Samþykkt um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings ytra - heildarskjal með breytingum

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF-skjali gildir PDF-skjalið.

PDF-skjalið má nálgast með því að smella hér.


Fyrstli kafli
Um skipan sveitarstjórnar, sjálfstjórn hennar og verkefni sveitarfélags.
1. gr.
Skipan sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn sveitarfélagsins Rangárþings ytra er skipuð sjö fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri
kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt kosningalögum.
2. gr.
Sjálfstætt stjórnvald.
Sveitarfélagið Rangárþing ytra er sjálfstætt stjórnvald, sem stjórnað er af lýðræðislega kjörinni
sveitarstjórn í umboði íbúa sveitarfélagsins.
3. gr.
Verkefni sveitarfélags.
Rangárþing ytra annast þau verkefni sem því eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum.
Rangárþing ytra vinnur að sameiginlegum velferðarmálum íbúanna eftir því sem fært þykir á hverjum
tíma.
Rangárþingi ytra er heimilt að taka að sér hvert það verkefni sem varðar íbúa þess, enda sé það ekki
falið öðrum að lögum.


II. KAFLI
Um sveitarstjórn.
4. gr.
Hlutverk sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn fer með stjórn sveitarfélagsins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, með
síðari breytingum, ákvæðum annarra laga og samþykkt þessari.
Sveitarstjórn hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna, lántökur og ráðstöfun eigna og um
framkvæmd verkefna sveitarfélagsins.
5. gr.
Verkefni sveitarstjórnar.

Meðal verkefna sveitarstjórnar eru:


1. Að sjá um að lögbundnar skyldur séu ræktar og hafa eftirlit með því að viðeigandi reglum sé fylgt í störfum sveitarfélagsins, sbr. 8. gr. sveitarstjórnarlaga.
2. Að kjósa oddvita og varaoddvita sveitarstjórnar, sbr. 13. gr. sveitarstjórnarlaga, byggðarráð og
aðrar nefndir, ráð og stjórnir skv. V. kafla sveitarstjórnarlaga, að ráða löggiltan endurskoðanda
eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun hjá sveitarfélaginu, sbr. VII. kafla
sveitarstjórnarlaga.
3. Að setja sveitarstjórn siðareglur, sbr. 29. gr. sveitarstjórnarlaga.
4. Að ákveða stjórnskipan sveitarfélagsins, ráða sveitarstjóra, sbr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga og
aðra starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður sveitarfélagsins, sbr. 56. gr. laganna.
5. Að móta stefnu fyrir starfsemi sveitarfélagsins, deilda og stofnana, setja starfsemi
sveitarfélagsins reglur, setja samþykktir og gjaldskrár, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf
krefur.
6. Að fara með fjárstjórnarvald sveitarfélagsins, sbr. 58. gr. sveitarstjórnarlaga og gera
fjárhagsáætlanir, sbr. 62. gr. sömu laga.
7. Að bera ábyrgð á fjármálum sveitarfélagsins, stofnana þess og fyrirtækja, sbr. 77. gr. sveitarstjórnarlaga
og VIII. kafla samþykktar þessarar og taka ákvarðanir um verulegar skuldbindingar
sveitarfélagsins til lengri tíma.
8. Að samþykkja og hafa eftirlit með gerð og framkvæmd samstarfsverkefna og þjónustusamninga
sbr. IX. kafla sveitarstjórnarlaga.
9. Að veita íbúum sveitarfélagsins og þeim sem njóta þjónustu þess upplýsingar um málefni sem
snerta hagi þeirra og um samstarf sem sveitarfélagið hefur við önnur sveitarfélög, sbr. 103. gr.
sveitarstjórnarlaga.
10. Að setja sveitarfélaginu málstefnu skv. 130. gr. sveitarstjórnarlaga.
11. Að móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú ár á eftir um það þjónustustig sem sveitarfélagið
hyggst halda uppi í byggðum og byggðalögum fjarri stærstu byggðakjörunum sveitarfélagsins,
sbr. 130. gr. a. sveitarstjórnarlaga.


6. gr.
Ný sveitarstjórn tekur til starfa.
Nýkjörin sveitarstjórn tekur við störfum 15 dögum eftir kjördag. Jafnlengi heldur fráfarandi sveitarstjórn
umboði sínu, með þeim takmörkunum sem leiðir af kosningalögum. Nýkjörin sveitarstjórn hefur
einungis umboð til töku ákvarðana um málefni sveitarstjórnarinnar eða sveitarfélagsins eftir að hún tekur
við störfum.
Sá fulltrúi í nýkjörinni sveitarstjórn sem á að baki lengsta setu í sveitarstjórn boðar til fyrsta fundar ekki
síðar en 15 dögum eftir að hún tekur við störfum eftir kosningar. Hann stýrir fundi þar til oddviti hefur
verið kjörinn. Hafi tveir eða fleiri fulltrúar setið jafnlengi í sveitarstjórn fer aldursforseti þeirra með
verkefni samkvæmt þessari málsgrein.
Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara.


7. gr.
Kjör oddvita og varaoddvita.
Á fyrsta fundi kýs sveitarstjórn oddvita og einn varaoddvita. Kjörtímabil þeirra er sama og
sveitarstjórnar nema sveitarstjórnin ákveði annað.
Njóti oddviti eða varaoddviti ekki lengur stuðnings sveitarstjórnar skal kjósa í þau embætti að nýju. Hið
sama á við ef oddviti eða varaoddviti forfallast varanlega eða fær lausn frá starfi.
Sá telst rétt kjörinn oddviti sem fær atkvæði meirihluta þeirra sem sæti eiga í sveitarstjórn. Verði þeim
atkvæðafjölda ekki náð skal kjósa að nýju. Við aðra umferð telst sá rétt kjörinn sem fær meirihluta
atkvæða þeirra fulltrúa sem sitja fundinn eða ef viðkomandi er sá eini sem fær atkvæði. Fáist ekki
niðurstaða við aðra umferð skal kosið þriðja sinni en þá á milli þeirra tveggja sem flest atkvæði fengu
við aðra umferð. Ef nauðsynlegt reynist skal varpa hlutkesti um það milli hverra tveggja verður kosið.
Verður þá sá rétt kjörinn sem fleiri atkvæði fær. Verði atkvæði jöfn ræður hlutkesti.
Þegar að lokinni kosningu oddvita skal kjósa varaoddvita. Kosning varaoddvita fer fram með sama hætti
og oddvita. Varaoddviti leysir oddvita af í forföllum hans.
Tilkynna skal kosningu oddvita og varaoddvita til ráðuneytis sveitarstjórnarmála.


III. KAFLI
Fundir sveitarstjórnar og fundarsköp.
8. gr.
Fundir sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn heldur reglulega fundi sveitarstjórnar að Suðurlandsvegi 1 - 3 á Hellu. Sveitarstjórn tekur
ákvörðun í upphafi hvers árs um fundaáætlun vegna reglulegra funda fyrir næstu 12 mánuði í senn.
Aukafundi skal halda þegar oddviti eða sveitarstjóri telur það nauðsynlegt eða ef þriðjungur
sveitarstjórnarmanna óskar þess.
Sveitarstjórnin getur breytt samþykktri fundaáætlun innan ársins með nýrri samþykkt enda verði hún
kynnt íbúum með tryggilegum hætti sbr. 11. gr. samþykktar þessarar.
Sveitarstjórn er heimilt að fella niður eða færa reglulegan fund sinn eða fundarstað, enda sé tillaga um
slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á undan.
Sveitarstjórn er heimilt að fella niður reglulega fundi sveitarstjórnar vegna sumarleyfis.
Sveitarstjórnarfundi er heimilt að halda með rafrænum hætti þannig að hluti sveitarstjórnarmanna eða
allir taki þátt með rafrænum hætti.
Auglýsa skal fundi sveitarstjórnar á skrifstofu Rangársþings ytra eða á vef þess með a.m.k. tveggja
sólarhringa fyrirvara og tilgreina þar dagskrá fundar enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.
9. gr.
Boðun sveitarstjórnarfunda.
Sveitarstjóri, í samráði við oddvita, boðar fundi sveitarstjórnar. Oddviti getur þó einn boðað fundi í
sveitarstjórninni þegar þess er þörf.
Fundarboð skal berast sveitarstjórnarmönnum ekki síðar en tveimur sólarhringum fyrir fund.
Aukafund skal boða ekki síðar en tveimur virkum dögum eftir að ósk þar um barst þeim er boða skal
fund. Fundarboð vegna aukafundar skal berast sveitarstjórnarmönnum svo fljótt sem auðið er og ekki
síðar en sólarhring fyrir fund.
Boðun sveitarstjórnarfundar skal fara fram með rafrænni tilkynningu á netfang sveitarstjórnarmanna.
Fundargögn skulu gerð sveitarstjórnarmönnum aðgengileg með rafrænum hætti á vefsvæði Rangárþings
ytra. Fundarboði skal fylgja dagskrá fundar og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn
geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind. Fundarboð og fundargögn skulu einnig send
varamönnum í sveitarstjórn.
10. gr.
Dagskrá sveitarstjórnarfundar.
Oddviti og sveitarstjóri eða oddviti einn, semja dagskrá sveitarstjórnarfundar og skal dagskráin fylgja
fundarboði.
Á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal taka:


1. Lögákveðnar kosningar s.s. kosningar oddvita sveitarstjórnar, kosningar nefnda, ráða og stjórna
á vegum sveitarstjórnar, svo og ráðningu sveitarstjóra og helstu stjórnendur sveitarfélagsins og
endurskoðenda þess.
2. Fundargerðir byggðarráðs, nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins.
3. Fundargerðir vegna samstarfsverkefna sveitarfélagsins. Fundargerðir byggðasamlaga, sem hafa
fullnaðarafgreiðsluvald, skulu lagðar fram fyrir sveitarstjórn til kynningar.
4. Ályktanir og tillögur sem fram koma í fundargerðum, sbr. 2. tölul. hér að framan og þarfnast
staðfestingar sveitarstjórnar, skal tilgreina sérstaklega í dagskrá sveitarstjórnarfundar.
5. Önnur mál sem falla undir verksvið sveitarstjórnar og oddviti og/eða sveitarstjóri ákveða að taka
á dagskrá eða einhver sveitarstjórnarmaður óskar að tekin verði á dagskrá.
Sveitarstjórnarmaður sem óskar að fá mál tekið á dagskrá sveitarstjórnarfundar skal tilkynna það oddvita
og sveitarstjóra skriflega eða með rafrænum hætti, með að lágmarki þriggja sólarhringa fyrirvara m.v.
reglulegan fundartíma sveitarstjórnar, til þess að unnt sé að taka það á dagskrá næsta fundar.


