Samþykkt um meðhöndlun úrgangs á starfssvæði Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.


1. gr.
Gildissvið og markmið.
Samþykkt þessi gildir um meðhöndlun úrgangs, þ.m.t. hirðu, söfnun og förgun úrgangs, í Rangárvallasýslu, nánar tiltekið í Ásahreppi, Rangárþingi ytra og Rangárþingi eystra.
Um meðhöndlun úrgangs í Rangárvallasýslu fer samkvæmt þessari samþykkt, lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, reglugerð nr. 737/2003 um meðhöndlum úrgangs og öðrum reglugerðum settum með stoð í framangreindum lögum.


2. gr.
Markmið.
Markmið samþykktarinnar er:

a. að lágmarka það úrgangsmagn sem fer til förgunar með því að auka endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs,
b. að lágmarka kostnað samfélagsins við meðhöndlun úrgangs,
c. að kostnaður vegna úrgangs greiðist af þeim sem úrganginum veldur.


3. gr.
Skilgreiningar.

  • Aðkomustaður: Svæði sem söfnunartæki á auðvelt með að komast að til að athafna sig við söfnun
    úrgangs úr ílátum viðkomandi íbúðarhúsnæðis. Sé aðgengi eða heimreið að íbúðarhúsi ekki
    aksturshæf færist aðkomustaður söfnunartækis í samræmi við það.
  • Annar úrgangur: Annar úrgangur en sá sem flokkast sem heimilisúrgangur eða rekstrarúrgangur.
  • Blátunna: Ílát, með bláu loki, undir endurvinnanlegan pappír og pappa.
  • Brúnt ílát: Ílát, ofan í 240l íláti, undir lífrænan heimilisúrgang.
  • Grátunna: Ílát, með gráu loki, undir annan heimilisúrgang en þann sem flokkast í blátunnu,
    græntunnu eða brúnt ílát, þó ekki garðaúrgang, timbur og spilliefni.
  • Grenndarstöð (gámaplan): Staður og aðstaða þar sem tekið er við flokkuðum úrgangi frá
    almenningi og/eða smærri fyrirtækjum. Þaðan er hann fluttur til móttökustöðvarinnar á Strönd til
    endurnotkunar, endurnýtingar, urðunar eða fluttur til förgunar.
  • Grunneining: Samsetning fjögurra íláta: blátunnu, græntunnu, grátunnu og brúns íláts.
  • Græntunna: Ílát með grænu loki, undir endurvinnanlegt heimilisplast.
  • Heimilisúrgangur: Úrgangur frá heimilum, t.d, matarleifar, pappír, pappi, plast, garðaúrgangur,
    gler, timbur, málmar og sams konar leifar frá rekstraraðilum o.þ.h.
  • Húsráðandi: Eigandi eða umráðandi viðkomandi fasteignar.
  • Ílát: Móttökuílát undir úrgang. Ílát til heimilisnota eru í stærðunum 120 l, 240 l eða 660 l, ásamt
    íláti í tunnu. Önnur ílát eru opnir eða lokaðir gámar í stærðum frá 2 m³ upp í 30 m³.
  • Landbúnaðarúrgangur: Úrgangur frá landbúnaði, t.d. húsdýraskítur, gamalt hey, heyrúlluplast og
    dýrahræ.
  • Meðhöndlun úrgangs: Söfnun geymsla, böggun, flokkun, flutningur, endurnotkun, endurnýting,
    pökkun og förgun úrgangs, þ.m.t. eftirlit með slíkri starfsemi og umsjón með förgunarstöðum eftir
    því að þeim hefur verið lokað.
  • Móttökustöð (Strönd): Staður eða aðstaða þar sem tekið er við úrgangi til geymslu til lengri eða
    skemmri tíma, til umhleðslu, flokkunar eða annarrar meðhöndlunar. Þaðan fer úrgangurinn til
    förgunar eða nýtingar, eða honum er fargað á staðnum.
  • Rekstraraðili: Einstaklingur eða lögaðili sem ber ábyrgð á viðkomandi atvinnurekstri.
  • Rekstrarúrgangur: Úrgangur frá framleiðslu, þjónustu, verslun og öðrum rekstri, annar en
    heimilisúrgangur.
  • Spilliefni: Úrgangur sem inniheldur efni sem haft geta mengandi eða óæskileg áhrif á umhverfið
    hvort sem þau eru óblönduð eða hluti af öðrum efnum, vörum eða umbúðum sem komist hafa í
    snertingu við spilliefni og skráð eru á lista í reglugerð um úrgang, sbr. 43. gr. laga nr. 55/2003 um
    meðhöndlun úrgangs.
  • Söfnunarleið: Vegur sem söfnunartæki ekur til þess að safna úrgangi frá íbúðarhúsum.
  • Söfnunartæki: Ökutæki sem notað er til söfnunar úrgangs úr ílátum.
  • Þjónustuaðili: Einstaklingur eða lögaðili sem hefur starfsleyfi til söfnunar og meðhöndlunar
    úrgangs.


