Gjaldskrá 2026

Ef ósamræmi er á milli þess texta sem hér er að neðan og pdf skjalsins þá gildir pdf skjalið.

1. gr. - Heimild

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt ákvæðum 11. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum. Sorphirðugjald og sorpeyðingargjald innheimtast með álögðum fasteignagjöldum ár hvert. Gjöld skv. 2.-4. gr. taka breytingum skv. vísitölu neysluverðs til verðtryggingar í upphafi hvers árs.

2. gr. - Sorphirðugjald

Innheimta skal sorphirðugjald af öllu íbúðarhúsnæði skv. eftirfarandi álagsgrunni.

Ílátastærð

Grátunna

Blátunna Græntunna Lífræn
240 l ílát

17.600 kr.

5.900 kr. 5.900 kr. 5.900 kr.
660 l ílát  52.600 kr. 17.600 kr.   17.600 kr.  
140 l ílát 10.200 kr.     3.400 kr.

Sorphirðugjald fyrir grunneiningu íláta er kr. 29.400 og inniheldur 240l blátunnu, 240l grátunnu, 240l græntunnu og brúnt ílát í tunnu fyrir lífrænan úrgang. Hægt er að fá fleiri og/eða stærri ílát.

3. gr. - Sorpeyðingargjald

Innheimta skal sorpeyðingargjald kr. 31.600 af öllu húsnæði í Rangárvallasýslu, þ.e. íbúðar-, frístunda-, og atvinnuhúsnæði. Sorpeyðingargjald tekur til reksturs sorpkerfisins, s.s. rekstur grenndarstöðva, móttökustöðvar og förgunar- og endurvinnsluleiða. Greiðsla þess veitir viðkomandi aðilum aðgengi að sorpkerfinu og afsetningu á heimilisúrgangi. Rekstraraðilar sem afsetja rekstrarúrgang á móttökustöðinni Strönd vegna atvinnureksturs skulu greiða fyrir það, sjá 4. gr. Gjaldtaka á Strönd er ekki hluti af sorpeyðingargjaldi sveitarfélagsins.

4. gr. - Gjaldtaka á móttökustað

Úrgangstegund kr. kg. án VSK kr. kg. m/VSK Gjaldskyldir
Blandaður heimilisúrgangur 60 74 Fyrirtæki/einstaklingar
Grófur úrgangur - pressanlegur 72,5 90 Fyrirtæki/einstaklingar
Grófur úrgangur til flokkunar 85 105 Fyrirtæki/einstaklingar
Harðplast með úrvinnslugjaldi (s.s. brúsar, fötur) 5,5 7 Fyrirtæki/einstaklingar
Heimilisplast 5,5 7 Fyrirtæki
Blandaður pappír/pappi 18 22 Fyrirtæki
Bylgjupappír 5,5 7 Fyrirtæki
Timbur hreint 15 19 Fyrirtæki/einstaklingar
Timbur litað 25 31 Fyrirtæki/einstaklingar
Garðaúrgangur, trjábolir, greinar og jarðvegur 5 6 Fyrirtæki
Óvirkur úrgangur (gler, flísar, postulín o.fl.) 15 19 Fyrirtæki/einstaklingar
Dýraleyfar 40 50  Fyrirtæki/einstaklingar
Lífrænn heimilisúrgangur 27 33 Fyrirtæki
Heyrúlluplast, áburðarpokar - hreint   0  
Hjólbarðar   0  
Málmar   0  
Spilliefni, raftæki   0  
Heimsendur gámur, flokkaður - 40.000 kr. m/VSK     Einstaklingar
Vélavinna vegna losunar undir 1 rúmmetra 2.419 3.000 Fyrirtæki/einstaklingar
Vélavinna vegna losunar yfir 1 rúmmetra 4.838 6.000 Fyrirtæki/einstaklingar

 

Heimilt að leggja á lágmarksgjald fyrir eðlislétt sorp (t.d. einangrunarplast) kr. 1.200 m3

Heimilt er að innheimta útlagðan förgunarkostnað sem hlýst af móttöku spilliefna.

Heimilt er að leggja 10.000 kr gjald á aðila er verða uppvísir að losun úrgangs fyrir utan grenndargáma

Óflokkaðir ferðavagnar og heitir pottar tilheyra grófum úrgangi til flokkunar.

Óhreint landbúnaðarplast tilheyrir blönduðum heimilisúrgangi.

Ef óflokkað er í heimsendan gám skal greitt skv. þyngd innihaldsins. Heimsendir gámar eru einungis fyrir íbúa í Rangárvallasýslu.

Klippikort með 5 m3 af gjaldskyldum úrgangi er í boði fyrir þá sem greiða sorpeyðingargjald.

5.gr. - Samþykki og staðfesting

Gjaldskrá þessi var samþykkt á fundi stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. þann 10.11.2025 og staðfest af sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga sem reka Sorpstöð Rangárvallasýslu. Gjaldskráin gildir frá birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1475/2024

 

Strönd 2025

Eggert Valur Guðmundsson,

formaður stjórnar Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.