11. gr.
Tilkynning til íbúa um fundi sveitarstjórnar.
Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórnar tekur sveitarstjórn ákvörðun um hvar og hvenær
sveitarstjórnarfundir skulu haldnir, sbr. 8. gr. samþykktar þessarar, og skal sú ákvörðun kynnt íbúum
sveitarfélagsins með tryggum hætti. Sömuleiðis skal tilkynna íbúum um fundaáætlun hvers ár sbr. 8. gr.
samþykktar þessarar.
Íbúum sveitarfélagsins skal kynnt með opinberri auglýsingu eða með auglýsingu á vefsíðu
sveitarfélagsins um fyrirhugaða fundi sveitarstjórnar ásamt dagskrá, innan sömu tímafresta og við á um
sveitarstjórnarmenn, enda standi reglur um þagnarskyldu því ekki í vegi.
12. gr.
Opnir fundir sveitarstjórnar.
Fundir sveitarstjórnar eru opnir, en heimilt er að ákveða að einstök mál skuli rædd fyrir luktum dyrum
þegar það telst nauðsynlegt vegna eðlis máls. Oddviti eða sveitarstjórn getur jafnframt ákveðið að ræða
fyrir luktum dyrum tillögu um lokun fundar.
Þrátt fyrir að fundi sé lokað er heimilt að ákveða að tilteknir starfsmenn sveitarfélags séu viðstaddir.
13. gr.
Ályktunarhæfi og atkvæðagreiðsla.
Sveitarstjórn getur enga ályktun gert nema meira en helmingur sveitarstjórnarmanna sé viðstaddur á
fundi.
Á sveitarstjórnarfundum ræður afl atkvæða úrslitum mála. Hjáseta telst þátttaka í atkvæðagreiðslu. Ef
jafnmörg atkvæði eru með málefni og á móti fellur það en við kosningar ræður hlutkesti.
14. gr.
Þátttaka í fundi með rafrænum hætti.
Sveitarstjórnarmanni/nefndarmönnum er heimilt að taka þátt með rafrænum hætti í fundum
sveitarstjórnar og nefnda og ráða á vegum sveitarfélagsins. Þegar sveitarstjórnarmaður tekur þátt í fundi
með rafrænum hætti skal hann vera staddur í sveitarfélaginu eða í erindagjörðum innan lands á vegum
sveitarfélagsins. Að öðrum kosti skal varamaður boðaður á viðkomandi fund. Tryggja skal jafna
möguleika allra fundarmanna til þátttöku á fundi og í atkvæðagreiðslu, óskerta möguleika þeirra til að
fylgjast með því sem þar fer fram og öryggi samskipta milli fundarmanna. Um framkvæmd fjarfunda
fer skv. leiðbeiningum ráðuneytis sveitarstjórnarmála, sbr. 2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga.
15. gr.
Tvær umræður í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili um:


1. Samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra.
2. Staðfestingu ársreiknings.
3. Stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélagsins í heild eða
meiri hluta þess.
4. Tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr. sveitarstjórnarlaga.
Þá skal sveitarstjórn hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir
sveitarfélagsins skv. 62. gr. sveitarstjórnarlaga. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við
fjárhagsáætlanir.


16. gr.
Fundarsköp og ritun fundargerða.
Um ritun fundargerða sveitarstjórnar skal farið eftir leiðbeiningum um ritun fundargerða sveitarstjórna,
samanber auglýsingu þess efnis nr. 1181/2021, eða síðari leiðbeiningum sem settar hafa verið samkvæmt
2. mgr. 19. gr. sveitarstjórnarlaga. Fundargerðir sveitarstjórnar skulu vera aðgengilegar á heimasíðu
sveitarfélagsins sem fyrst að afloknum fundi og ekki síðar en tveimur virkum dögum frá því fundi lauk.
Sveitarstjórn getur ákveðið að umræður á sveitarstjórnarfundi verði hljóðritaðar eða teknar upp með
öðrum hætti, þeim útvarpað gegnum ljósvakamiðla og/eða netmiðla. Verði það ákveðið skal
sveitarstjórn setja um það nánari reglur og birta á vefsíðu sveitarfélagsins.
Meginreglur um fundarsköp:


a. Fundarstjórn. Oddviti stjórnar umræðum á fundum sveitarstjórnar. Hann setur fund, kannar
lögmæti hans, stjórnar umræðum og afgreiðslu mála og slítur fundi þegar dagskrá hans er tæmd.
Hann sér um að fundargerðir séu færðar og að allar tillögur og ályktanir séu rétt og nákvæmlega
bókaðar, svo og hverja afgreiðslu þær hljóta.
Oddviti sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum sveitarstjórnar. Hann úrskurðar
um skilning á fundarsköpum samkvæmt samþykkt þessari en skjóta má úrskurði hans til
úrlausnar sveitarstjórnar.
b. Vald oddvita. Skylt er sveitarstjórnarmanni að lúta valdi oddvita í hvívetna varðandi það að
gætt sé góðrar reglu.
Ef sveitarstjórnarmaður ber aðra menn brigslum eða víkur verulega frá umræðuefninu skal
oddviti víta hann. Ef sveitarstjórnarmaður er víttur tvisvar á sama fundi getur oddviti lagt til við
sveitarstjórn að hann verði sviptur málfrelsi það sem eftir er fundar. Skal sú tillaga afgreidd
umræðulaust.
Ef sveitarstjórnarmaður hlýðir ekki úrskurði oddvita eða almenn óregla kemur upp á fundi skal
oddviti gera hlé um stundarsakir eða ef nauðsyn krefur fresta eða slíta fundi.
Ef áheyrandi á sveitarstjórafundi raskar fundarfriði getur oddviti vísað honum úr fundarsal.
Leyfi oddvita þarf til að taka myndir í fundarsal sveitarstjórnar.
c. Afgreiðsla mála. Mál skulu tekin til umræðu og afgreidd í þeirri röð sem dagskrá kveður á um
nema sveitarstjórn eða oddviti ákveði að önnur röð skuli höfð. Oddviti getur ákveðið að tiltekið
mál í fundargerð sem er á dagskrá verði gert að sérstökum dagskrárlið á fundinum. Heimilt er
að taka mál á dagskrá þótt ekki sé þess getið í fundarboði, enda samþykki 2/3 viðstaddra
sveitarstjórnarmanna þau afbrigði.
d. Málfrelsi sveitarstjóra. Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt
en hann hefur ekki atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn í sveitarstjórn.
e. Málfrelsi. Sveitarstjórnarmaður hefur málfrelsi, tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum
sveitarstjórnar.
Sveitarstjórnarmaður sem taka vill til máls skal óska heimildar oddvita. Að jafnaði skulu menn
taka til máls í þeirri röð sem þeir hafa kvatt sér hljóðs. Heimilt er að víkja frá þessu ef um er að
ræða sveitarstjóra eða framsögumann svo og sveitarstjórnarmann sem gera vill stutta
athugasemd, bera af sér ámæli eða veita andsvar. Ef tveir eða fleiri kveða sér samtímis hljóðs
ákveður oddviti í hvaða röð þeir tala.
Sveitarstjórnarmaður skal flytja mál sitt úr ræðustól nema oddviti leyfi annað.
f. Ávarp ræðumanns. Sveitarstjórnarmaður skal beina máli sínu til oddvita.
Sveitarstjórnarmaður skal ávarpa einstaka sveitarstjórnarmenn með fullu nafni.
Þegar til umræðu er fundargerð skal ræðumaður taka fram hvaða lið í fundargerð hann óskar að
ræða.
Ekki má lesa upp prentað mál nema oddviti leyfi.
g. Hve oft má tala. Sveitarstjórnarmaður má tala tvisvar við hverja umræðu máls. Heimilt er þó
sveitarstjórnarmanni að taka oftar til máls, til að bera af sér ámæli eða til að gera stutta
athugasemd um fundarstjórn oddvita. Sveitarstjóri, flutningsmaður tillögu eða framsögumaður
(talsmaður flutningsmanna) mega þó tala oftar en tvisvar við hverja umræðu máls. Sveitarstjóri
hefur óbundið málfrelsi.
h. Ræðutími. Ef oddviti telur umræður á sveitarstjórnarfundi dragast úr hófi fram getur hann lagt
fram dagskrártillögu um að ræðutími hvers sveitarstjórnarmanns verði takmarkaður við tvær
mínútur. Oddviti getur jafnframt lagt fram dagskrártillögu um að umræðum verði lokið á
tilteknum tíma eða að umræðum um mál verði lokið þá þegar. Hver sveitarstjórnarmaður getur
og borið fram slíkar tillögur. Sveitarstjórn afgreiðir tillögur um takmörkun umræðna
umræðulaust. Ekki má þó takmarka umræðu um mál meira en svo að hún standi skemur en í
tvær klukkustundir ef einhver sveitarstjórnarmaður kveður sér hljóðs.
i. Tillögur og afgreiðsla. Sveitarstjórnarmaður getur borið fram breytingartillögu, viðaukatillögu,
frávísunartillögu eða frestunartillögu við hvert það mál sem til umræðu er á fundi. Slíkar tillögur
skulu vera skriflegar. Oddviti ákveður í hvaða röð og með hvaða hætti slíkar tillögur eru teknar
til afgreiðslu í samræmi við almennar reglur um fundarsköp.
Oddviti sker úr því hvernig atkvæðagreiðslum um tillögur skuli hagað.
j. Réttur til bókunar. Þeir sem hafa rétt til að taka þátt í umræðum í sveitarstjórn eiga rétt á að
fá bókaðar í fundargerð stuttar athugasemdir um afstöðu til þeirra mála sem til umræðu eru.
k. Atkvæðagreiðsla. Atkvæðagreiðsla á sveitarstjórnarfundi fer að jafnaði fram með
handauppréttingu. Sveitarstjórnarmaður greiðir atkvæði úr sæti sínu. Oddviti biður þá
sveitarstjórnarmenn sem samþykkja mál að rétta upp hönd sína. Að því búnu leitar oddviti
mótatkvæða með sama hætti. Loks skýrir oddviti frá úrslitum atkvæðagreiðslunnar.
Ef mál er svo vaxið að oddviti telur ástæðulaust að atkvæðagreiðsla fari fram um það skýrir
hann frá því að hann telji mál samþykkt eða fellt án atkvæðagreiðslu nema athugasemd verði
við það gerð.
Oddviti getur ákveðið að mál verði afgreitt með nafnakalli. Einnig ber oddvita að láta fara fram
nafnakall ef a.m.k. þriðjungur fulltrúa óskar þess. Við nafnakall skal farið eftir tölusettri
nafnaskrá sveitarstjórnarmanna í stafrófsröð og skal það ráðast af útdrætti hvaða
sveitarstjórnarmaður greiðir fyrst atkvæði við nafnakall. Við nafnakall skal oddviti greiða
atkvæði síðastur. Við nafnakall svarar sveitarstjórnarmaður, þegar oddviti les upp nafn hans, já
eða nei eftir því hvort hann er með máli eða á móti eða tekur fram að hann greiði ekki atkvæði,
en slík afstaða telst þátttaka í atkvæðagreiðslu.
Heimilt er að afgreiða mál með skriflegri atkvæðagreiðslu ef sveitarstjórnarmaður óskar og
sveitarstjórn samþykkir.
l. Kosningar. Kosningar sem fara fram í sveitarstjórn, skv. 43. gr. sveitarstjórnarlaga, skulu vera
leynilegar og bundnar hlutfallskosningar, sé þess óskað. Þegar um meirihlutakosningu er að
ræða, svo sem við kjör eins fulltrúa úr hópi tveggja eða fleiri, skal kosning fara fram eins og við
oddvitakjör. Kosningar skulu ávallt vera skriflegar og leynilegar.
Sveitarstjórn ber að hafa í huga ákvæði 4. tölul. 1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga varðandi
kynjahlutfall.