4. gr.
Fyrirkomulag sorphirðu.
Meðhöndlun úrgangs fer fram undir stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. og er háð eftirliti Heilbrigðisnefndar Suðurlands eða Umhverfisstofnunar eftir því sem við á í samræmi við 4. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs. Söfnun úrgangs frá íbúðarhúsnæði fer fram í samræmi við útgefið sorphirðudagatal.
Stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. er heimilt að fela öðrum framkvæmd með tilteknum þáttum meðhöndlunar úrgangs. Viðkomandi skal hafa starfsleyfi heilbrigðisnefndar eða Umhverfisstofnunar eftir því sem við á.


5. gr.
Skyldur íbúa, húsráðenda, rekstraraðila og landeigenda.
Íbúum, húsráðendum, rekstraraðilum og landeigendum í Rangárvallasýslu ber að fara eftir þeim
reglum sem stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. setur um meðhöndlun úrgangs. Úrgang sem samþykktin
nær til má einungis meðhöndla í samræmi við gildandi lög, reglugerðir og kröfur sveitarfélaganna sem reka
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs.

Sérhverjum húsráðanda í Rangárvallasýslu, hvort sem um er að ræða húsráðanda íbúðar-, frístunda- eða atvinnuhúsnæðis, er skylt að endurnota eða flokka og endurnýta úrgang eins og kostur er, hvort sem slíkum úrgangi er safnað við húsnæði skv. 6.-8. gr. eða skilað til söfnunarstöðvar skv. 10. gr.
Setja skal allan úrgang sem safnað er við húsnæði í viðeigandi ílát sbr. 6.-8. gr. Að öðrum kosti er starfsmönnum á söfnunartækjum heimilt að skilja hann eftir.
Flokkaður úrgangur skal meðhöndlaður þannig að hann blandist ekki öðrum úrgangsflokkum.
Flokkaðan úrgang skal geyma og meðhöndla þannig að gæði hans við væntanlega endurnýtingu skerðist sem
minnst.
Úrgang sem getur fokið skal geyma þannig að hann fjúki ekki.
Meðhöndlun úrgangs má ekki valda lyktaróþægindum, draga til sín meindýr eða skapa hreinlætisvandamál.
Óheimilt er að skilja eftir eða geyma rusl, garðaúrgang eða annan úrgang á víðavangi, götum, gangstígum, við sorpgáma eða á opnum svæðum í Rangárvallasýslu. Sama á við um númerslausar bifreiðar, vélar, báta, kerrur, vinnuvélar, lausamuni og önnur tæki.
Glerbrotum og öðrum oddhvössum hlutum, sem hætta er á að skaði þá sem meðhöndla úrgang eða sorpílát, skal pakkað inn eða gengið frá þeim á annan tryggilegan hátt. Ílát fyrir gler og málma eru á grenndarstöðvum og á móttökustöðinni á Strönd.
Garðaúrgangi, timbri, spilliefnum, brotajárni, möl, sandi og öðrum grófum úrgangi, s.s. úr sér gengnum húsgögnum, skal skila til móttökustöðvarinnar á Strönd sbr. 10. gr. Sama á við um annan rekstrarúrgang frá fyrirtækjum og stofnunum. Einnig má semja við þjónustuaðila um ílát og þjónustu fyrir slíkan úrgang.


