Hella
Hella

Lausar eru stöður umsjónarkennara á yngsta- og miðstigi.

Auk þess vantar kennara í ensku á miðstigi og í list- og verkgreinum; hlutastörf í smíði, textíl og myndmennt.

Leitað er eftir einstaklingum sem uppfylla eftirfarandi menntunar- og færnikröfur:

  • Kennararéttindi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði

Í Grunnskólanum Hellu eru nú 136 nemendur í 1.-10. bekk.

Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans www.grhella.is

Vinsamlegast hafið samband við undirritaða til að fá frekari upplýsingar:

Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri á netfang kristins@grhella.is eða í síma 488 7021 / 663 6217

Kristinn Ingi Guðnas. aðstoðarskólastjóri á netfang kristinn@grhella.is eða í síma 488 7022 / 848 1467

Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk.

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Störfin henta jafnt konum sem körlum.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?