Málsnúmer 2503034
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 40. fundur - 19.03.2025
Lóðarhafi Rangárbakka 8a, 8b og 8c óskar eftir að fá að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 11.10.2012. Bætt verði við allt að sjö gistiskálum á svæði A, svæðið B og C verða óbreytt, fallið verði frá fyrirhugaðri breytingu á svæði D og núverandi gistiskálar látnir halda sér. Á svæði E verði gert ráð fyrir hótelbyggingu á tveimur hæðum með grunnfleti allt að 2000 m². Allt að 75 herbergi, fundaraðstaða og matsalur. Að auki verði bætt við aðstöðu fyrir starfsfólk í allt að 390 m² húsi á einni hæð. Tillaga að breytingu frá Ragnari Magnússyni, i62 ehf, dags. 7.3.2025.
Skipulagsnefnd samþykkir að veita heimild til breytingar á gildandi deiliskipulagi og leggur til að fallið verði frá kynningu lýsingar þar sem skipulagsáætlun samræmist stefnu aðalskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt framlagða tillögu og leggur til að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin áréttar að núverandi kvöð um lagnir og umferðarrétt að hreinsivirki sveitarfélagsins verði viðhaldið og að göngustígur meðfram árbakka skerðist ekki við fyrirliggjandi áform.
Skipulags- og umferðarnefnd - 57. fundur - 08.01.2026
Lóðarhafi Rangárbakka 8a, 8b og 8c hefur lagt fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 11.10.2012. Fyrir á svæðinu eru þjónustuhús á einni hæð og lítið geymsluhús á reit E. Á reit B eru tvö salernishús auk 6 lítilla gistiskála á einni hæð. Á reit C eru 4 lítil gistihús á einni hæð. Breytingin felur í sér að hætt hefur verið við byggingu gistihúss á reit E. Þar verði byggt hótel í staðinn og nýtt lúxushótel á reit I. Starfsmannahús á einni hæð verði á reit F. Skipulagsgögn frá Ártúni ehf, dags. 15.12.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd frestar afgreiðslu að sinni og felur formanni og skipulagsfulltrúa að funda með umsækjanda og ráðgjafa hans.
Skipulags- og umferðarnefnd - 58. fundur - 22.01.2026
Lóðarhafi Rangárbakka 8a, 8b og 8c hefur lagt fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 11.10.2012. Fyrir á svæðinu eru þjónustuhús á einni hæð og lítið geymsluhús á reit E. Á reit B eru tvö salernishús auk 6 lítilla gistiskála á einni hæð. Á reit C eru 4 lítil gistihús á einni hæð. Breytingin felur í sér að hætt hefur verið við byggingu gistihúss á reit E. Þar verði byggt hótel í staðinn og nýtt lúxushótel á reit I. Starfsmannahús á einni hæð verði á reit F. Skipulagsgögn frá Ártúni ehf, dags. 15.12.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd leggur til að fram lögð tillaga verði kynnt Hestamannafélaginu/Rangárbökkum, Veiðifélaginu og eigendum Haga\KS-lóðarinnar áður en ákvörðun verður tekin um frekara skipulagsferli.
Skipulags- og umferðarnefnd - 62. fundur - 05.03.2026
Lóðarhafi Rangárbakka 8a, 8b og 8c óskar eftir að fá að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 11.10.2012. Bætt verði við allt að sjö gistiskálum á svæði A, svæðið B og C verða óbreytt, fallið verði frá fyrirhugaðri breytingu á svæði D og núverandi gistiskálar látnir halda sér. Á svæði E verði gert ráð fyrir hótelbyggingu á tveimur hæðum með grunnfleti allt að 2000 m². Allt að 75 herbergi, fundaraðstaða og matsalur. Að auki verði bætt við aðstöðu fyrir starfsfólk í allt að 390 m² húsi á einni hæð. Tillaga að breytingu frá Ragnari Magnússyni, i62 ehf, dags. 7.3.2025. Forkynning á áformum umsækjanda var send til þriggja aðila, Hestamannafélagsins, Veiðifélagsins og til eigenda lóðanna við Suðurlandsveginn norðan við sláturhúsið. Umsögn barst frá Veiðifélaginu þar sem umræddum áformum var harðlega mótmælt.