6. gr.
Söfnun úrgangs frá íbúðarhúsnæði.
Öll íbúðarhús í Rangárvallasýslu skulu búin grunneiningu íláta. Stærð grunneininga er 240 l blátunna, 240 l græntunna, 240 l grátunna og brúnt ílát sem haft er ofan í einhverri hinna þriggja tunna. Í þessi ílát má aðeins setja heimilisúrgang, en þó ekki garðaúrgang eða timbur. Óheimilt er að setja spilliefni í ílátin.
Sé fyrirséð að ílátin yfirfyllist getur húsráðandi óskað eftir stærri eða fleiri ílátum. Einnig getur hann farið með umframmagn heimilisúrgangs á grenndarstöð og móttökustöð, sbr. 10. gr.

Staðsetning íláta má að hámarki vera 20 m frá aðkomustað söfnunartækis við íbúðarhúsnæði. Húsráðandi skal gæta þess að ílát séu hrein, vel við haldið og að ekki sé hætta á að þau fjúki. Festingar íláta mega ekki hamla losun þeirra. Gott aðgengi skal vera að ílátunum og skal húsráðandi moka snjó frá þeim og hálkuverja ef þörf krefur vegna söfnunar. Auðvelt skal vera að keyra ílátin að söfnunartæki.
Garðaúrgangi, timbri, spilliefnum, brotajárni, möl, sandi og öðrum grófum úrgangi, s.s. úr sér gengnum húsgögnum, frá íbúðarhúsnæði skal skila til móttökustöðvarinnar á Strönd sbr. 10. gr. Einnig má semja við þjónustuaðila um ílát og þjónustu fyrir slíkan úrgang. Frekari upplýsingar um kröfur um flokkun og aðgengi má finna í verklagsreglum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. um flokkun í grunneiningu íláta og aðgengi að þeim sem birtar eru á heimasíðum sveitarfélaganna.


7. gr.
Söfnun úrgangs frá frístundahúsnæði.
Húsráðanda frístundahúss er skylt að flokka úrgang í samræmi við ákvæði 2. mgr. 5. gr. og getur skilað heimilisúrgangi á grenndarstöð eða móttökustöð, sbr. 10. gr.
Garðaúrgangi, timbri, spilliefnum, brotajárni, möl, sandi og öðrum grófum úrgangi, s.s. úr sér gengnum húsgögnum, frá frístundahúsnæði skal skila til móttökustöðvarinnar á Strönd, sbr. 10. gr. Einnig má semja við þjónustuaðila um ílát og þjónustu fyrir slíkan úrgang.


8. gr.
Söfnun úrgangs frá atvinnustarfsemi.
Rekstraraðila er skylt að flokka úrgang í samræmi við ákvæði 2. mgr. 5. gr. og getur skilað heimilisúrgangi á grenndarstöð eða móttökustöð, sbr. 10. gr. Rekstrarúrgangi, garðaúrgangi, timbri, spilliefnum og öðrum úrgangi frá atvinnustarfsemi skal skila á móttökustöð, sbr. 10. gr., eða semja við þjónustuaðila um ílát og þjónustu fyrir slíkan úrgang. Rekstraraðili í dreifbýli getur óskað eftir grunneiningu íláta fyrir heimilisúrgang og hirðingu samkvæmt gjaldskrá og gildandi fyrirkomulagi sorphirðu, sé rekstur hans á aðkomustað söfnunartækis á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs.


9. gr.
Þjónustuaðilar.
Stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. ákveður hvernig samskiptum þjónustuaðila og Sorpstöðvarinnar er háttað og setur reglur um verklag og tilhögun valkvæðrar þjónustu.


