Þann 10. mars 2023 barst Skipulagsstofnun umhverfismatsskýrsla um þjónustumiðstöð í Landmannalaugum sem stofnunin hefur móttekið í samræmi við 22. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021 og lið 12.03 í 1. viðauka við lögin. Skipulagsstofnun kynnir framkvæmdina og umhverfismatsskýrsluna með auglýsingu í Lögbirtingablaðinu, Fréttablaðinu og Morgunblaðinu 17. mars og á Fréttavef Suðurlands 17. – 24. mars 2023.
auglýsir eftir ritara í 70% starf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir góðri tölvukunáttu og góðum samskiptahæfileikum. Þau fimm sveitarfélög sem mynda byggðasamlag um Félags- og Skólaþjónustu eru: Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur. Íbúar eru tæplega sex þúsund.
Skógræktin og Skipulagsstofnun hafa gefið út leiðbeiningar sem ætlað er að nýtast við mótun stefnu um skógrækt í skipulagsáætlunum, við veitingu framkvæmdaleyfis og við umhverfismat.
Um er að ræða fjórðu útgáfu leiðbeininganna sem hafa nú verið uppfærðar m.t.t. breyttra laga og stefnu stjórnvalda. Leiðbeiningarnar eru eingöngu gefnar út á rafrænu formi.
Fimmtudaginn 16. mars næstkomandi verða haldnir tónleikarnir Raddir úr Rangárþingi á Stracta hótel á Hellu. Fram koma fjölmargir söngvarar og söngkonur sem eiga það sameiginlegt að vera öll úr Rangárþingi.
Tillaga að starfsleyfi fyrir Bleikju ehf. að Laugum í Landsveit
Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi Bleikju ehf. að Laugum í Landsveit. Um er að ræða landeldi á laxfiskum með allt að 100 tonna hámarkslífmassa á hverjum tíma. Fráveituvatn fer í setþró áður en það er hreinsað með tromlusíu og veitt í viðtaka.