17. gr.
Hæfi til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.
Um hæfi sveitarstjórnarmanna, nefndarfulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins til þátttöku í meðferð
eða afgreiðslu mála þar sem á, eða til greina kemur, að taka stjórnvaldsákvörðun skv. 2. mgr. 1. gr.
stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, gilda ákvæði stjórnsýslulaga sé ekki öðruvísi ákveðið í
sveitarstjórnarlögum og í samþykkt þessari. Viðkomandi telst þó aðeins vanhæfur sé hann eða hafi verið
maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að einum lið til hliðar eða tengdur aðila með
sama hætti vegna ættleiðingar. Þá verður starfsmaður sveitarfélagsins ekki vanhæfur vegna vanhæfis
yfirmanns ef eðli máls eða uppbygging stjórnkerfis sveitarfélagsins þykir ekki gefa tilefni til slíks.
Í öðrum tilvikum en skv. 1. mgr. ber sveitarstjórnarmanni, nefndarfulltrúa eða starfsmanni
sveitarfélagsins að víkja sæti við meðferð og afgreiðslu máls þegar það varðar hann eða nána
venslamenn hans svo sérstaklega að almennt má ætla að viljaafstaða hans mótist að einhverju leyti þar
af. Þessi regla tekur einnig til gerðar samninga fyrir hönd sveitarfélags.
Sveitarstjórnarmaður sem vanhæfur er við úrlausn máls skal yfirgefa fundarsal sveitarstjórnar við
meðferð og afgreiðslu þess.
Að öðru leyti vísast til 20. gr. sveitarstjórnarlaga.


18. gr.
Varamenn í sveitarstjórn.
Varamenn taka sæti í sveitarstjórninni skv. ákvæðum 2. mgr. 21. gr. sveitarstjórnarlaga.
Ef framboðslisti er borinn fram af tveimur eða fleiri stjórnmálasamtökum geta fulltrúar í aðalsætum gert
samkomulag um innköllun varamanna í samræmi við ákvæði 3. mgr. 21. gr. sveitarstjórnarlaga.
Tilkynning um slíkt samkomulag skal lögð fram í upphafi kjörtímabils, á fyrsta eða öðrum fundi
sveitarstjórnar, og gildir hún til loka kjörtímabils sbr. ákvæði 4. mgr. 21. gr. sveitarstjórnarlaga. Sé það
ekki gert taka fulltrúar framboðslistans sæti eftir almennum reglum.


IV. KAFLI
Réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna.
19. gr.
Skyldur sveitarstjórnarmanna.
Sveitarstjórnarmanni ber skylda til að taka þátt í öllum sveitarstjórnarfundum og fundum í nefndum og
ráðum sem hann hefur verið kjörinn til nema lögmæt forföll hamli.
Aðal- og varamönnum í sveitarstjórn er skylt að taka kjöri í nefnd, ráð eða stjórn á vegum
sveitarfélagsins, sem og til annarra trúnaðarstarfa á vegum sveitarfélagsins. Sá sem verið hefur oddviti
heilt kjörtímabil eða lengur eða gegnt ákveðnu starfi innan sveitarstjórnar jafnlangan tíma eða lengur
getur skorast undan kosningu til þess starfs jafnlangan tíma og hann hefur haft starfið með höndum. Ósk
um undanþágu skal sett fram áður en kjör í viðkomandi nefnd eða trúnaðarstarf fer fram.
Hverjum sveitarstjórnarmanni er skylt að inna af hendi störf sem sveitarstjórn felur honum og varða
verkefni sveitarstjórnarinnar.
Sveitarstjórnarmenn skulu gæta trúnaðar um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara
samkvæmt lögum eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.


20. gr.
Réttur sveitarstjórnarmanna.
Sveitarstjórnarmenn eru sjálfstæðir í störfum sínum. Þeir eru einungis bundnir af lögum og eigin
sannfæringu um afstöðu til einstakra mála.
Sveitarstjórnarmaður á rétt á að tekið verði á dagskrá sveitarstjórnarfundar hvert það málefni sem
sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess.
Mál sem ekki er tilgreint á boðaðri dagskrá sveitarstjórnarfundar verður þó ekki tekið til afgreiðslu á
viðkomandi fundi án samþykkis 2/3 hluta fundarmanna.
Sveitarstjórnarmenn hafa málfrelsi á fundum sveitarstjórnar eftir því sem nánar er ákveðið í
fundarsköpum sveitarstjórnar. Þeir hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á fundum sveitarstjórnar.
Vilji sveitarstjórnarmaður ekki una úrskurði oddvita um stjórn fundar og fundarsköp getur hann skotið
úrskurðinum til sveitarstjórnar sem sker úr án umræðna.


21. gr.
Aðgangur að gögnum.
Vegna starfa sinna í sveitarstjórn á sérhver sveitarstjórnarmaður rétt á að kynna sér gögn og upplýsingar
sem fyrir liggja í stjórnsýslu sveitarfélags og varða málefni sem komið geta til umfjöllunar í
sveitarstjórn. Beiðnir sveitarstjórnarmanna um aðgang að gögnum skal beint til sveitarstjóra.
Sveitarstjórnarmaður skal eiga eðlilegan aðgang að skrifstofu og stofnunum sveitarfélagsins í þeim
tilgangi að kynna sér starfsemi sveitarfélagsins og rekstur.
Sveitarstjórnarmenn skulu hafa samráð við sveitarstjóra og forstöðumenn stofnana um aðgang að
skjalasafni og bókhaldsgögnum. Um öll gögn er varða erindi til og frá sveitarstjórninni gildir það, að
sveitarstjórnarmenn geta fengið afrit/ljósrit til skoðunar og varðveislu nema ef um gögn er að ræða sem
eru undanþegin upplýsingarétti almennings. Um slík gögn gildir sú regla að ekki er heimilt að taka af
þeim afrit og fara með þau út af skrifstofunni eða stofnuninni.
Ef beiðni sveitarstjórnarmanns varðar viðkvæma persónulega hagi einstaklings sem ekki er til
umfjöllunar í sveitarstjórn, er heimilt að neita um afhendingu gagna og upplýsinga.


22. gr.
Siðareglur og góðir starfshættir.
Sveitarstjórnarmaður skal í störfum sínum fara eftir þeim siðareglum sem sveitarstjórn setur sér, sbr. 29.
gr. sveitarstjórnarlaga.


23. gr.
Lausn frá störfum.
Telji sveitarstjórnarmaður sig ekki geta gegnt skyldum í sveitarstjórn án óhæfilegs álags, getur hann
óskað eftir því við sveitarstjórn að hún:


1. létti af honum störfum eða
2. veiti honum lausn úr sveitarstjórn um tiltekinn fyrirfram ákveðinn tíma eða til loka kjörtímabils.
Þegar sveitarstjórnarmaður flytur úr sveitarfélaginu um stundarsakir má sveitarstjórn ákveða, að ósk
hans, að hann skuli víkja úr sveitarstjórn þar til hann tekur aftur búsetu í sveitarfélaginu. Slík ákvörðun
skal tekin áður en sveitarstjórnarmaður flytur um stundarsakir.
Sé ekki tekin ákvörðun samkvæmt 2. mgr. þessa ákvæðis missir sveitarstjórnarmaður kjörgengi við
skráningu lögheimilis í öðru sveitarfélagi og getur ekki tekið aftur sæti í sveitarstjórn á kjörtímabilinu
taki hann búsetu í sveitarfélaginu aftur.
Missi sveitarstjórnarmaður kjörgengi skal hann víkja úr sveitarstjórn. Ef sveitarstjórnarmaður missir
fjárforræði skal sveitarstjórn veita honum lausn frá störfum þann tíma er sviptingin gildir.


24. gr.
Boðun varamanna.
Þegar aðalmaður er vanhæfur til meðferðar máls í sveitarstjórn skal boða varamann hans til meðferðar
þess og afgreiðslu. Að afgreiðslu máls lokinni tekur aðalmaður sæti sitt á viðkomandi fundi á ný. Verði
innköllun varamanns ekki við komið getur vanhæfur sveitarstjórnarmaður krafist þess að umræðu og
afgreiðslu máls verði frestað til næsta fundar. Frestun nær þó ekki fram að ganga ef 2/3 hlutar viðstaddra
sveitarstjórnarmanna greiða atkvæði gegn frestun eða ef frestun hefur í för með sér að gengið sé gegn
lögbundnum afgreiðslutíma máls.
Þegar aðalmaður getur ekki mætt til fundar eða þarf að víkja af fundi af heilsufarsástæðum eða af öðrum
óviðráðanlegum ástæðum tekur varamaður hans sæti í sveitarstjórn á þeim fundi. Aðalmaður skal
tilkynna forföll til fundarboðanda skv. samþykkt þessari, eins fljótt og auðið er og boða varamann í sinn
stað. Forföll samkvæmt þessari málsgrein taka ávallt til viðkomandi fundar í heild, eða til loka fundar
sé um það að ræða.
Þegar fyrirséð er að aðalmaður í sveitarstjórn mun taka hlé frá störfum vegna atvika sem greinir í 2. mgr.
í a.m.k. einn mánuð skal varamaður hans taka sæti í sveitarstjórninni frá og með næsta fundi, enda séu
þá ástæður forfalla enn til staðar. Þegar forföllum lýkur tekur aðalmaður sæti sitt að nýju frá og með
næsta fundi.
Þegar aðalmaður fellur frá, missir kjörgengi eða fær lausn frá starfi í sveitarstjórn skal varamaður hans
taka sæti í sveitarstjórn frá og með næsta fundi.


25. gr.
Þóknun o.fl.
Sveitarstjórnarmaður skal fá hæfilega þóknun úr sveitarsjóði fyrir störf sín í sveitarstjórn. Ef um langan
veg er að fara milli heimilis sveitarstjórnarmanns og fundarstaðar sveitarstjórnar skal sveitarstjórnarmaður
fá hæfilega greiðslu vegna ferðakostnaðar. Takist sveitarstjórnarmaður á hendur ferð á
vegum sveitarfélagsins samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnarinnar á hann rétt á greiðslu hæfilegs ferðaog
dvalarkostnaðar.
Sveitarstjórn setur nánari reglur um greiðslur skv. 1. mgr. þessa ákvæðis um kjör kjörinna fulltrúa í
Rangárþingi ytra og greiðslur fyrir nefndastörf. Þessar reglur um greiðslur skal taka til endurskoðunar
eigi sjaldnar en í upphafi hvers kjörtímabils en heimilt er að endurskoða þær oftar ef sveitarstjórnin
ákveður það.
Sveitarstjórnarmaður má ekki afsala sér greiðslum sem honum eru ákveðnar á grundvelli þessarar
greinar.


26. gr.
Réttindi og skyldur varamanna.
Ákvæði þessa kafla, um réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna, eiga einnig við um varamenn þegar
þeir taka sæti í sveitarstjórn.


