Skipulag íþróttahúsa vegna þorrablóta
Reglur fyrir íþróttahúsið á Laugalandi
- Þorrablótsnefndin fær fullan aðgang að íþróttahúsinu klukkan 16:00 á fimmtudegi fyrir blót og frá þeim tíma fellur öll regluleg starfsemi hússins niður hjá öllum öðrum aðilum sem nota húsið þar til á mánudeginum eftir blót.
- Nefndin hefur til kl. 16:00 á sunnudegi eftir blót til að ganga frá og skila húsinu af sér í samstafi við starfmenn íþróttahússins.
Reglur fyrir íþróttahúsið á Hellu
- Þorrablótsnefndin fær fullan aðgang að íþróttahúsinu klukkan 16:00 á miðvikudegi fyrir blót og frá þeim tíma fellur öll regluleg starfsemi hússins niður hjá öllum öðrum aðilum sem nota húsið þar til á mánudeginum eftir blót.
- Nefndin hefur til klukkan 17:00 á sunnudegi eftir blót til að ganga frá og skila húsinu af sér í samstafi við starfmenn íþróttahússins.