Gjaldskrá fyrir Rangárljós 2026
1. Almennt
Verðskrá þessi gildir fyrir starfssvæði Rangárljóss í Rangárþingi ytra.
Virðisaukaskattur bætist við gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari miðað við gildandi reglur á hverjum tíma.
2. Áskriftargjald
Mánaðarlegt áskriftargjald er kr. 3.500 + vsk.
3. Gjöld fyrir breytingar
Ef færa þarf heimtaug notanda í kerfis miðjum Rangárljóss frá einu porti yfir í annað, t.d. frá fjarskiptabúnaði fjarskiptafélags yfir í fjarskiptabúnað annars félags er innheimt breytingagjald að upphæð 6.000,- auk vsk og greiðir það fjarskiptafélag gjaldið sem óskar eftir breytingunni.
4. Tengigjald nýrra notenda
Fyrir nýja tengingu greiðist einskiptisgjald kr. 240.000 + vsk auk því sem næst raunkostnaðar við að leggja ljósleiðara frá stofnstreng að tengistað.
Heimilt er að jafna út kostnaði í hverfum þannig að hver tengistaður greiði sama gjald óháð raunkostnaði.
5. Leiga á ljósþráðum innan kerfisins
Fjarskiptafélögum stendur til boða að leigja ljósþræði til annarra nota en tengingu endanotenda. Vegalengdir miðast við loftlínu á milli staða og miðast gjaldtaka við hvern hafinn kílómeter. Miðað er við að ekki þurfi að gera breytinga á streng. Ef gera þarf breytingar þá bætist tíma- og tækjakostnaður í samræm við við umfang breytinga. Að öðru leiti er ekkert stofn- eða upphafsgjald vegna leigu. Öll verð eru á án vsk.
Leigugjald fyrir ljósleiðaraþræði í streng er eftirfarandi:
| Fjöldi þráða | kr./km. á mánuði |
| 1 | 7.914,- |
| 2 | 9.891,- |
| 3 | 11.871,- |
| 4 | 13.849,- |
6. Aðstöðuleiga í tækjarými á Hellu
Fjarskiptafélögum sem nýta sér aðgangskerfi Rangárljóss stendur til boða að leigja aðstöðu fyrir fjarskiptabúnað í tækjarými á Hellu skv. neðan greindu:
| 1 skáparými | 49.816,- pr mánuð auk vsk |
| ½ skáparými | 24.907,- pr. mánuð auk vsk |
Rangárljós getur útvegað aðgang að 230V rafmagni og greiðir leigjandi fyrir því sem næst raunnotkun á rafmagni.
7. Önnur ákvæði.
Rangárljós leggur ljósleiðara að tengistað en útvegar ekki endabúnað til notkunar.
Ekki er gert ráð fyrir að farið verði í tengingar í sumarhúsahverfum nema náist um 60% þátttaka í hverfinu.
Stofngjöld verða innheimt þegar framkvæmdir byrja en heimilt er að dreifa greiðslu þeirra í 8 mánuði.
Gjaldskrá þessi var samþykkt af sveitarstjórn Rangárþings ytra 10.12.2025 og tekur gildi 1.1.2026 og fellur þá úr gildi eldri gjaldskrá frá 11.12.2024.
f.h. Rangárljóss
10. desember 2025
Jón G Valgeirsson