V. KAFLI
Byggðarráð.
27. gr.
Kosning byggðarráðs.
Sveitarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa þrjá aðalmenn og
jafnmarga varamenn í byggðarráð til eins árs í senn. Aðalmenn í sveitarstjórn eru einir kjörgengir sem
aðalmenn og varamenn í byggðarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga.
Sveitarstjórn kýs formann og varaformann byggðarráðs úr hópi kjörinna byggðarráðsmanna.
Byggðarráð getur ráðið sér fundarritara utan byggðarráðs. Kosning í byggðarráð skal vera leynileg og
bundin hlutfallskosningu sé þess óskað.


28. gr.
Fundartími byggðarráðs.
Byggðarráð heldur reglulega fundi byggðarráðs að Suðurlandsvegi 1-3 Hellu. Sveitarstjórn tekur
ákvörðun í upphafi hvers árs um fundaáætlun byggðarráðs fyrir næstu 12 mánuði í senn. Sveitarstjórn
getur falið byggðarráði að halda fund um tiltekin mál sem því eru falin til úrlausnar.
Aukafundi skal halda ef formaður byggðarráðs, sveitarstjóri, eða a.m.k. tveir byggðarráðsmenn óska
þess.


29. gr.
Boðun funda byggðarráðs.
Sveitarstjóri sveitarfélagsins undirbýr byggðarráðsfundi í samráði við formann byggðarráðs.
Hann sér um að byggðarráð sé boðað til fundar með skriflegu eða rafrænu fundarboði ásamt dagskrá
a.m.k. tveimur sólarhringum fyrir fund.
Geti byggðarráðsmaður ekki sótt fund skal hann tilkynna fundarboðanda um forföll og boða varamann
í sinn stað.


30. gr.
Stjórnun byggðarráðs.
Formaður byggðarráðs stjórnar fundum þess og sér um að allt fari löglega og skipulega fram á fundum
þess. Hann úrskurðar í ágreiningsmálum sem upp kunna að koma út af fundarsköpum en skjóta má
úrskurði hans til úrlausnar byggðarráðsins.
Heimilt er að taka mál til meðferðar í byggðarráði þótt ekki sé það tilgreint í dagskrá. Þó er skylt að
fresta afgreiðslu slíks máls ef einhver byggðarráðsmanna óskar þess.


31. gr.
Áheyrnarfulltrúar í byggðarráði.
Framboðslisti sem á fulltrúa í sveitarstjórn en ekki í byggðaráði má tilnefna sveitarstjórnarfulltrúa til
setu í byggðaráði með málfrelsi og tillögurétt. Aðal- og varamenn í sveitarstjórn sem skipuðu sama
framboðslista og áheyrnarfulltrúi skulu vera varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann.
Áheyrnarfulltrúi skal njóta sömu launa fyrir þátttöku í fundum byggðarráðs og kjörnir
byggðarráðsfulltrúar. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi í byggðaráði skulu fullnægja
kjörgengisskilyrðum í byggðaráð samkvæmt samþykktum þessum.
Allir aðalmenn í sveitarstjórn sem ekki eru fulltrúar í byggðaráði hafa einnig heimild til þess að sitja
fundi byggðaráðs, með málfrelsi og tillögurétt án sérstakrar greiðslu fyrir fundarsetu.


32. gr.
Verkefni byggðarráðs.
Byggðarráð fer ásamt sveitarstjóra með framkvæmdastjórn og fjármálastjórn sveitarfélagsins að því leyti
sem þessi mál eru ekki öðrum falin.
Byggðarráð hefur eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins og fjármálastjórn þess, semur fjárhagsáætlun
og viðaukum við hana og leggur þau fyrir sveitarstjórn.
Þá sér byggðarráð um að ársreikningar sveitarfélagsins séu samdir reglum samkvæmt og lagðir fyrir
sveitarstjórn til meðferðar og afgreiðslu.
Byggðarráð fer með atvinnumál og tekur ákvörðun um úthlutun styrkja.
Meðan sveitarstjórn er í sumarleyfi fer byggðarráð með sömu heimildir og sveitarstjórn hefur ella enda
sé eigi um það ágreiningur í ráðinu eða við sveitarstjóra um ákvörðunina.
Sveitarstjórn getur falið byggðarráði fullnaðarafgreiðslu annarra mála, nema lög mæli á annan veg.


33. gr.
Sérstakar heimildir byggðarráðs til fullnaðarákvörðunar.
Fundargerðir annarra nefnda en fastanefnda, ráða og stjórna sem ekki krefjast staðfestingar
sveitarstjórnar skv. lögum, skulu lagðar fyrir byggðarráð og er það fullnaðarafgreiðsla.
Byggðaráði er heimilt að afgreiða, án staðfestingar sveitarstjórnar, fundargerðir skipulags- og
umferðarnefndar. Þannig hefur byggðarráð heimild til fullnaðarafgreiðslu allra mála skv.
skipulagslögum nr. 123/2010, sbr. heimild í 6. gr. laganna. Byggðaráð hefur þó ekki
fullnaðarafgreiðsluvald ef mál lúta að breytingum á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Þrátt fyrir
framangreint er byggðaráði ávallt heimilt að vísa máli til umfjöllunar og ákvörðunartöku í sveitarstjórn.
Þá ber að vísa máli til sveitarstjórnar ef öll atkvæði eru ekki samhljóða varðandi afgreiðslu máls sem og
ef einn fulltrúi ráðsins gerir kröfu um það.
Byggðarráð tekur fullnaðarákvörðun um mál sem ekki varða verulega fjárhag sveitarsjóðs eða stofnana
hans og hefur sömu heimildir og sveitarstjórn meðan sveitarstjórn er í sumarleyfi, enda sé eigi
ágreiningur innan ráðsins eða við framkvæmdastjóra um ákvörðunina og ef lög eða eðli máls mæla ekki
gegn því.
Umsóknir um styrki skulu að jafnaði lagðar fyrir byggðarráð til fullnaðarafgreiðslu að svo miklu leyti
sem unnt er innan ákvæða fjárhagsáætlunar. Umsóknir sem ekki rúmast innan ákvæða fjárhagsáætlunar
skulu lagðar fyrir sveitarstjórn.
Verði ágreiningur um ákvörðun í byggðarráði telst málið ekki til lykta leitt fyrr en það hefur hlotið
afgreiðslu á næsta reglulega fundi sveitarstjórnar.


VI. KAFLI
Fastanefndir, ráð og stjórnir aðrar en byggðarráð.
34. gr
Kosning í fastanefndir og kjörtímabil.
Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir eftir því sem fyrir er mælt í lögum og samþykkt þessari. Slíkar nefndir
teljast fastanefndir sveitarstjórnar.
Kjörtímabil fastanefnda er hið sama og sveitarstjórnar, nema annað leiði af lögum eða samþykkt þessari.
Að loknum sveitarstjórnarkosningum halda fastanefndir þó umboði sínu þar til nýkjörin sveitarstjórn
hefur kjörið nýja nefnd í þeirra stað en með sömu takmörkunum valdheimilda og fyrri sveitarstjórn sætti
að afloknum kosningum, sbr. 12. gr. og 2. mgr. 37. gr. sveitarstjórnarlaga.


35. gr.
Kosning og kjörgengi.
Kosningar í fastanefndir sveitarstjórnar, nefndir fyrir hluta sveitarfélags, nefndir til að fara með einstök
verkefni eða málaflokka og aðrar nefndir og stjórnir sem sveitarfélag á aðild að, skulu vera leynilegar
og bundnar hlutfallskosningar ef þess er óskað. Framkvæmd kosninga skal þá vera í samræmi við ákvæði
44. og 45. gr. sveitarstjórnarlaga.
Ef ekki er kosið hlutfallskosningu til nefndar, sbr. 1. mgr. 43. gr., sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn
gæta þess að fullnægja kröfum um kynjahlutfall skv. 2. tölul. 44. gr. laganna við skipun í viðkomandi
nefnd.
Þeir einir eru kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir sem hafa kosningarrétt í sveitarfélaginu, nema annað
leiði af lögum, sbr. m.a. 2. mgr. 39. gr. sveitarstjórnarlaga.
Starfsmenn fyrirtækja og stofnana sveitarfélagsins eru ekki kjörgengir í nefndir, ráð og stjórnir þeirra
fyrirtækja eða stofnana sem þeir starfa hjá. Sveitarstjórn getur þó ákveðið að víkja frá þessu ef málefni
vinnuveitanda eru óverulegur þáttur í starfi viðkomandi nefndar og starfið er ekki þess eðlis að hætta sé
á hagsmunaárekstrum vegna nefndarsetu.


36. gr.
Valdsvið nefnda og framsal sveitarstjórnar til fastanefnda á valdi til fullnaðarafgreiðslu mála.
Um hlutverk og valdsvið nefnda, ráða og stjórna á vegum sveitarfélagsins fer eftir því sem ákveðið er í
lögum, reglugerðum eða samþykktum sveitarstjórnar. Almennt skulu fastanefndir gera tillögur til
sveitarstjórnar um afgreiðslu mála enda fara fastanefndir almennt ekki með umboð til
fullnaðarafgreiðslu mála nema kveðið sé á um það í lögum eða í samþykktum þessum. Fastanefndir
skulu starfa samkvæmt erindisbréfum þar sem nánar er kveðið á um verksvið og þau verkefni sem hver
nefnd sinnir.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur sveitarstjórn ákveðið í
samþykkt þessari eða með sérstökum viðauka við hana, að fela kjörunum nefndum sem taldar eru upp í
47. gr. samþykktar þessarar að afgreiða án staðfestingar sveitarstjórnar mál á verksviðið þeirra ef:


1. lög eða eðli máls mæla ekki sérstaklega gegn því,
2. þau varða ekki fjárhag sveitarfélagsins umfram það sem kveðið er á um í fjárhagsáætlun, og
3. þau víkja ekki frá stefnu sveitarstjórnar í veigamiklum málum.
Þriðjungur fulltrúa í nefnd, ráði eða stjórn sem hefur fengið framselt vald til fullnaðarafgreiðslu máls,
sbr. 1. mgr., getur farið fram á að sveitarstjórn, byggðaráð eða viðkomandi nefnd skv. samþykktum
þessum, taki ákvörðun í máli.
Aðili máls skal beina kröfu um endurupptöku máls sem hefur verið fullnaðarafgreitt á grundvelli 1. eða
2. mgr. þess ákvæðis til sveitarstjórnar.
Við birtingu ákvörðunar skal kynnt að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr.
sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessara. Að öðru leyti skal gætt að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga
nr. 37/1993.


37. gr.
Afgreiðsla á fundargerðum.
Fundargerðir nefnda, ráða og stjórna skulu lagðar fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu og staðfestingar eða
til kynningar þegar það á við.
Þær ályktanir eða tillögur í fundargerðum sem þarfnast staðfestingar byggðarráðs eða sveitarstjórnar eru
lagðar fyrir sem sérstök mál og eru afgreidd með formlegum hætti.
Ályktun nefndar sem hefur fjárútlát í för með sér sem ekki er gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun skal lögð
fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu og staðfestingar.


