Málsnúmer 2303011

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 12. fundur - 08.03.2023

Fulltrúar D-lista Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórn Rangárþings ytra leggja til að byggðarráði verði falið að skoða með hvaða hætti megi efla stafræna stjórnsýslu sveitarfélagsins og leggja fram greinargerð fyrir sveitarstjórn fyrir sumarleyfi sveitarstjórnar.

Lagt til að vísa tillögunni til byggðarráðs til úrvinnslu.

IPG tók til máls.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 11. fundur - 22.03.2023

Byggðarráð leggur til að sveitarstjóra verði falið að gera yfirlit yfir það hvernig stafrænar lausnir séu nýttar í starfsemi sveitarfélagsins og leggja fram á næsta reglulega fundi byggðarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 13. fundur - 26.04.2023

Lagt fram til kynningar drög að minnisblaði frá Eiríki Vilhelm Sigurðarsyni markaðs- og kynningarfulltrúa um málið.

Byggðarráð Rangárþings ytra - 14. fundur - 24.05.2023

Á fundinn mætir Eiríkur Vilhelm Sigurðarsson markaðs- og kynningarfulltrúi og kynnir drög að minnisblaði vegna málsins.

Byggðarráð leggur til að endanlegu minnisblaði verði skilað á næsta fundi sveitarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 16. fundur - 14.06.2023

Yfirlit um stafræna stjórnsýslu.
Lagt fram til kynningar yfirlit markaðs- og kynningarfulltrúa um stafræna stjórnsýslu sveitarfélagsins.

IPG tók til máls.

Bókun fulltrúa D-lista vegna greinargerðar um stafræna stjórnsýslu
Fulltrúar D-lista þakka fyrir framlagða greinargerð. Hún sýnir að tækifæri eru til staðar til að efla enn frekar stafræna stjórnsýslu. Hvetja fulltrúar D-lista til þess að skoðaðar verði þær leiðir sem ONE-kerfið býður upp á til að efla enn frekar stafræna stjórnsýslu og þjónustu við íbúa. Jafnframt hvetja fulltrúar D-lista til þess að sveitarfélagið taki upp rafrænar undirskriftir m.a. vegna fundargerða.
IPG, EÞI, BG.