Málsnúmer 1703009
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 108. fundur - 06.03.2017
Rangárþing ytra skoðar möguleika á stækkun íbúðarsvæðis á Öldum III.
Skipulagsnefnd leggur til að hafist verði handa við deiliskipulag á austursvæði í Ölduhverfi III í samræmi við gildandi aðalskipulag.
Skipulags- og umferðarnefnd - 112. fundur - 08.05.2017
Rangárþing ytra skoðar möguleika á stækkun íbúðarsvæðis á Öldum III. Lagðar eru fram hugmyndir.
Lagðar fram hugmyndir til kynningar.
Skipulags- og umferðarnefnd - 124. fundur - 12.02.2018
Rangárþing ytra vinnur að deiliskipulagi að nýju íbúðasvæði austan við núverandi byggð í Öldum III. Gert er ráð fyrir allt að 70 lóðum, bæði fyrir einbýlishús og par/raðhús fyrir allt að 130 íbúðir. Svæðið bætist við og verður hluti af núverandi hverfi við Langöldu og Eyjasand. Lögð er fram tillaga og greinargerð.
Skipulagsnefnd frestar erindinu.
Skipulags- og umferðarnefnd - 128. fundur - 04.06.2018
Rangárþing ytra skoðar möguleika á stækkun íbúðarsvæðis á Öldum III. Lögð er fram tillaga.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 20.08.2018
Rangárþing ytra hefur auglýst tillögu að deiliskipulagi fyrir stækkun íbúðarsvæðis á Öldum III. Tillagan var auglýst frá 6.6.2018 til og með 18.7.2018. Ábending barst frá Umhverfisstofnun um að tengingar íbúðargatna við Helluvang væru óæskilegar. Ekki bárust aðrar athugasemdir.
Skipulagsnefnd telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. Nefndin leggur jafnframt til að hugað verði að uppsetningu þrenginga í formi hraðahindrana í göturnar svo ekki þurfi að loka þeim í endann.
Skipulags- og umferðarnefnd - 5. fundur - 08.10.2018
Rangárþing ytra hefur auglýst tillögu að deiliskipulagi fyrir stækkun íbúðarsvæðis á Öldum III. Í afgreiðslu Skipulagsstofnunar komu fram athugasemdir sem lúta að samræmi við gildandi aðalskipulag.
Skipulagsnefnd telur að túlkun stofnunarinnar miðist við fjölda íbúða en ekki fjölda lóða. Í greinargerð gildandi aðalskipulags (bls. 74) er tafla yfir íbúðarsvæði og dálkar sem kallast „byggt og óbyggt“. Óbyggðar lóðir í dag eru um 120 talsins.
Í aðalskipulaginu kemur líka fram að þéttleiki nýrrar íbúðarbyggðar skuli á nýjum íbúðarsvæðum vera á bilinu 10-35 íb/ha. Á þessu 12 ha svæði ættu því að geta verið á bilinu 120 til 420 íbúðir. Nefndin telur því að tillagan samræmist að fullu gildandi aðalskipulagi hvað þetta varðar. Í tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi, sem er í ferli, verði íbúðasvæði stækkað og heimilaðar fleiri lóðir.
Varðandi afmörkun svæðisins í tillögunni telur nefndin að um frekar óverulega skekkju sé að ræða sem kalli ekki á breytta afmörkun í aðalskipulagi. Skipulagsfulltrúa verði falið að senda tillöguna til endanlegrar afgreiðslu Skipulagsstofnunar.