38. gr.
Fundir nefnda og ályktunarhæfi.
Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram
ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki.
Nefndum er skylt að verða við ósk nefndarmanns um opinn fund, að öllu leyti eða hluta, ef tillaga um
slíkt er samþykkt mótatkvæðalaust á næsta nefndarfundi á undan, svo fremi sem lög eða eðli máls hamla
því ekki.
Um fundi nefnda, ályktunarhæfi og atkvæðagreiðslur gilda ákvæði III. kafla samþykktar þessarar og
sveitarstjórnarlaga eftir því sem við getur átt.


39. gr.
Fundarstjórn og fundargerðir.
Formaður nefndar stýrir fundum. Ákvæði III. kafla samþykktar þessarar gilda um meðferð mála í
nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins eftir því sem við á.
Nefndir, ráð og stjórnir sveitarfélagsins skulu halda gerðabækur. Nefnd getur ráðið sér sérstakan
fundarritara utan nefndar. Um ritun fundargerða, nefnda, ráða og stjórna gilda sömu reglur og um ritun
fundargerða sveitarstjórnar, sbr. 16. gr. samþykktar þessarar.


40. gr.
Varamenn.
Varamenn taka sæti í nefndum í þeirri röð sem þeir eru kosnir.
Þegar kosið er til nefndar hlutbundinni listakosningu eða listi hefur verið sjálfkjörinn og aðalmaður í
nefnd er forfallaður taka varamenn þess lista sem aðalmaður er kjörinn af sæti í nefnd í þeirri röð sem
þeir skipa listann eftir að endurröðun á hann hefur farið fram skv. 4. tölul. 1. mgr. 45. gr.
sveitarstjórnarlaga.
Ef tveir eða fleiri flokkar eða framboðslistar til sveitarstjórnar leggja í sameiningu fram tillögu að lista
við hlutbundna kosningu í nefnd sveitarstjórnar geta þeir komið sér saman um að varamenn á listanum
vegna nefndarkosningarinnar, sem eru þar fulltrúar sama flokks eða framboðslista og sá aðalmaður í
nefnd sem um ræðir, taki sæti hans í nefndinni í þeirri röð sem þeir voru kosnir án tillits til þess hvar
þeir annars eru í röð varamanna. Sé enginn úr hópi varamanna viðkomandi lista í sama flokki eða tilheyri
sama framboðslista og aðalmaður tilheyrði þegar kosning í nefnd fór fram taka varamenn af listanum
sæti eftir venjulegum reglum.
Yfirlýsingu um samkomulag skv. 3. mgr. skal leggja fram á fyrsta sveitarstjórnarfundi eftir að
nefndarkosning fór fram og gildir hún til loka kjörtímabils eða þar til kjörið er í nefnd að nýju.


41. gr.
Boðun varamanna.
Um boðun varamanna á nefndarfundi gilda ákvæði 24. gr. samþykktar þessarar eftir því sem við á.
Þegar aðalmaður í nefnd fellur frá, missir kjörgengi, fær lausn frá nefndarstarfi eða forfallast varanlega
frá því að sitja í nefnd tekur varamaður hans sæti í nefndinni nema sveitarstjórn ákveði að kjósa
aðalmann að nýju, ella skipar sveitarstjórn nýjan varamann til setu í nefndinni.
Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar um varamenn taka einnig til varaáheyrnarfulltrúa eftir því sem við
getur átt.


42. gr.
Lausn frá nefndarsetu og endurskipun.
Fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélagsins, sem ekki eru aðal- eða varamenn í
sveitarstjórn, er heimilt að segja af sér nefndastörfum hvenær sem er á kjörtímabili. Aðrir fulltrúar geta
óskað eftir því við sveitarstjórn að þeim verði veitt lausn tímabundið eða út kjörtímabilið og metur hún
þá hvort skilyrði til þess séu fyrir hendi.
Sveitarstjórn getur hvenær sem er á kjörtímabili ákveðið að skipta um fulltrúa í nefndum, ráðum og
stjórnum sem hún kýs eða skipar ef ekki er um það ágreiningur innan sveitarstjórnar eða málefnalegar
ástæður mæla með slíkri breytingu, svo sem ef nefndarmaður, án lögmætra forfalla, mætir ekki á fundi
nefndar eða brýtur gegn þagnarskyldu. Enn fremur getur sveitarstjórnarmaður krafist þess að nefnd verði
endurskipuð telji hann ástæðu til. Sveitarstjórn er þó heimilt að hafna slíkri beiðni ef hún er bersýnilega
tilefnislaus að því tilskildu að 2/3 fundarmanna greiði atkvæði með tillögu um höfnun. Við
framangreindar breytingar á skipan fulltrúa í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarfélags skal kjósa alla
fulltrúa að nýju og fer þá um kjör þeirra skv. 1. mgr. 43. gr. sveitarstjórnarlaga nema enginn ágreiningur
sé innan sveitarstjórnar um breytingarnar.
Breytingar á nefndaskipan samkvæmt þessari grein skulu fullnægja skilyrðum 2. tölul. 44. gr. og 4. tölul.
1. mgr. 45. gr. sveitarstjórnarlaga um kynjahlutföll.


43. gr.
Áheyrnarfulltrúar.
Sveitarstjórn getur heimilað að framboðslisti sem ekki fær mann kjörinn í fastanefnd á vegum
sveitarstjórnarinnar fái áheyrnarfulltrúa í viðkomandi nefnd. Sérákvæði gilda þó um byggðarráð sbr.
ákvæði 31. gr. þessarar samþykktar..
Um áheyrnarfulltrúa á fundum nefnda gilda sömu þagnarskylduákvæði laga og eiga við um aðra
nefndarmenn. Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu fullnægja kjörgengisskilyrðum í
viðkomandi nefnd.
Áheyrnarfulltrúi og varaáheyrnarfulltrúi skulu yfirgefa fundarsal nefndar við meðferð og afgreiðslu
tiltekins máls ef þeir myndu teljast vanhæfir við afgreiðslu málsins.


44. gr.
Þóknun.
Sveitarstjórn er skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélags
hæfilega þóknun fyrir þau störf, samkvæmt mati sveitarstjórnar, í samræmi við reglur sem hún setur.
Sveitarstjórn er með sama hætti heimilt að ákveða að greiða áheyrnarfulltrúum þóknun fyrir störf þeirra
í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélags.


45. gr.
Önnur réttindi og skyldur.
Nefndarmönnum er skylt að sækja fundi nefndar.
Ákvæði III. og IV. kafla samþykktar þessarar gilda að öðru leyti um fulltrúa í nefndum, ráðum og
stjórnum sveitarfélaga eftir því sem við á. Réttindi takmarkast þó eftir eðli máls við það sem fulltrúum
er þörf á vegna starfa í viðkomandi nefnd.


46. gr.
Aðrar nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélag á aðild að.
Sveitarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir sem sveitarfélagið á aðild að samkvæmt viðkomandi
lögum eða samþykktum. Ákvæði þessa kafla samþykktarinnar eiga við um slíka fulltrúa eftir því sem
við getur átt.
Að því leyti sem nefnd, ráð eða stjórn lögaðila, sem sveitarstjórn kýs fulltrúa til skv. 1. mgr., fer með
framkvæmd eða ábyrgð á verkefni sem sveitarfélagi væri ekki sjálfu heimilt að sinna, þá er fulltrúi
sveitarfélags í viðkomandi nefnd, ráði eða stjórn ekki bundinn af fyrirmælum sveitarstjórnarinnar um
þau störf. Hið sama á við að því leyti sem það leiðir af lögum sem gilda um rekstur og starfsemi
viðkomandi lögaðila.
Sveitarstjóri fer með umboð sveitarfélagsins til afgreiðslu mála og atkvæðagreiðslu á hluthafa- og
aðalfundum félaga og byggðasamlaga sem sveitarfélagið á aðild að, innan þeirra marka sem lög ákveða.
Oddviti fer með sambærilegt umboð sveitarfélagsins á sömu fundum í forföllum sveitarstjóra.


47. gr.
Fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að.
Sveitarstjórn kýs fulltrúa í eftirtaldar fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sveitarfélagsins og sem
sveitarfélagið á aðild að og skulu allar fastanefndir, stjórnir og ráð starfa samkvæmt erindisbréfum.
Allar aðrar fastanefndir, stjórnir og ráð en byggðaráð eru kosin á fyrsta eða öðrum fundi sveitarstjórnar
og sitja til loka kjörtímabils, þar til sveitarstjórn ákveður annað eða annað sé tekið fram í samþykktum
þessum. Kosning fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir skal fara fram skv. ákvæðum 35. gr. þessarar
samþykktar nema annað sé sérstaklega tekið fram.


