefur fengið heimild til deiliskipulagsgerðar á svæðinu við Strútslaug í Hólmsárbotnum að Fjallabaki. Sóst verður eftir að reisa skála á svæðinu ásamt salernis- og búningsaðstöðu. Við afgreiðslu erindisins í sveitarstjórn Skaftárhrepps kom í ljós athugasemd sem snýr að afmörkun sveitarfélagamarka á uppdrætti tillögunnar.
Skipulagsfulltrúi kynnti fyrirliggjandi áform við Strútslaug. Nefndin gerir ekki athugasemdir við tillöguna en bendir á nauðsyn þess að farið skal með ítrustu varúð við flutning á efni sem tilheyrir þeim mannvirkjum sem ráðgert er að reisa.
Nefndin er ekki sammála túlkun Skaftárhrepps um að farið sé frjálslega með mörk sveitarfélaganna. Þó að vörpun hnita úr gömlu hnitakerfi í ÍSNET93 hliðri sveitarfélagamörkum þá er alkunna og hefð til langs tíma að hornpunktur sveitarfélagamarka sé í Strútslaug sjálfri.

Skipulags- og umferðarnefnd - 90. fundur - 08.02.2016
Skúli H. Skúlason, framkvæmdastjóri Útivistar, hefur lagt fram deiliskipulag af svæðinu við Strútslaug í Hólmsárbotnum að Fjallabaki. Sóst verður eftir að reisa skála á svæðinu ásamt salernis- og búningsaðstöðu. Á kynningartíma tillögunnar komu fram athugasemdir frá Skaftárhreppi.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með fyrirvara um að sveitarfélagamörk verði leiðrétt á uppdrættinum eins og dómur hæstaréttar frá 1989 segir til um. Skipulagsfulltrúa er falið að fylgja því eftir að það verði gert með fullnægjandi hætti og leggja fyrir skipulagsnefnd þegar uppdráttur liggur fyrir.
Skipulags- og umferðarnefnd - 91. fundur - 07.03.2016
Skúli H. Skúlason, framkvæmdastjóri Útivistar, hefur fengið heimild til deiliskipulagsgerðar á svæðinu við Strútslaug í Hólmsárbotnum að Fjallabaki. Sóst verður eftir að reisa skála á svæðinu ásamt salernis- og búningsaðstöðu.
Í athugasemdarferli tillögunnar barst athugasemd frá Skaftárhreppi um að mörk sveitarfélaga væru röng á uppdrætti. Hafði það áhrif á hvort um sameiginlegt deiliskipulag yrði að ræða eða eingöngu innan Rangárþings ytra. Eftir rannsókn skipulagsfulltrúa kom í ljós að skurðpunktur sá sem myndast frá línu úr Strúti að laugasvæðinu og sker sjónhendingu að Torfajökli, lendir austan við manngerðu laugina og því er framkvæmdasvæðið allt innan Rangárþings ytra.

Skipulagsnefnd samþykkir því tillöguna og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt verði tillagan send sveitarstjórn Skaftárhrepps til umsagnar.
Skipulags- og umferðarnefnd - 94. fundur - 06.06.2016
Lögð hefur verið fram tillaga að deiliskipulagi á svæðinu við Strútslaug í Hólmsárbotnum að Fjallabaki. Sóst verður eftir að reisa skála á svæðinu ásamt salernis- og búningsaðstöðu. Tillagan var auglýst frá 17. mars til 28. apríl. Athugasemdir bárust frá umsagnaraðilum sem lúta að því hvernig brugðist skuli við öflun neysluvatns og með hvaða hætti fráveitumálin verða.
Skipulagsnefnd telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.