Málsnúmer 2206026
Vakta málsnúmerSkipulags- og umferðarnefnd - 2. fundur - 13.07.2022
Landsvirkjun hefur hafist handa við mat á umhverfisáhrifum vegna stækkunar Sigöldustöðvar. Lögð er fram tillaga að matsáætlun.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við fram lagða matsáætlun en áskilur sér rétt til frekari umsagnar á síðari stigum ef þurfa þykir.
Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 01.09.2022
Landsvirkjun hefur lagt fram tillögu að matsáætlun. Álit Skipulagsstofnunar um matsáætlun liggur fyrir þar sem áherslur eru gerðar skírari.
Lagt fram til kynningar.
Skipulags- og umferðarnefnd - 16. fundur - 07.09.2023
Landsvirkjun hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigöldustöðvar. Í dag er virkjað rennsli 240 m3/s og uppsett afl Sigöldustöðvar er 150 MW. Framkvæmdir við stöðina hófust árið 1973 og var hún gangsett í byrjun árs 1978. Landsvirkjun áformar nú að stækka stöðina með því að bæta við fjórðu vélinni og auka með því afl stöðvarinnar í allt að 215 MW. Með þessari aflaukningu eykst orkuvinnslugeta stöðvarinnar aðeins lítillega nema að til komi meira rennsli, til dæmis með aukinni bráðnun jökla eða aukinni úrkomu. Umsagnir skulu berast eigi síðar en 25. september nk.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við umhverfismatsskýrsluna.
Skipulags- og umferðarnefnd - 20. fundur - 03.01.2024
Landsvirkjun hefur lagt fram umhverfisskýrslu vegna stækkunar Sigöldustöðvar. Meðfylgjandi er álit Skipulagsstofnunar vegna ofangreindrar framkvæmdar skv. lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Lagt fram til kynningar.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 7. fundur - 15.01.2024
Landsvirkjun hefur lagt fram umhverfisskýrslu vegna stækkunar Sigöldustöðvar. Meðfylgjandi er álit Skipulagsstofnunar vegna ofangreindrar framkvæmdar skv. lögum nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Lagt fram til kynningar
Skipulags- og umferðarnefnd - 62. fundur - 05.03.2026
Landsvirkjun hefur lagt fram til kynningar og samráðs viðbót við fyrri umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigölduvirkjunar. Í skýrslunni er fjallað um áhrif framkvæmdarinnar á vatnshlot.
Fyrirtækið er með áform um að stækka Sigöldustöð, sem er efst þeirra vatnsaflsstöðva sem nýta vatn af vatnasviði Tugnaár og Þjórsár. Í dag er virkjað rennsli 240 m3/s og uppsett afl Sigöldustöðvar með þremur aflvélum 150 MW. Fyrirhuguð áform ganga út á að bæta við fjórðu aflvélinni og auka með því afls stöðvarinnar í allt að 215 MW.
Fyrirhuguð stækkun á Sigöldustöð undirgekkst umhverfismat sem lauk með áliti Skipulagsstofnunar 18. desember 2023. Ásahreppur veitti framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni 19. febrúar 2025 sem síðar var fellt úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 57/2025. Samkvæmt úrskurðinum var annmarki á umhverfismati framkvæmdarinnar hvað varðar mat og kynningu á áhrifum á vatnshlot. Viðbótarskýrslunni og samráði um hana er ætlað að bæta úr framangreindum annmarka.

Lagt fram til kynningar. Skipulagsfulltrúa verði falið að undirbúa umsögn sem lögð yrði fram á næsta fundi.
Skipulags- og umferðarnefnd - 63. fundur - 19.03.2026
Gunnar Aron Ólason víkur af fundi við meðferð og afgreiðslu þessa erindis.
Landsvirkjun hefur lagt fram til kynningar og samráðs viðbót við fyrri umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigölduvirkjunar. Í skýrslunni er fjallað um áhrif framkvæmdarinnar á vatnshlot. Skipulagsfulltrúi leggur fram drög að umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Skipulags- og umferðarnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða umsögn og felur skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið. Nefndin gerir að öðru leyti ekki athugasemdir við fyrirliggjandi viðbót við fyrri umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigölduvirkjunar skv. lögum nr. 111/2021.
Gunnar Aron kom aftur á fund.
Umhverfis-, hálendis- og samgöngunefnd - 22. fundur - 07.04.2026
Landsvirkjun hefur lagt fram til kynningar og samráðs viðbót við fyrri umhverfismatsskýrslu vegna stækkunar Sigölduvirkjunar. Í skýrslunni er fjallað um áhrif framkvæmdarinnar á vatnshlot. Skipulagsfulltrúi leggur fram drög að umsögn fyrir hönd sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar
Skipulags- og umferðarnefnd - 4. fundur - 06.08.2026
Fyrir liggur álit HMS um umhverfismat vegna stækkunar Sigöldustöðvar með tilliti til áhrifa á vatnshlot. Eftir framlagningu frekari gagna um áhrif á vatnshlot og opinbert samráð um þau er það mat HMS að áhrifin verði óveruleg og að framkvæmdin sé ekki líkleg til að leiða til þess að vatnshlot nái ekki umhverfismarkmiðum sínum.
Lagt fram til kynningar.