Fastanefndir


1. Byggðarráð. Kjósa skal þrjá sveitarstjórnarmenn í byggðarráð sem aðalmenn og jafnmarga
til vara skv. 35. gr. sveitarstjórnarlaga og 27. gr. samþykktar þessarar. Byggðarráð er kosið
til eins árs í senn á fyrsta fundi sveitarstjórnar að afloknum kosningum til sveitarstjórna og
svo í júní ár hvert. Nánar er fjallað um byggðaráð í V. kafla samþykktar þessarar.
2. Kjörstjórn. Kjósa skal þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara í kjörstjórn skv. 17. gr.
kosningalaga nr. 112/2021. Um kjörgengi fer samkvæmt ákvæðum kosningalaga.
Kjörstjórnir skipta með sér verkum og fara með þau verkefni sem þeim eru falin samkvæmt
ákvæðum kosningalaga.
3. Skipulags- og umferðarnefnd. Kjósa skal fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í
skipulags- og umferðarnefnd. Nefndin fer með verkefni skv. 6. gr. skipulagslaga nr.
123/2010, 7. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 og málefni skv. 1. mgr. 112 gr.
umferðarlaga nr. 77/2019. Lóðaumsóknir skulu lagðar fyrir skipulags- og umferðarnefnd til
fullnaðarafgreiðslu í samræmi við reglur um lóðaúthlutanir sem sveitarstjórn setur, enda sé
viðkomandi lóð í samræmi við gildandi aðal- og deiliskipulag viðkomandi svæðis. Leggja
ber aðrar umsóknir um lóðir og vilyrði fyrir lóðum fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.
Umsækjandi getur óskað eftir því við sveitarstjórn að ákvörðun vegna lóðarumsóknar verði
endurupptekin og skal þá sveitarstjórn taka ákvörðun um endurupptöku máls. Ef
endurupptaka er samþykkt þá tekur sveitarstjórn málið til nýrrar afgreiðslu.
4. Markaðs- menningar- og jafnréttismálanefnd. Kjósa skal fimm aðalmenn og jafnmarga
til vara í markaðs- og menningar- og jafnréttismálanefnd. Nefndin fer með markaðsmál,
menningarmál auk jafnréttismála skv. lögum um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020.
5. Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd. Kjósa skal fimm aðalmenn og jafnmarga til vara í
heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd. Nefndin fer með lýðheilsu, æskulýðs- og íþróttamál,
forvarnarmál og málefni félagsmiðstöðvar.
6. Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd. Kjósa skal fimm aðalmenn og jafnmarga til
vara í umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd. Nefndin hefur eftirtalin verkefni: að fjalla
um og gera tillögur til sveitarstjórnar um umhverfismál, fer með málefni gróðurverndar skv.
ákvæðum laga um landgræðslu nr. 155/2018 og hlutverk náttúruverndarnefndar skv. 14. gr.
laga um náttúruvernd nr. 60/2013 og önnur mál sem falla undir verksvið nefndarinnar.
7. Fjallskilanefndir Landmannaafréttar, Holtamannaafréttar og Rangárvallaafréttar. Í
hverja fjallskilanefnd skal sveitarstjórn kjósa einn aðalmann og annan til vara, sbr. ákvæði
2. gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl. nr. 6/1986. Nytjaréttarhafar kjósa tvo af þremur
aðal- og varamönnum í fjallskilanefndir Landmanna- og Rangárvallaafréttar og einn
aðalmann og annan mann til vara í fjallskilanefnd Holtamannaafréttar. Um verkefni
fjallskilanefnda fer skv. ákvæðum Fjallskilasamþykktar Rangárvallasýslu og
framangreindra laga.
8. Framkvæmda- og eignanefnd. Kjósa skal þrjá sveitarstjórnarmenn sem aðalmenn og
jafnmarga til vara í framkvæmda- og eignanefnd. Nefndin hefur umsjón með viðhaldi og
framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins og er ráðgefandi með forgangsröðun þeirra
verkefna. Nefndin fer með málefni fráveitu í samræmi við lög nr. 9/2009 um uppbyggingu
og rekstur fráveitna og málefni Rangárljóss, sbr. lög nr. 70/2022 um fjarskipti.
Ráð
9. Ungmennaráð. Sveitarstjórn skipar í ungmennaráð eftir tilnefningu, einn aðalmann og
annan til vara af nemendum Gunnskólans á Hellu, einn aðalmann og annan til vara af
nemendum Gunnskólans Laugarlandi, einn fulltrúa úr Félagsmiðstöðinni Hellinum og
annan til vara og tvo fulltrúa og tvo til vara tilnefnda af heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd.
Kjörgengi í ungmennaráð hafa einstaklingar á aldrinum 14-20 ára með lögheimili í
Rangárþingi ytra. Fulltrúar í ungmennaráð skulu valdir fyrir 20. september ár hvert og sitja
fram til 10. júní ár hvert. Ákvæði VI. kafla samþykktar þessarar gilda um ungmennaráð
nema að annað leiði af eðli máls eða ef ekki er kveðið sérstaklega á um annað í samþykkt
þessari eða erindisbréfi ungmennaráðs. Ungmennaráðið fer með þau verkefni sem því eru
falin skv. æskulýðslögum nr. 70/2007 og er ráðgefandi fyrir sveitarstjórn um málefni sem
tengjast ungu fólki á aldrinum 14-20 ára í Rangárþingi ytra.
10. Íbúaráð. Íbúaráð er starfandi í Rangárþingi ytra eins og nánar er tilgreint í erindisbréfi. Í
íbúaráð skal sveitarstjórn kjósa fjóra fulltrúa og fjóra til vara. Íbúaráð er ráðgefandi fyrir
sveitarstjórn um málefni sem tengjast íbúum og nánar er kveðið á um skv. erindisbréfi.
11. Fjölmenningarráð. Sveitarstjórn skipar fimm fulltrúa í fjölmenningarráð og fimm til vara
og eru verkefni fjölmenningarráðs samkvæmt tilgreiningu í erindisbréfi. Kjörgengir í ráðið
eru einstaklingar af erlendu bergi brotnir með lögheimili í Rangárþingi ytra og kjörgengir
til sveitarstjórnar.
Aðrar nefndir, samstarfsnefndir, ráð og stjórnir
12. Héraðsnefnd Rangæinga. Sveitarstjórn Rangárþings ytra skal kjósa þrjá aðalmenn og þrjá
til vara til setu í Héraðsnefnd Rangæinga en önnur sveitarfélög skipa aðra nefndarmenn.
Héraðsnefnd Rangæinga annast þau verkefni sem henni eru ætluð skv. samningi
sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu og samþykktum þeirra. Héraðsnefndin annast útgáfu
Goðasteins, héraðsrits Rangárvallasýslu, skipar stjórn Skógasafns og fulltrúa
sveitarfélaganna í öldungaráð. Héraðsnefndin fer með stjórn fjallskilaumdæmis
Rangárvallasýslu skv. 2. gr. laga nr. 6/1986 um afréttarmálefni, fjallskil o.fl. og semur og
setur fjallskilasamþykkt fyrir Rangárvallasýslu auk annarra verkefna sem henni eru falin
með samkomulagi sveitarfélaganna svo sem umsjón sameiginlegra eigna.
13. Öldungaráð. Öldungaráð er skipað af Héraðsnefnd Rangæinga og starfar ráðið fyrir alla
Rangárvallasýslu skv. 2. mgr. 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og
1. mgr. 6. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999. Ráðið fer með þau verkefni sem
öldungaráði eru falin skv. fyrrgreindum lögum og er ráðgefandi fyrir sveitarstjórnir í
Rangárvallasýslu um þjónustu við aldraða og framkvæmd hennar. Héraðsnefnd Rangæinga
kýs þrjá aðalmenn og jafnmarga til vara í öldungaráð sem eru íbúar í Rangárvallasýslu. Þrír
aðalmenn og jafnmargir til vara eru tilnefndir af félagi eldri borgara og einn fulltrúi og einn
til vara er tilnefndur af heilsugæslunni.
14. Samráðsnefnd Rangárþings ytra og Ásahepps. Allir aðalmenn í sveitarstjórnum
Rangárþings ytra og Ásahrepps skipa nefndina. Verkefni samráðsnefndar eru um samstarfið
að Laugalandi, um sameign og stjórnun Holtamannaafréttar og önnur verkefni sem
samráðsnefndin telur áríðandi vegna annarra samstarfsverkefna sveitarfélaganna.
15. Almannavarnanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu. Sveitarstjórn
Rangárþings ytra kýs einn aðalmann og annan til vara í almannavarnarnefnd skv. 9. gr. laga
um almannavarnir nr. 82/2008 sem sinn fulltrúa í nefndinni, en önnur sveitarfélög skipa
aðra nefndarmenn. Almannavarnanefnd starfar fyrir Rangárvalla- og Vestur
Skaftafellssýslu og er samstarfsverkefni sveitarfélaga og lögreglustjóra.
16. Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr.
sveitarstjórnarlaga og samþykktum Sambands íslenskra sveitarfélaga kýs sveitarstjórn tvo
aðalfulltrúa og tvo til vara á landsþing sambandsins. Kjörið er til sama tímabils og
kjörtímabils sveitarstjórnar nema hún ákveði annað.
17. Byggðasamlag sveitarfélaganna Ásahrepps, Rangárþings ytra, Rangárþings eystra,
Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps um félags- og skólaþjónustu. Sveitarstjórn
Rangárþings ytra kýs einn aðalmann og einn til vara í stjórn byggðasamlagsins. Verkefni
stjórnar eru önnur verkefni á verksviði byggðasamlagsins heldur en félagsmálanefnd hefur
verið falið sérstaklega.
Byggðasamlagið fer með verkefni félagsþjónustu fyrir sveitarfélagið skv. lögum um
félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, húsnæðismál skv. lögum um húsnæðismál nr.
44/1998, fer með verkefni skv. lögum um leikskóla nr. 90/2008 og lögum um grunnskóla
nr. 91/2008 fyrir sveitarfélög í Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu samkvæmt
samþykktum byggðasamlagsins.
Byggðasamlagið fer jafnframt með þau verkefni barnaverndarþjónustu samkvæmt 10. gr.
barnaverndarlaga nr. 80/2002, sem eru ekki sérstaklega falin öðrum. Samkvæmt III. kafla
barnaverndarlag er hvorki sveitarstjórn, félagsmálanefnd eða stjórn byggðasamlagsins
heimilt að gefa barnaverndarþjónustu fyrirmæli um meðferð einstakra mála. Ákvæði 2. og
3. mgr. 42. gr. sveitarstjórnarlaga eiga því ekki við um barnaverndarþjónustu og er
sveitarstjórn, félagsmálanefnd og stjórn byggðasamlagsins því ekki heimilt að hafa eftirlit
með afgreiðslu einstakra mála barnaverndarþjónustu né taka ákvörðun í
barnaverndarmálum. Samþykkt þessari um stjórn og fundarsköp fylgir viðauki um
fullnaðarafgreiðslu barnaverndarmála skv. 3. mgr. 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Beiðnum um endurupptöku ákvarðana barnaverndarþjónustu skal beint til
framkvæmdastjóra byggðasamlagsins eða teymisstjóra barnaverndarþjónustu.
Rangárþing ytra sem aðili að Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-
Skaftafellssýslu bs. er aðili að umdæmisráði Reykjaness og hluta af Suðurlandi skv.
samningi um umdæmisráðið og viðauka við hann. Umdæmisráðið fer með verkefni sem
umdæmisráði er falið skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002 fyrir Rangárþing ytra. Stjórn
Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu bs. skipar í umdæmisráð
barnaverndar skv. 14. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
18. Stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. Sveitarstjórn Rangárþings ytra kýs einn
aðalmann og annan til vara í stjórn Brunavarna Rangárvallasýslu bs. Brunavarnir
Rangárvallasýslu bs. starfa samkvæmt samstarfssamningi sveitarfélaganna í
Rangárvallasýslu og samkvæmt samþykktum settum um byggðasamlagið. Brunavarnir
Rangárvallasýslu bs. fara með verkefni sveitarfélagsins skv. lögum um brunavarnir nr.
75/2000.
19. Stjórn Lundar, hjúkrunar- og dvalarheimilis. Sveitarstjórn Rangárþings ytra kýs þrjá
aðalmenn og þrjá til vara í stjórn Lundar, hjúkrunar- og dvalarheimilis, Ásahreppur kýs einn
aðalmann og annan til vara í stjórnina en stjórnin er alls skipuð 4 fulltrúum. Lundur,
hjúkrunar- og dvalarheimili á Hellu er samstarfsverkefni Rangárþings ytra og Ásahrepps.
Áheyrnarfulltrúi á fundum stjórnarinnar, með málfrelsi og tillögurétt, er fulltrúi starfsmanna
sem starfsmenn kjósa.
20. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga. Sveitarstjórn Rangárþings ytra kýs fjóra aðalmenn og
fjóra til vara sem fulltrúa Rangárþings ytra til setu á fundum og ársþingum Samtaka
sunnlenskra sveitarfélaga. Fulltrúar þessir fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á fundum
og ársþingum samtakanna. Fulltrúafjöldi getur breyst verði breytingar á lögum samtakanna
og skal sveitarstjórn þá kjósa fulltrúa og varamenn að nýju. Allir sveitarstjórnarmenn auk
sveitarstjóra sveitarfélagsins eiga seturétt sem áheyrnarfulltrúar á fundum og ársþingum
samtakanna með málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt nema þeir séu kjörnir fulltrúar
af sveitarstjórn.
21. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs. Byggðasamlagið starfar skv. lögum um hollustuhætti og
mengunarvarnir nr. 7/1998 og fer með þau verkefni sem heilbrigðiseftirliti eru falin í
lögunum fyrir hönd Rangárþings ytra skv. samþykktum byggðasamlagsins. Sveitarstjórn
Rangárþings ytra kýs fjóra aðalmenn og fjóra til vara sem fulltrúa Rangárþings ytra á
aðalfundum byggðasamlagsins. Fulltrúar sveitarfélagsins fara með umboð sveitarfélagsins
til ákvörðunartöku og atkvæðisrétt á fundum byggðasamlagsins. Fulltrúafjöldi getur breyst
verði breytingar á samþykktum byggðasamlagsins og skal sveitarstjórn þá kjósa fulltrúa og
varamenn að nýju. Allir sveitarstjórnarmenn auk sveitarstjóra sveitarfélagsins eiga seturétt
sem áheyrnarfulltrúar á aðalfundum byggðasamlagsins með málfrelsi og tillögurétt en ekki
atkvæðisrétt nema þeir séu kjörnir fulltrúar af sveitarstjórn.
22. Bergrisinn bs. Aðildarsveitarfélög byggðasamlagsins eru 13 sveitarfélög á Suðurlandi og
mynda þau þjónustusvæði þar sem Bergrisanum bs. eru falin verkefni sveitarfélaganna skv.
lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 skv.
sérstökum samþykktum fyrir byggðasamlagið.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra kýs fjóra aðalmenn og fjóra til vara sem fulltrúa
Rangárþings ytra á aðalfundum byggðasamlagsins. Fulltrúar sveitarfélagsins fara með
umboð sveitarfélagsins til ákvörðunartöku og atkvæðisrétt á aðalfundum
byggðasamlagsins. Fulltrúafjöldi getur breyst verði breytingar á samþykktum
byggðasamlagsins og skal sveitarstjórn þá kjósa fulltrúa og varamenn að nýju. Allir
sveitarstjórnarmenn auk sveitarstjóra sveitarfélagsins eiga seturétt sem áheyrnarfulltrúar á
aðalfundum byggðasamlagsins með málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt nema þeir
séu kjörnir fulltrúar af sveitarstjórn.
23. Stjórn Húsakynna bs. Sveitarstjórn Rangárþings ytra kýs tvo aðalmenn og tvo til vara í
stjórn byggðasamlagsins úr hópi aðalfulltrúa í sveitarstjórnunum en alls er stjórnin skipuð
þremur aðalmönnum, tveimur frá Rangárþingi ytra og einum frá Ásahreppi. Húsakynni bs.
sér um sameiginlegar eignir Rangárþings ytra og Ásahrepps. Sveitarfélögin geta falið
Húsakynnum bs. að sjá um rekstur annars húsnæðis ef það samrýmist samþykktum
byggðasamlagsins.
24. Stjórn Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. Sveitarstjórn kýs tvo aðalmenn
og tvo til vara en alls er stjórnin skipuð þremur aðalmönnum, tveimur frá Rangárþingi ytra
og einum frá Ásahreppi. Kjörgengir til setu í stjórn eru aðalmenn í sveitarstjórn.
byggðasamlagið starfar samkvæmt samningi sveitarfélaganna um rekstur vatnsveitu og
samþykktum byggðasamlagsins. Vatnsveitan sér um eignarhald og rekstur allra
vatnsveitumannvirkja og dreifikerfis í eigu og ábyrgð sveitarfélaganna annarra en þeirra
sem eru í einkaeigu.
25. Stjórn Odda bs. Oddi er byggðasamlag Rangárþings ytra og Ásahrepps um rekstur leikog
grunnskóla sveitarfélaganna og starfar samkvæmt sérstökum samþykktum. Stjórn
byggðasamlagsins er skipuð fjórum aðalmönnum, þ.e. oddvitum beggja sveitarfélaganna og
tveimur fulltrúum úr byggðarráði Rangárþings ytra skv. kosningu sveitarstjórnar. Stjórn
Odda bs. gegnir hlutverki fræðslunefndar, sbr. 45. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 og 4.
gr. laga um leikskóla nr. 90/2008. Stjórn byggðasamlagsins getur einnig ákveðið að stofnuð
skuli sérstök nefnd til að fara með hlutverk fræðslunefndar á vegum byggðasamlagsins sbr.
45. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 og 4. gr. laga um leikskóla nr. 90/2008. Þegar
stjórnin fjallar um málefni sem falla undir verksvið fræðslunefndar lögum samkvæmt skulu
áheyrnarfulltrúar eiga rétt til setu á fundum stjórnarinnar skv. 4. mgr. 6. gr. laga um
grunnskóla og 2. mgr. 4. gr. laga um leikskóla. Stjórn byggðasamlagsins sér jafnframt um
stjórn bókasafnsmála fyrir sveitarfélagið sbr. 8. gr. bókasafnslaga nr. 150/2012.
26. Fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Sveitarstjórn kýs aðal- og
varafulltrúa í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands, sbr. 9. gr. laga um
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands nr. 68/1994. Fulltrúar sveitarfélagsins í
fulltrúaráði fara með umboð til ákvörðunartöku og atkvæðarétt sveitarfélagsins á fundum
fulltrúaráðs.
27. Stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. annast
meðhöndlun alls úrgangs sem til fellur á starfssvæði sínu sem nær frá Þjórsá að Markarfljóti
í umboði sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu samkvæmt samningi þeirra í millum og
samþykktum byggðasamlagsins. Sveitarstjórn kýs einn aðalmann og annan til vara úr hópi
aðalmanna í sveitarstjórn til setu í stjórn byggðarsamlagsins. Um starfsemi
byggðasamlagsins fer eftir samþykktum þess.
28. Stjórn Tónlistarskóla Rangæinga. Hlutverk félagsins er að annast rekstur tónlistarskóla
fyrir hönd sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu sbr. lög um fjárhagslegan stuðning við
tónlistarskóla nr. 75/1985 og samþykktir tónlistarskólans. Sveitarstjórn skal kjósa einn
aðalmann og annan til vara í stjórn, úr hópi aðalmanna í sveitarstjórn. Um starfsemina fer
eftir samþykktum félagsins.
29. Suðurlandsvegur 1-3 hf. Sveitarstjórn kýs þrjá aðalmenn og þrjá til vara í stjórn félagsins
í samræmi við samþykktir þess. Tilgangur félagsins er eignarhald og rekstur á fasteignunum
Suðurlandsvegi 1–3 á Hellu. Um starfsemi félagsins fer eftir samþykktum þess.
Verkefnabundnar nefndir
Sveitarstjórn getur kosið nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra
nefnda fellur niður við lok kjörtímabils sveitarstjórnarinnar og fyrr ef verkefni nefndar er lokið.
Sveitarstjórn getur einnig afturkallað umboð slíkra nefnda hvenær sem er.


