Reglur um tekjutengdan afslátt af fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum í Rangárþingi ytra árið 2026


Reglur um afslátt af fasteignaskatti og fráveitu- og rotþróargjaldi til elli- og örorkulífeyrisþega í sveitarfélaginu Rangárþingi ytra.


1. gr.
Fasteignaskattur og fráveitu- og rotþróargjald af íbúðarhúsnæði í eigu tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega í sveitarfélaginu Rangárþing ytra sem þeir nýta sjálfir, skal lækkaður eða felldur niður samkvæmt heimild í 4.mgr. 5.gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.


2. gr.
Til að njóta afsláttar þarf að uppfylla annað hvort:

a) vera 67 ára á næsta ári á undan álagningarári eða
b) hafa verið úrskurðaðir 75% öryrkjar fyrir 1. janúar 2026.

Afslátturinn nær einungis til þeirrar íbúðar sem viðkomandi sannanlega býr í.
Rangárþing ytra sækir upplýsingar við útreikning afsláttar í upplýsingakerfi ríkisskattstjóra. Ekki er þörf á að sækja um afsláttinn til sveitarfélagsins nema samkvæmt 4. gr. hér að neðan.


3. gr.
Niðurfelling eða lækkun miðar við allar skattskyldar tekjur þ.m.t. fjármagnstekjur ársins 2024 eins og þær eru samkvæmt skattframtali 2025, endurskoðað í ágúst miðað við tekjur 2025 samkvæmt skattframtali 2026. Miðað er við sameiginlegar tekjur hjóna og samskattaðs sambýlisfólks.


a) Ef um er að ræða einstaklinga:

með brúttótekjur undir kr. 4.541.875 getur niðurfelling orðið 100%
með brúttótekjur milli kr. 4.541.876 – 5.252.450 getur niðurfelling orðið 75%
með brúttótekjur milli kr. 5.252.451 – 5.998.500 getur niðurfelling orðið 50%
með brúttótekjur milli kr. 5.998.501 – 6.754.225 getur niðurfelling orðið 25%


b) Ef um er að ræða hjón:

með brúttótekjur undir kr. 6.769.275 getur niðurfelling orðið 100%
með brúttótekjur milli kr. 6.769.276 – 7.804.500 getur niðurfelling orðið 75%
með brúttótekjur milli kr. 7.804.501 – 8.827.900 getur niðurfelling orðið 50%
með brúttótekjur milli kr. 8.827.901– 9.877.100 getur niðurfelling orðið 25%


Viðmiðunartekjurnar eru heildartekjur umsækjanda, þ.e tekjur sem mynda álagningarstofn tekjuskatts- útsvars og fjármagnstekjuskatts eins og þessar tekjur voru næsta ári á undan álagningarári.


4. gr.
Við fráfall maka/sambýlismanns tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega er eftirlifandi maka með tekjur allt að 7.617.450 krónur á ári heimilt að sækja um sérstakan afslátt af fasteignaskatti og fráveitu- og rotþróargjaldi af húsnæði sem hann býr í. Tekjuviðmið eru þau sömu og í 2.gr. um tekjuviðmið.


Jón G Valgeirsson
sveitarstjóri Rangárþings ytra