Reglur um styrkveitingar til afreksfólks í íþróttum búsett í Rangárþingi ytra 18 ára og yngra.

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF-skjali gildir PDF-skjalið.

PDF-skjalið má nálgast með því að smella hér.

 

Einstaklingar 18 ára og yngri sem búsett eru í Rangárþingi ytra geta sótt um styrk vegna
æfinga- og keppnisferða erlendis. Styrkir þessir eiga við þegar viðkomandi ungmenni þarf
sjálft að bera hluta eða allan kostnað vegna ferðarinnar.
 
Æfinga- og keppnisferðir með félagsliði og æfingaferðir með landsliði 45.000 kr.
 
Keppnisferðir með landsliði á opinber mót landsliða, s.s. riðlakeppnir og lokamót
70.000 kr.
 
Sveitarstjóri hefur heimild til að meta umsóknir og afgreiða styrki samkvæmt þessum reglum
í samræmi við heimildir samþykktrar fjárhagsáætlunar. Styrkur verður aldrei greiddur nema
með staðfestingu á þátttöku viðkomandi í ferðinni, s.s. með framlagningu farseðla og
kostnaðarreikninga.

Samþykkt af heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd 04.04.2024
Samþykkt í sveitarstjórn 10.04.2024