48. gr.
Endurupptaka mála.
Aðili máls á rétt á að mál hans sé tekið til meðferðar á ný eftir fullnaðarafgreiðslu þess hjá sveitarstjórn,
byggðarráði, stjórn, nefnd eða ráði ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum
um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa
verulega frá því að ákvörðun var tekin, sbr. 24. gr. stjórnsýslulaga.
Beiðni um endurupptöku máls skal beina til byggðarráðs eða sveitarstjórnar og er endurupptaka heimil
innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var eða mátti vera kunnugt um ákvörðunina. Ef
endurupptökuskilyrði eru fyrir hendi tekur byggðarráð eða sveitarstjórnar ákvörðun um málsmeðferð.


VII. KAFLI
Sveitarstjóri og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins.
49. gr.
Ráðning sveitarstjóra.
Sveitarstjórn ræður sveitarstjóra til þess að annast framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar og verkefni
sveitarfélags. Sveitarstjórn skal gera skriflegan ráðningarsamning við sveitarstjóra þar sem starfskjör
hans eru ákveðin. Ráðningartími sveitarstjóra skal að jafnaði vera sá sami og kjörtímabil sveitarstjórnar.


50. gr.
Hlutverk oddvita.
Oddviti undirbýr fundi sveitarstjórnar og semur dagskrá sveitarstjórnarfunda annaðhvort einn eða í
samráði við sveitarstjóra. Oddviti kemur fram fyrir hönd sveitarfélagsins gagnvart íbúum og öðrum
ásamt sveitarstjóra eða án hans. Oddviti veitir íbúum og öðrum viðtöl og svarar fyrirspurnum um störf
sín og sveitarstjórnarinnar. Oddviti fylgist með að ákvörðunum sveitarstjórnarinnar sé hrint í
framkvæmd og fylgist með að starfsemi sveitarfélagsins sé í eðlilegu horfi. Oddviti getur haft fasta
viðveru á skrifstofutíma á skrifstofu sveitarfélagsins íbúum og öðrum til hægðarauka.
Laun oddvita skulu ákveðin sérstaklega af sveitarstjórninni. Skulu launin endurskoðuð reglulega í
samræmi við almennar launabreytingar í landinu.
Ef um er að ræða sérstök, umfangsmikil eða tímabundin verkefni á vegum sveitarfélagsins sem oddviti
sér um, á hann rétt á sérstakri þóknun fyrir þau störf samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar eða samkvæmt
samþykkt um kjör og laun kjörinna fulltrúa sé hún til.


51. gr.
Hlutverk sveitarstjóra.
Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður annars starfsliðs sveitarfélagsins. Hann skal sjá um að stjórnsýsla
sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.
Sveitarstjóri skal sitja fundi sveitarstjórnar. Þar hefur hann málfrelsi, tillögurétt og rétt til bókana en ekki
atkvæðisrétt nema hann sé jafnframt kjörinn fulltrúi í sveitarstjórninni. Hann hefur jafnframt rétt til setu
á fundum nefnda og ráða sem sveitarstjórn skipar.
Sveitarstjóri skal sjá um að fundir sveitarstjórnar, byggðarráðs og annarra nefnda sveitarstjórnar séu vel
undirbúnir, m.a. í þeim tilgangi að mál sem þar eru afgreidd séu vel upplýst. Hann sér einnig um að
ákvarðanir sem teknar eru af hálfu sveitarstjórnar komist til framkvæmda, hafi sveitarstjórn ekki falið
það öðrum. Sveitarstjóri er formönnum nefnda sveitarstjórnarinnar til aðstoðar við boðun funda, öflun
og frágang gagna og annað sem nauðsynlegt er vegna starfa nefndanna.
Sveitarstjóri er prókúruhafi sveitarfélags. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni sveitarfélagsins
prókúru að fengnu samþykki sveitarstjórnar. Prókúruhafar skulu vera fjár síns ráðandi.
Sveitarstjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna sveitarfélagsins, lántökur og ábyrgðir, svo
og önnur skjöl sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir sem samþykki sveitarstjórnar þarf til.
Oddviti er staðgengill sveitarstjóra nema sveitarstjórn ákveði annað.


52. gr.
Ráðning í æðstu stjórnunarstöður.
Sveitarstjórn ræður starfsmenn í æðstu stjórnunarstöður hjá sveitarfélaginu og veitir þeim lausn frá
störfum. Æðstu stjórnunarstöður eru forstöðumenn starfssviða og forstöðumenn stofnana í samræmi við
skipurit sem í gildi er og samþykkt af sveitarstjórn á hverjum tíma.