10. gr.
Móttaka úrgangs á móttöku- og grenndarstöð.
Tekið er á móti úrgangi á móttökustöð Sorpstöðvarinnar á Strönd. Tekið er á móti heimilisúrgangi á grenndarstöðum Sorpstöðvarinnar á Hvolsvelli, Hellu og við Meiri-Tungu.
Úrgangi sem skilað er til grenndarstöðva og móttökustöðvar skal flokkaður samkvæmt flokkunarreglum Sorpstöðvarinnar. Spilliefni, svo sem úrgangsolía og úrgangsvökvar, skulu aðskilin frá öðrum úrgangsflokkum og uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 806/1999 um spilliefni og er tekið á móti þeim á móttökustöð.
Í gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs, sbr. 11. gr. eru nánar tilgreindir þeir úrgangsflokkar sem tekið er á móti og það gjald sem tekið er fyrir móttöku og eyðingu hvers flokks um sig. Slík gjöld skulu innheimt við móttöku annarra úrgangsflokka en almenns heimilisúrgangs sem safnað er af söfnunartæki Sorpstöðvarinnar. Heimilt er að undanþiggja gjaldskyldu minni háttar magn tiltekins heimilisúrgangs sem
komið er með á móttökustöð. Ávallt skal tekið gjald fyrir allan rekstrarúrgang. Móttökustöðin á Strönd er mönnuð og hefur ákveðinn auglýstan afgreiðslutíma.


11. gr.
Gjaldtaka.
Stjórn Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs. skal innheimta gjald fyrir förgun úrgangs í samræmi við 1. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs. Þá skulu hlutaðeigandi sveitarstjórnir innheimta, gjald fyrir alla meðhöndlun úrgangs skv. 1. ml. 2. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003. Jafnframt er þeim heimilt, skv. 2. ml. 2. mgr. sömu greinar að innheimta gjald fyrir tengda starfsemi sem samræmist markmiðum laganna, svo sem þróun nýrrar tækni við meðhöndlun úrgangs, rannsóknir, fræðslu og kynningarmál.
Gjöld skulu ákvörðuð og innheimt samkvæmt gjaldskrá sem sett er skv. 4. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Gjöld í hverjum flokki skulu vera sem næst meðalraunkostnaði við þá þjónustu sem veitt er, en þó aldrei hærri en sem nemur þeim kostnaði sem fellur til hjá Sorpstöðinni við meðhöndlun úrgangs, veitta þjónustu, framkvæmd eftirlits með einstökum þáttum og tengda starfsemi, sbr. 3. mgr. 23. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Gjöld skulu lögð á hvert íbúðarhús, frístundahús og atvinnuhúsnæði sem nýtur þjónustu samkvæmt þessari samþykkt. Heimilt er að miða gjöld við magn úrgangs, gerð úrgangs, losunartíðni, frágang úrgangs og aðra þætti sem áhrif hafa á kostnað við meðhöndlun úrgangs viðkomandi aðila samkvæmt mati eða skráningu Sorpstöðvarinnar eða samkomulagi við viðkomandi.
Stjórn Sorpstöðvarinnar skal láta birta gjaldskrána í B-deild Stjórnartíðinda og skal í gjaldskránni vísað til þessarar samþykktar.


12. gr.
Kvartanir og kærur.
Kvörtunum vegna meðhöndlunar úrgangs skal komið á framfæri til Sorpstöðvar Rangárvallasýslu eða Heilbrigðisnefndar Suðurlands. Stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru á grundvelli þessarar samþykktar eru kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í samræmi við 1. mgr. 67. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.


13. gr.
Viðurlög.
Með brot á samþykkt þessari skal farið samkvæmt ákvæðum XIX. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og 66. og 68. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.


14. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Samþykkt þessi er sett samkvæmt ákvæðum 2. mgr. 8. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, sbr. ákvæði 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma falla úr gildi samþykkt nr. 433/2012 um meðhöndlun úrgangs í Rangárþingi ytra og samþykkt nr. 46/2012 um meðhöndlun úrgangs í Rangárþingi eystra.


Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 27. október 2020
F. h. r.
Sigurbjörg Sæmundsdóttir / Steinunn Elna Eyjólfsdóttir