Skipulags- og umferðarnefnd hefur farið yfir fram komnar umsagnir og athugasemdir. Nefndin telur að gera verði frekari grein fyrir þeim þáttum sem snúa að mótvægisaðgerðum vegna mengunarhættu frá baðlóni auk þess að skilgreina þurfi betur hæðir húsa að teknu tilliti til mögulegrar flóðahættu úr Ytri-Rangá. Nefndin óskar eftir fundi með umsækjendum og verði hann á næsta reglulega fundi.
Skipulags- og umferðarnefnd - 65. fundur - 22.04.2026
Haukur Óskarsson og Hjörleifur fóru yfir áform um uppbyggingu á svæðinu.
Lóðarhafi Rangárbakka 8a, 8b og 8c óskar eftir að fá að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 11.10.2012. Bætt verði við allt að sjö gistiskálum á svæði A, svæðið B og C verða óbreytt, fallið verði frá fyrirhugaðri breytingu á svæði D og núverandi gistiskálar látnir halda sér. Á svæði E verði gert ráð fyrir hótelbyggingu á tveimur hæðum með grunnfleti allt að 2000 m². Allt að 75 herbergi, fundaraðstaða og matsalur. Að auki verði bætt við aðstöðu fyrir starfsfólk í allt að 390 m² húsi á einni hæð. Eigandi kemur og fer yfir áherslur sínar.
Lóðarhafi fór yfir hugmyndir sínar og áform um uppbyggingu á svæðinu auk þess að sýna áhuga sinn á uppbyggingu á lóð nr. 4. Lagt fram til kynningar.
Þeim félögum þökkuð góð yfirferð.
Skipulags- og umferðarnefnd - 67. fundur - 21.05.2026
Lóðarhafi Rangárbakka 8a, 8b og 8c óskar eftir að fá að leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 11.10.2012. Fyrir á svæðinu eru þjónustuhús á einni hæð og lítið geymsluhús á reit E. Á reit B eru tvö salernishús ásamt 6 litlum gistihúsum á einni hæð. Á reit C eru 4 lítil gistihús á einni hæð. Deiliskipulagsbreytingin nær til verslunar og þjónustulóðar Árhús. Á landinu eru í dag skráðar 3 lóðir L164952, L221343 og L221344. Breytingin felur í sér að hætt verið við byggingu gistihúss ásamt tengibyggingu á reit E. Fjölgun verði á gistihúsum á reit A og reit D ásamt nýju salernihúsi á reit G. Byggt verður starfsmannahús á einni hæð sem kemur á reit F. Byggt verður nýtt hótel á reit E og nýtt lúxushótel á reit I. Á reit H verður byggt baðlón. Skipulagsgögn frá Artun ehf, dags. 15.12.2025.
Skipulags- og umferðarnefnd telur ekki þörf á kynning lýsingar þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi. Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu og leggur til að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en að áður verði skilgreind aðkoma að lóð undir hreinsivirki sveitarfélagsins auk þess að möguleg gönguleið verði skilgreind gegnum svæðið til austurs.
Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 06.08.2026
Lóðarhafi Rangárbakka 8a, 8b og 8c hefur lagt fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið, dags. 11.10.2012. Fyrir á svæðinu eru þjónustuhús á einni hæð og lítið geymsluhús á reit E. Á reit B eru tvö salernishús ásamt 6 litlum gistihúsum á einni hæð. Á reit C eru 4 lítil gistihús á einni hæð. Deiliskipulagsbreytingin nær til verslunar og þjónustulóðar Árhús. Á landinu eru í dag skráðar 3 lóðir L164952, L221343 og L221344. Breytingin felur í sér að hætt verið við byggingu gistihúss ásamt tengibyggingu á reit E. Fjölgun verði á gistihúsum á reit A og reit D ásamt nýju salernihúsi á reit G. Byggt verður starfsmannahús á einni hæð sem kemur á reit F. Byggt verður nýtt hótel á reit E og nýtt lúxushótel á reit I. Á reit H verður byggt baðlón. Tillagan var auglýst frá og með 28.5.2026 til og með 15.7.2026. Umsagnir bárust frá alls 7 umsagnaraðilum. Umsagnir má skoða undir máli nr. 443/2025 í skipulagsgáttinni.
Skipulags- og umferðarnefnd telur að fram komnar umsagnir leiði ekki til breytinga á auglýstri tillögu og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.