Markmið og áherslur menningarsjóðsins:
-
- Að efla listsköpun og menningarstarf í Rangárþingi ytra
- Að styðja verkefni sem varðveita og miðla menningararfi Rangárþings ytra
- Að styðja viðburði og verkefni sem efla fjölmenningu í Rangárþingi ytra
- Að styðja menningarverkefni sem stuðla að sjálfbærni og umhverfisvitund
- Að hvetja til samstarfs milli aðila á sviðum lista og menningar
Úthlutunarreglur
-
- Umsækjendur geta verið lögráða einstaklingar, félagasamtök, stofnanir eða fyrirtæki sem koma að menningarviðburðum í Rangárþingi ytra. Verkefni sem styrkt eru verða að fara fram innan sveitarfélagsins eða sýslunnar.
- Menningarsjóður Rangárþings ytra veitir ekki rekstrar-, stofnkostnaðar- eða endurbótastyrki heldur eru framlög sveitarfélagsins ætluð til einstakra verkefna. Að jafnaði eru ekki veittir ferðastyrkir sérstaklega.
- Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd metur styrkhæfi verkefna.
- Fylla skal út alla reiti umsóknareyðublaðs sem eru stjörnumerktir og skila kostnaðaráætlun.
- Gerður skal samningur milli styrkþega og Rangárþings ytra um sérhverja styrkveitingu.
- Verkefnið þarf að fara fram innan árs frá úthlutun styrks. Sé verkefni ekki lokið innan árs frá úthlutun skal styrkhafi endurgreiða fenginn styrk. Styrkhöfum er þó gefinn kostur á að sækja um frest á lok verkefnis gegn rökstuðningi.
- Styrkþegi skal skila lokaskýrslu um framkvæmd verkefnisins á þar til gert eyðublað eigi síðar en ári eftir að samningur um verkefnið var undirritaður.
- 2/3 hlutar styrkupphæðarinnar er greiddur út þegar skrifað hefur verið undir samning og 1/3 hluti er greiddur út við skil á lokaskýrslu.
- Hafi umsækjandi áður hlotið styrk verður ný umsókn ekki tekin til greina nema viðkomandi hafi skilað inn lokaskýrslu vegna fyrra verkefnis.
- Sveitarstjórn Rangárþings ytra ákveður upphæð úthlutunar hverju sinni samkvæmt fjárhagsáætlun hvers árs.
- Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum sem uppfylla ekki skilyrði og falla ekki að markmiðum sjóðsins.
- Úthlutað skal úr sjóðnum tvisvar á ári og opið skal vera fyrir umsóknir annars vegar frá 1. mars til 1. apríl og hins vegar frá 1. september til 1. október ár hvert.
Stigagjöf: Umsóknir eru metnar á skalanum 1-5 eftir eftirfarandi þáttum:
| Matsþáttur | Lýsing | Stig |
| Listsköpun og menningarstarf | Hversu vel eflir verkefnið listsköpun og menningarstarf? | 1–5 |
| Varðveisla og miðlun menningararfs | Hvernig varðveitir og miðlar verkefnið menningararfi Rangárþings ytra? | 1–5 |
| Fjölmenning | Hversu vel eflir verkefnið fjölmenningu? | 1–5 |
| Sjálfbærni og umhverfisvitund | Hvernig stuðlar verkefnið að sjálfbærni og umhverfisvitund? | 1–5 |
| Samstarf á sviði menningar og lista | Hversu vel hvetur verkefnið til samstarfs á milli aðila á sviði menningar og lista? | 1–5 |
| Frumleiki | Hversu nýstárlegt og frumlegt er verkefnið? | 1–5 |
| Markmið og áætlanir | Hversu skýr og raunhæf eru markmið og áætlanir verkefnisins? | 1–5 |
| Kostnaðaráætlun | Hversu ítarleg, raunhæf og vel rökstudd er kostnaðaráætlunin? | 1–5 |
Heildareinkunn:
• Hámarksstig eru 40.
• Úthlutunarnefnd hefur heimild til að víkja frá stigagjöfinni ef sérstakar ástæður eru til.
• Úthlutunarnefndin hefur heimild til að beita eigin mati í sérstökum tilvikum.
Samþykkt á fundi sveitarstjórnar Rangárþings ytra 12. mars 2025