53. gr.
Um ráðningu annarra starfsmanna.
Sveitarstjóri annast ráðningu annarra starfsmanna og veitir þeim lausn frá starfi, enda hafi sveitarstjórn
ekki ákveðið annað í samþykkt þessari eða með almennum fyrirmælum.


54. gr.
Framsal sveitarstjórnar til starfsmanna til fullnaðarafgreiðslu mála.
Í því skyni að stuðla að hagræðingu, skilvirkni og hraðari málsmeðferð getur sveitarstjórn ákveðið í
samþykkt þessari eða með sérstökum viðauka við hana, að fela einstaka starfsmönnum sveitarfélagsins
fullnaðarafgreiðslu tiltekinna mála sem ekki varða verulega fjárhag sveitarsjóðs nema að lög eða eðli
máls mæli sérstaklega gegn því.
Starfsmaður sem fengið hefur framselt vald til fullnaðarafgreiðslu getur farið fram á að sveitarstjórn,
byggðarráð eða viðkomandi nefnd skv. samþykktum þessum, taki ákvörðun í máli.
Sveitartjórn skal setja skýrar reglur um afgreiðslu starfsmannsins en viðkomandi nefndir hafa eftirlit
með þeim og kalla reglulega eftir skýringum og upplýsingum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli
þeirra.
Sveitarstjórn, byggðarráð eða hlutaðeigandi nefnd skal hafa eftirlit með afgreiðslu mála samkvæmt
þessari málsgrein og kalla eftir reglulegum skýrslum um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli hennar.
Aðili máls skal beina kröfu um endurupptöku máls sem hefur verið fullnaðarafgreitt á grundvelli 1. eða
2. mgr. þessa ákvæðis til byggðarráðs.
Við birtingu ákvörðunar skal kynnt að um fullnaðarafgreiðslu sé að ræða á grundvelli heimildar í 42. gr.
sveitarstjórnarlaga og samþykktar þessarar. Að öðru leyti skal gæta að ákvæðum 20. gr. stjórnsýslulaga,
nr. 37/1993.


55. gr.
Þagnarskylda starfsmanna
Starfsmenn sveitarfélagsins og aðrir sem sveitarfélagið ræður til vinnu við ákveðin verkefni eru bundnir
þagnarskyldu um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt eiga að fara samkvæmt lögum,
fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnarskylda helst þótt látið sé af starfi.


56. gr.
Um starfskjör og réttindi starfsmanna.
Um starfskjör, réttindi og skyldur starfsmanna sveitarfélagsins fer eftir ákvæðum kjarasamninga hverju
sinni og ákvæðum ráðningarsamninga.


VIII. KAFLI
Fjármál sveitarfélagsins.
57. gr.
Fjárstjórnarvald sveitarstjórnar.
Einvörðungu sveitarstjórn getur tekið ákvarðanir um málefni sem varða verulega fjármál
sveitarfélagsins. Til slíkra málefna teljast m.a. ákvarðanir um eftirtalin atriði séu ekki gerðar beinar
undantekningar þar á með lögum:


1. staðfestingu ársreiknings,
2. fjárhagsáætlun næstkomandi árs,
3. fjárhagsáætlun til fjögurra ára,
4. viðauka við fjárhagsáætlanir skv. 2. og 3. tölul.,
5. lán, ábyrgðir eða aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélagsins,
6. sölu eigna sveitarfélagsins og annarra réttinda þess,
7. álagningu skatta og gjalda,
8. ráðningu eða uppsögn endurskoðanda.


58. gr.
Afgreiðsla og form fjárhagsáætlunar.
Sveitarstjórn skal á hverju ári afgreiða fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og næstu þrjú ár þar á eftir.
Byggðarráð, leggur samkvæmt 1. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga tillögu um fjárhagsáætlun fyrir
sveitarstjórn eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Sveitarstjórn skal fjalla um hana á tveimur fundum sem
fram skulu fara með minnst tveggja vikna millibili. Að lokinni umræðu sveitarstjórnar skal afgreiða
tillöguna, þó ekki síðar en 15. desember ár hvert.
Fjárhagsáætlanir skulu gefa glögga mynd af rekstri sveitarfélagsins, efnahag og breytingum á handbæru
fé. Einnig skal þar koma fram greinargott yfirlit um tekjuöflun, ráðstöfun fjármuna og fjárheimildir
sveitarfélagsins. Við gerð fjárhagsáætlana skal hafa hliðsjón af fjárhagslegri stöðu sveitarsjóðs og
stofnana sveitarfélagsins við upphaf áætlunartímabilsins.
Sveitarstjórn skal senda ráðuneytinu fjárhagsáætlun innan fimmtán daga frá afgreiðslu hennar, sbr. 1.
mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga. Sama á við um viðauka við fjárhagsáætlun.


59. gr.
Bindandi áhrif ákvörðunar um fjárhagsáætlun ársins.
Ákvörðun sem sveitarstjórn tekur skv. 56. gr. samþykktar þessarar og 62. gr. sveitarstjórnarlaga um
fjárhagsáætlun næstkomandi árs er bindandi regla um allar fjárhagslegar ráðstafanir af hálfu
sveitarfélagsins. Aðrir geta þó ekki byggt sjálfstæðan rétt til fjárframlaga eða annarrar fyrirgreiðslu
sveitarfélags á fjárhagsáætlunum.
Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við
áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa
í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í
þegar samþykktri áætlun. Viðauki er ekki gildur nema hann feli einnig í sér útfærða ákvörðun um það
hvernig þeim útgjöldum eða tekjulækkun sem gert er ráð fyrir verði mætt. Á það einnig við þótt
heildarútgjöld eða heildartekjur breytist ekki vegna samþykktar hans.
Þrátt fyrir 2. mgr. má í undantekningartilvikum gera þær ráðstafanir sem skylt er samkvæmt lögum eða
öðrum bindandi réttarreglum án þess að sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka, enda þoli þær ekki
bið. Viðhlítandi heimildar sveitarstjórnar skal þá afla svo fljótt sem auðið er. Skal erindi um slíka heimild
lagt fyrir þegar á næsta fundi sveitarstjórnarinnar.


60. gr.
Fjármálareglur og viðmið um afkomu sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn ber að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á
hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum sbr. 64.
gr. sveitarstjórnarlaga og reglna sem settar eru á grundvelli ákvæðisins.


61. gr.
Ábyrg meðferð fjármuna og heimildir til fjárskuldbindinga
Sveitarstjórn skal gæta ábyrgðar við meðferð fjármuna sveitarfélagsins og varðveita fjármuni með
ábyrgum hætti, svo sem á innlánsreikningum fjármálastofnana eða með því að kaupa ríkistryggð
verðbréf. Um heimildir til fjárfestinga í hagnaðarskyni fer skv. ákvæðum 65. gr. sveitarstjórnarlaga.
Áður en sveitarstjórn tekur ákvörðun um fjárfestingu, framkvæmd eða aðra skuldbindingu sem nemur
hærri fjárhæð en 20% af skatttekjum sveitarfélagsins yfirstandandi reikningsár er skylt að gera sérstakt
mat á áhrifum hennar á fjárhag sveitarfélagsins, sbr. ákvæði 66. gr. sveitarstjórnarlaga.
Um heimildir sveitarfélagsins til veðsetninga og að gangast í ábyrgðir fer skv. 68. og 69. gr.
sveitarstjórnarlaga.


62. gr.
Ársreikningur.
Gera skal ársreikning fyrir sveitarsjóð, stofnanir sveitarfélagsins og fyrirtæki þess. Jafnframt skal gera
samstæðureikning fyrir sveitarfélagið, þ.e. sveitarsjóð, stofnanir þess og fyrirtæki með sjálfstætt
reikningshald, sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga. Ársreikningur skal gerður samkvæmt lögum um
ársreikninga, reglum settum samkvæmt þeim lögum og sveitarstjórnarlögum, sem og góðri
reikningsskilavenju.
Ársreikningur sveitarfélagsins skal fullgerður og samþykktur af byggðarráði og tilbúinn til
endurskoðunar og afgreiðslu í sveitarstjórn fyrir 15. apríl ár hvert.
Sveitarstjórn skal hafa lokið staðfestingu ársreiknings sveitarfélagsins, stofnana sveitarfélagsins og
fyrirtækja þess eigi síðar en 15. maí ár hvert.
Ársreikning sveitarfélagsins, ásamt skýrslu endurskoðanda, skal senda ráðuneyti sveitarstjórnarmála og
Hagstofu Íslands ekki síðar en 20. maí ár hvert.


63. gr.
Endurskoðun ársreikninga.
Sveitarstjórn ræður löggiltan endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki sem annast skal endurskoðun
ársreikninga hjá sveitarfélaginu. Endurskoðun fer eftir lögum um endurskoðendur, lögum um
ársreikninga og alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum, sem og fyrirmælum 72. og 73. gr.
sveitarstjórnarlaga.


IX. KAFLI
Samvinna við önnur sveitarfélög og samningar um starfrækslu verkefna


64. gr.
Samvinna sveitarfélaga.
Sveitarstjórn er heimilt að eiga samstarf um starfrækslu verkefna við annað eða önnur sveitarfélög og
framselja vald til töku ákvarða um rétt og skyldu manna. Fer um slíkt samstarf skv. IX. kafla
sveitarstjórnarlaga og þau sérlög sem við eiga.


65. gr.
Samningar við einkaaðila.
Sveitarstjórn er heimilt að gera samninga við einkaaðila um framkvæmd á þjónustu og öðrum verkefnum
fyrir sveitarfélagið, enda sé áætlað fyrir viðkomandi verkefni í fjárhagsáætlunum sveitarfélagsins, sbr.
100. gr. sveitarstjórnarlaga. Skulu ákvæði stjórnsýslulaga og upplýsingalaga, sem og almennar
meginreglur stjórnsýsluréttar, gilda um þá stjórnsýslu sem verktaki tekur að sér að annast.


X. KAFLI
Samráð við íbúa-Þátttökulýðræði
66. gr.
Borgarafundir, íbúaþing, íbúakosningar o.fl.
Um samráð við íbúa, þ.m.t. borgarafundi, íbúaþing og íbúakosningar, gilda ákvæði X. kafla
sveitarstjórnarlaga.


67. gr.
Almenn atkvæðagreiðsla að frumkvæði íbúa.
Ef 33% þeirra sem kosningarrétt eiga í sveitarfélaginu óska almennrar atkvæðagreiðslu skv. 108. gr.
sveitarstjórnarlaga skal sveitarstjórn verða við því eigi síðar en innan árs frá því að slík ósk berst.
Um framkvæmd undirskriftasöfnunar, hlutverk sveitarstjórna og framkvæmd almennrar
atkvæðagreiðslu fer skv. 107. og 108 gr. sveitarstjórnarlaga.


68. gr.
Gildistaka.
Samþykkt þessi sem sveitarstjórn Rangárþings ytra hefur sett skv. ákvæðum 9. og 18. gr.
sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, staðfestist til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi samþykkt
um stjórn sveitarfélagsins Rangárþings ytra nr. 1275/2014 með síðari breytingum.
Innviðaráðuneytið, xx. 2023.
F. h. r.
Aðalsteinn Þorsteinsson.
Hafdís Gísladóttir.