Málsnúmer 1809021
Vakta málsnúmerÍþrótta- og tómstundanefnd - 1. fundur - 17.09.2018
Tillaga er um að Rangárþing ytra verði heilsueflandi samfélag.
Nefndin leggur til að Rangárþing ytra verði heilsueflandi samfélag. Til þess að það verði að veruleika telur nefndin að þurfi að ráða starfsmann í a.m.k. 25% starf sem vinni að verkefninu og taka þarf tillit til þess við fjárhagsáætlunargerð næsta árs. Nefndin bendir jafnframt á að mikil samlegðaráhrif væru með þessu verkefni og hugsanlegu starfi heilsu-, íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 3. fundur - 07.01.2019
Kynning á verkefninu heilsueflandi samfélag fór fram og voru mættir fulltrúar sveitarstjórnar, íþrótta- og tómstundanefndar og íþróttafélaga á svæðinu.
Formaður nefndarinnar sagði frá fundinum. Verkefnið fór ekki inn á fjárhagsáætlun fyrir árið 2019 en nefndin mun vinna áfram að verkefninu og vonar að verkefnið fari af stað á árinu 2020.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 5. fundur - 03.09.2019
s.l. haust hófst umræða um verkefnið Heilsueflandi samfélag, það fór ekki á fjárhagsáætlun fyrir árið 2019. Fara þarf yfir stöðu málsins og ákveða næstu skref.
Nefndin leggur til við sveitarstjórn að sveitarfélagið taki þátt í verkefninu Heilsueflandi samfélag á árinu 2020 og nefndin taki að sér verkefnið til þess að byrja með. Nefndin leggur til að 2.000.000 kr verði varið til verkefnisins á árinu 2020 og gert verði ráð fyrir því í fjárhagsáætlun.
Íþrótta- og tómstundanefnd - 8. fundur - 10.02.2020
Skipulag og undirbúningur
Sveitarfélagið hefur sent inn umsókn til Landlæknisembættis um að verða Heilsueflandi samfélag. Stefnt er að undirskrift með landlækni og sveitarstjóra í byrjun mars og tilkynna á sama tíma íþróttamann ársins 2019.
Drög eru lögð fram að dagskrá viðburða Heilsueflandi samfélags fyrir árið 2020.
Tillaga er gerð að stýrihóp, sem verður lögð fyrir á næsta sveitarstjórnarfundi. Fimm einstaklingar eru tilnefndir.
Drög eru lögð fram að dagskrá viðburða Heilsueflandi samfélags fyrir árið 2020.
Tillaga er gerð að stýrihóp, sem verður lögð fyrir á næsta sveitarstjórnarfundi. Fimm einstaklingar eru tilnefndir.
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 9. fundur - 22.06.2020
Fresta þurfti undirskrift með landlækni svo að Rangárþing ytra gæti orðið Heilsueflandi samfélag vegna covid-19. Nú hefur landlæknir boðað komu sína þann 25. júní nk. og mun þá sveitarfélagið formlega verða Heilsueflandi samfélag.
Verkefni tengd Heilsueflandi samfélagi rædd og ákveðið að leggja til að settur verði upp ratleikur í sveitarfélaginu í sumar. Hugmynd um samstarfssamning sveitarfélagsins við leikskóla, grunnskóla, íþróttafélög og félagasamtök varðandi Heilsueflandi samfélag var rædd og talin góð.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 25. fundur - 25.06.2020
Samstarfssamningur við Landlækni frá 25.6.2020.
Lagt fram til kynningar. Byggðarráð lýsir yfir sérstakri ánægju með samninginn.
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 11. fundur - 27.10.2020
Fyrir liggur 3. fundargerð stýrihóps Heilsueflandi Samfélags til kynningar.
Árbjörg Sunna Markúsdóttir hefur óskað eftir að hætta í stýrihópnum og tilnefna þarf fulltrúa í hennar stað.
Árbjörg Sunna Markúsdóttir hefur óskað eftir að hætta í stýrihópnum og tilnefna þarf fulltrúa í hennar stað.
Nefndin fór yfir fundargerðina. Nefndin tilnefnir Jónu Þórhallsdóttir í stað Árbjargar Sunnu Markúsdóttur. Formanni nefndarinnar falið að kanna áhuga hennar.
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 12. fundur - 23.11.2020
Jóna Þórhallsdóttir hefur staðfest að hún hafi áhuga á að taka þátt í stýrihóp um Heilsueflandi samfélag í Rangárþingi ytra.
Nefndin staðfestir fulltrúa í stýrihóp Heilsueflandi samfélags fyrir sitt leyti.
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 13. fundur - 21.01.2021
Umræða um verkefnið, farið yfir framvindu þess og hvað sé framundan.
Lagt fram til kynningar.
Heilsu,- íþrótta- og tómstundanefnd - 18. fundur - 17.03.2022
Farið yfir stöðu verkefnisins.
Lagt fram til kynningar.