Málsnúmer 2508039
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 49. fundur - 21.08.2025
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sendir afrit kæru dags. 18.8.2025, móttekin af nefndinni sama dag.
NASF Á ÍSLANDI, kt. 601217-2440, Síðumúla 34, Reykjavík, NÁTTÚRUGRIÐ, kt. 490721-0960, Bergþórugötu 17, Reykjavík, NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK ÍSLANDS, kt. 460697-2049 Hafnarstræti 5, Reykjavík, hafa falið lögmanni að kæra ákvörðun sveitarstjórnar Rangárþings ytra frá 15. ágúst 20251 um að veita Landsvirkjun nýtt framkvæmdaleyfi skv. umsókn fjórum dögum fyrr, vegna Hvammsvirkjunar í stað annars sem veitt var 16. október 2024. Jafnframt er afturkölluð kæra sömu aðila frá 23. október 2024 á síðastgreindu leyfi, mál nefndarinnar 133/2024. Kært er ætlað brot á þátttökurétti almennings í mati á umhverfisáhrifum almennt og aðrir ágallar á málsmeðferð, meðal annars en ekki einvörðungu að því er varðar áhrif á grunnvatn og eldhraun.

Lagt fram til kynningar
Skipulags- og umferðarnefnd - 50. fundur - 04.09.2025
Meðfylgjandi er greinargerð sveitarfélagsins vegna framkominnar stöðvunarkröfu í ofangreindu máli.
Lagt fram til kynningar
Skipulags- og umferðarnefnd - 51. fundur - 18.09.2025
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sendir frá sér bráðabirgðaúrskurð í máli vegna kæru nr. 130/2025, þar sem hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda.
Lögð er fram uppfærð greinargerð leyfisveitanda.
Lögð er fram uppfærð greinargerð leyfisveitanda.
Lagt fram til kynningar
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 17. fundur - 25.09.2025
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sendir frá sér bráðabirgðaúrskurð í máli vegna kæru nr. 130/2025, þar sem hafnað er kröfu kærenda um stöðvun framkvæmda. Lögð er fram uppfærð greinargerð leyfisveitanda.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og umferðarnefnd - 55. fundur - 21.11.2025
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sendir frá sér úrskurð í máli vegna kæru nr. 130/2025, þar sem hafnað er kröfu kærenda um ógildingu á ákvörðun sveitarstjórnar Rangárþings ytra frá 15. ágúst 2025 um að veita framkvæmdaleyfi fyrir undirbúningsframkvæmdum vegna Hvammsvirkjunar.
Lagt fram til kynningar
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 18. fundur - 05.12.2025