Málsnúmer 2109053
Vakta málsnúmerAtvinnu- og menningarmálanefnd - 20. fundur - 04.10.2021
Verkefnið Fossabrekkur kynnt fyrir nefndinni. Sótt verður um fyrir hönnun á verkefninu í framkvæmdasjóð ferðamannastaða í október.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og umferðarnefnd - 43. fundur - 11.10.2021
Rangárþing ytra hefur samþykkt að vinna að gerð deiliskipulags fyrir Fossabrekkur. Lögð er fram lýsing skipulagsáætlunar.
Skipulagsnefnd hefur fjallað um skilmála í lýsingu og telur að öllum megináherslum séu gerð góð skil. Skipulagsnefnd telur að fullnægjandi grein sé gerð fyrir framkvæmdinni í framlagðri greinargerð með tilkynningunni. Umhverfisáhrif hafa verið lágmörkuð með fullnægjandi mótvægisaðgerðum og vöktun. Skipulagsnefnd telur því að umrædd framkvæmd skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna og leggur til að hún verði kynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning standi yfir í tvær vikur frá auglýsingu.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna og leggur til að hún verði kynnt í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynning standi yfir í tvær vikur frá auglýsingu.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 21. fundur - 26.10.2021
Sótt var um í framkvæmdarsjóð ferðamannastaða fyrir hönnun og framkvæmd samkvæmt deiliskipulagi sem í vinnslu er fyrir Fossabrekkur.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og umferðarnefnd - 45. fundur - 06.12.2021
Rangárþing ytra hefur samþykkt að vinna að gerð deiliskipulags fyrir Fossabrekkur. Lýsing hefur verið kynnt og bárust nokkrar athugasemdir. Tillaga er lögð fram.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og leggur til að hún verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og umferðarnefnd - 47. fundur - 07.02.2022
Rangárþing ytra hefur samþykkt að vinna að gerð deiliskipulags fyrir Fossabrekkur. Helstu markmið deiliskipulagsins eru að auka öryggi allra vegfarenda, bæta aðgengi að náttúru, Vernda náttúru og ásýnd svæðisins, stuðla að upplifun sem byggist á náttúrufegurð og staðaranda, fræða vegfarendur um náttúru og sögu svæðisins, styðja við ferðamennsku í Rangárþingi-ytra. Tillaga var auglýst frá og með 15.12.2021 til og með 26.1.2022. Búið er að taka saman athugasemdir og ábendingar sem borist hafa og lögð fram viðbrögð við þeim í framlögðum lista ásamt því að uppfæra greinargerð.
Skipulagsnefnd fjallaði um fram komnar athugasemdir og ábendingar. Nefndin telur að búið sé að bregðast við öllum framkomnum athugasemdum og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu. Jafnframt verði þeim sem gerðu athugasemdir, bæði við lýsinguna og tillöguna, send viðbrögð sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 48. fundur - 25.05.2022
Ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra hefur staðfest tillögu stjórnar Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða um styrkveitingar úr sjóðnum vorið 2022. Umsókn vegna Fossabrekkna var samþykkt. Um er að ræða styrk að fjárhæð kr. 55.200.000 og er styrkurinn veittur til hönnunar og framkvæmda sem byggja á fyrirliggjandi deiliskipulagi.
Sveitarstjórn lýsir yfir mikilli ánægju með niðurstöðu sjóðsins og fagnar því að nú verði hægt að vinna þetta mikilvæga mál áfram.
Jafnréttis-, atvinnu- og menningarmálanefnd - 1. fundur - 05.09.2022
Markaðs- og kynningarfulltrúi kynnir fyrirhugað verkefni í Fossabrekkum.
Lagt fram til kynningar.
Byggðarráð Rangárþings ytra - 13. fundur - 26.04.2023
Tilboð vegna hönnunar á Fossabrekkum.
Lögð fram tilboð sem komu fram í hönnun á Fossabrekkur. Tilboð bárust frá Arkís, Landmótun og Togson og bauð Landmótun lægst, 23.832.800 kr.
Byggðarráð leggur til að tilboði Landmótunar sé tekið með fyrirvara um að breyting verði samþykkt á núverandi samning við Framkvæmdarsjóð ferðamannastaða og felur sveitarstjóra að undirrita samning.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð leggur til að tilboði Landmótunar sé tekið með fyrirvara um að breyting verði samþykkt á núverandi samning við Framkvæmdarsjóð ferðamannastaða og felur sveitarstjóra að undirrita samning.
Samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra - 21. fundur - 08.11.2023
Minnisblað um stöðu verkefna í Fossabrekkum.
Lagt fram til kynningar.